Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 72

Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 72
72 GLÓÐAFEYKIR löngum, en lét sem ekki væri og vann, þótt vafalaust væri á stundum meir en máttinn hafði til. Árið 1931, hinn 19. sept. kvæntist Ármann Sigurbjörgu Pétursdóttur frá Skagaströnd. Börn þeirra eru þrjú: Haukur, verkam. á Akranesi, Sigurður Helgi, pípulagningam. á Akureyri og Sigþrúður, húsfr. á Akranesi. Ármann Helgason var meðalmaður á vöxt og vel á fót kominn, liðlegur í hreyfingum, grannleitur, dökkhærður, fríðleiksmaður í sjón. Hann var glaður jafnan í viðmóti, greindarlegur í tali og hafði yndi af að blanda geði við aðra. Hann var mikill trúleiksmaður, áhugasamur um það, sem honum var falið að inna af hendi og glöggur á það, sem gera þurfti. Ármann var vinsæll maður og mun öllum hafa verið hlýtt til hans þeim er honum kynntust. Herdís Bjarnadóttir, f. húsfr. á Minni-Reykjum í Fljótum o. v., andaðist hinn 16. febrúar 1947. Hún var fædd að Fjalli í Kolbeinsdal 8. sept. 1888, dóttir Bjarna - Reykja-Bjarna, Hesta-Bjarna, hins þjóðfræga tamningamanns, - Jóhannessonar bónda á Reykjum í Hjaltadal, Þorfínnssonar, og konu hans Þórunnar Sigfúsdóttur bónda í Eyhildar- holti, á Hellulandi o. v., Péturssonar bónda á Þröm á Langholti o. v., Guðmundssonar, og fyrri konu hans Ingibjargar Sigurðardóttur bónda í Ási í Hegranesi, alsystur Ólafs alþingism. í Ási. Þriggja ára gömul fór Herdís í fóstur til afa síns og ömmu. Jóhannesar á Reykjum og Herdísar Bjarnadóttur, sem hún var heitin eftir. Jóhannes andaðist 1894, en Herdís ekkja hans bjó áfram á Reykjum og hjá þessari ömmu sinni og alnöfnu ólst Herdis upp fram undir tvítugsaldur. Hún stundaði húsmæðranám í skóla Jóninnu Sigurðar- dóttur á Akureyri, og var þar og við saumanám, sem kom henni að miklum og góðum notum síðar meir. Herdís var tvígift. Árið 1910 gekk hún að eiga Benedikt kennara Guðmundsson frá Hringveri á Tjörnesi norður. Bjuggu þau á Syðsta- Mói í Fljótum 1912 - 1918, fóru þá búi sínu að Neðra-Haganesi en bjuggu þar aðeins skamma stund, því að Benedikt andaðist 1919, tæplega fertugur, en Herdís fór að Minni-Reykjum og gerðist þar

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.