Skírnir - 01.04.1993, Blaðsíða 157
SKÍRNIR
EFTIRLlKIN gar og þýðingar
151
myndríkur og fullur af yfirdrifnum náttúrulýsingum á borð við
den hylende Vind, det buldrende Hav og den flygtende Sol.
Sagnfræðingurinn P.F. Suhm skrifaði fyrstu söguna sem með
réttu má kalla norræna, Sigrid eller Kierlighed Tapperheds
Belmning (1772). Seinna fylgdu De tre Venner (1774), sem sækir
efni sitt í Örvar-Odds sögu, og Signe og Habor eller Kierlighed
stcerkere end Doden (1777), þar sem höfundurinn sækir efnivið
sinn til Saxo. Eins og Ewald notar Suhm einkum fornnorræn
menningarhugtök og eiginnöfn: Aser, Jarler, Skiold-Moer,
Ovættir, Galdre, en þar að auki gerir Suhm mál sitt fornt til þess
að gefa sögunum norrænni blæ: Kapper, Geirsodde, blod (sbr.
blauður), Avmd-værdig. Og loks gerir Suhm í Samtaler i de Dod-
es Rige (1773) tilraunir með mjög stuttar setningar, en það lánast
ekki vel.
Samsoe tókst betur upp við að rita stuttar málsgreinar og
halda aukasetningum í lágmarki í sínum þremur norrænu sögum:
Frithiof (1786), Halfdans Sonner (1794) og Hildur (1796) (sagan
af Hjaðningi færð í nútímabúning). Hann notar nöfn eins og Hel-
ge, Rorik, Bolvise, Alfader, Baldur, Freya, Loke, Odin, og orð
eins og Hofgodar, Fostbrodre og Skutilsvend.
Rómantík 1800-1830
Hinn ungi Oehlenschláger las sögur Ewalds og varð þar að auki
fyrir sterkum áhrifum frá Holberg, þannig að stíll hans var frá
upphafi fornlegur. Aðrir höfundar og verk sem skína í gegnum
stíl hans eru rit Saxos í þýðingu Vedels, dönsk þjóðkvæði og
Ossían. Oehlenschláger var ekki sérlega vel að sér í forníslensku,
en þegar hann var kominn til ára sinna, hélt hann því fram að
hann hefði ungur „fengist mikið við norrænar fornbókmenntir
og við norræna goðafræði" (tilvitnun í Rubow, bls. 12).
I verkum Oehlenschlágers má finna skiptin úr rómantík í síð-
rómantík. Þessi umskipti hafa í för með sér nýtt viðhorf rithöf-
unda til þess hvernig hægt sé að nota norrænar fornbókmenntir.
Ungur að aldri skrifaði Oehlenschláger norrænu söguna Erik og
Roller og skömmu seinna Hroars Saga, en í þessum verkum felast