Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 70

Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 70
70 GLÓÐAFEYKIR Hróarsdal, þá á Ríp og eitt ár í Vík í Staðarhreppi, en frá 1898 á Kárastöðum og átti þar heim til æviloka. Ólafur dó árið 1921, ári síðar lét Sigurbjörg búið í hendur sonum sínum ,,og var hjá þeim ráðskona, lengst hjá Sigurði”. Eftir lát móður sinnar á ofanverðu ári 1942 leigði Sigurður jörðina og sinnti eigi búsýslu síðan, en fékkst æ meir við fræðimennsku og ritstörf ýmiss konar. Voru þeir þrír bræður og allir ókvæntir: Sigurður elztur, þá Jónas, átti lengi heima í Stafholti syðra og dó þar hálffimmtugur og Einar yngstur, heima á Kárastöðum og dó þar innan við þrítugsaldur. Sigurður á Kárastöðum lauk búfræðiprófi frá Hólaskóla árið 1915. Hann kom víðaviðí félagsmálum sveitar og sýslu. Hann var um hríð endurskoðandi sveitarsjóðsreikninga Rípurhrepps, sat nokkur ár í skattanefnd, átti hlut að stofnun hrossaræktarfélags í hreppnum svo og nautgriparæktarfélags og var um skeið eftirlitsmaður nautgriparæktarfélaga í fjórum hreppum sýslunnar. Þó var Sigurði sérlega ósýnt um allar skepnur. En hann átti traust manna fyrir grandvarleika sakir, skyldurækni og ósérplægni. Sigurður var markaumsjónarmaður í Skagafjarðarsýslu, sá um útgáfu markaskrár og tók við því starfi af Jónasi afa sínum í Hróarsdal; mun hann hafa búið 13 markaskrár til prentunar. Sigurður átti hlut að stofnun lestrarfélags 1916, var form. ungmennafél. Hegra 1914- 1933, átti sæti í stjórn Ungmennasamb. Skagafj. 1917 - 1941, lengstum ritari og féhirðir og kjörinn heiðursfélagi Ungmennasambands 1960. Form. sóknarn. Rípursóknar 1938 - 1962. Hann var áhugamaður um skógrækt og skrúðgarða, kom upp skógarlundi heima hjá sér á Kárastöðum, vann að plöntun trjáa og snyrtingu skrúðgarða á Sauðárkróki og víðar í héraðinu, einnig í Reykjavík. I 6 sumur var hann safnvörður við byggðasafnið í Glaumbæ, skrásetti muni safnsins og merkti. Sigurður á Kárastöðum var mjög hneigður til fræðistarfa og hvers konar sögurýni. Hann viðaði að sér handritum og skjalagögnum fornum var sískrifandi og löngum við týruljós og illa aðstöðu í Kárastaðabænum gamla, lét eftir sig mikið efni í handriti. Hann var einn af stofnendum Sögufél. Skagfírðinga 1936, átti sæti í útgáfustjórn félagsins sem og í útgáfunefnd Skagfirzkra æviskráa og ritaði marga þætti, er þar birtust. Hann átti drjúgan hlut að samningu hins merka rits Jarða- og búendatal í Skagafjarðarsýslu 1781 - 1958. Hann var Sigurður Ólafsson

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.