Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 73
GLÓÐAFEYKIR
73
bústýra. Þau Benedikt eignuðust þrjár dætur: Jódísi, húsfr. á
Veðramóti í Gönguskörðum, Guðnýju og Þórunni, báðar búfastar í
Reykjavík. Seinni maður Herdísar var Jón Jósefsson frá Stóru-
Reykjum í Fljótum. Bjuggu þau á Minni-Reykjum til 1928, þá í
Neskoti í sömu sveit næstu ár, aftur á Minni-Reykjum 1929 - 1931, þá á
Barði til 1934, í Neðra-Haganesi eitt ár, í Langhúsum í sömu sveit
annað ár, fóru þá í húsmennsku að Hraunum. Þau eignuðust tvær
dætur: Astu, húsfr. á Sauðárkr. og Svövu, húsfr. í Reykjavík. Þau hjón
slitu samvistum árið 1943. Fluttist þá Herdís með dóttur sinni og
tengdasyni að Veðramóti og átti þar heimili upp þaðan, en var oft að
heiman við sauma og þá mest á Sauðárkróki. Síðustu árin var hún á
gamalmennadeild Héraðssjúkrahússins.
Herdís Bjarnadóttir var há og grannvaxin, svipmikil og gerðarleg.
Hún var ágætlega greind, sem hún og átti kyn til, seintekin nokkuð og
hlédræg, vinaföst og trygglynd. Hún var harðdugleg og vel verki farin,
atorkukona og mikillar gerðar um flesta hluti.
Ellert Símon Jóhannsson, bóndi í Holtsmúla á Langholti, lézt hinn
19. febrúar 1977.
Hann var fæddur að Þorsteinsstaðakoti í Tungusveit 14. okt. 1890,
sonur Jóhanns bónda þar og síðar í Saurbæ á Neðribyggð,
Jóhannssonar og konu hans Þuríðar
Símonardóttur frá Bjarnastöðum í Unadal.
Var Ellert albróðir Guðjóns á Nýlendi, sjá
Glóðaf. 1977, 18. h. bls. 58.
Ellert ólst upp með foreldrum sínum til
fermingaraldurs í stórum og efnilegum
systkinahópi, réðst skömmu síðar til
vinnumennsku, fór til náms í Hvítárbakka-
skóla haustið 1907 og var kaupmaður í
Borgarfirði sumarið milli námsvetra. Mat
hann Sigurð Þórólfsson, skólastjóra á
Hvítárbakka, æ síðan um aðra fram, enda
mun hann hafa reynzt Ellert, sem mjög
skorti fararefni, mikill drengur sem öðrum
fleiri og eigi sízt þeim er hann fann að
manntak var í.
Tvítugur að aldri, árið 1910, gekk Ellert að
eiga heitkonu sína, Ingibjörgu Sveinsdóttur bónda á Hóli í
Sæmundarhlíð og konu hans Hallfríðar Sigurðardóttur; var Ingibjörg
Ellert Símon
Jóhannsson