Archaeologia Islandica - 01.01.1998, Page 60

Archaeologia Islandica - 01.01.1998, Page 60
Adolf Friðriksson & Orri Vésteinsson legar niðurstöður og er því vert að gefa yfirlit yfir þann árangur sem uppgröft- ur og yfirstandandi úrvinnsla rann- sóknargagna síðustu ára hefur skilað. Rannsóknin skiptist í nokkra ólíka þætti og því hefur verið kosið að gera sérstakar skýrslur um hvern og einn iið rannsóknarinnar. Hér verður greint frá fyrri rannsóknum á Hofstöðum og dregin saman meginatriði um mark- mið, fræðilegt baksvið og framvindu verksins árin 1991-1997. Rannsóknin er unnin á vegum Forn- leifastofnunar Islands, í samstarfi við innlenda og erlenda aðila, undir stjórn Adolfs Friðrikssonar og Orra Vésteins- sonar. I þessari grein verður gefið yfirlit um fyrri rannsóknir á Hofstöðum, og fjallað um það sem fram hefur komið í nýjum rannsóknum 1991-1997. Rann- sóknir standa enn yfir og eru því hér aðeins birtar skýrslur um vettvangs- rannsóknir 1991-1995 sem ásamt gjóskulagaathugunum voru undirbún- ingur undir þær umfangsmiklu rann- sóknir sem hófust þar árið 1996. Skýrslur um þær byggingar og mann- vistarleifar sem komið hafa í ijós síðan 1996 verða birtar síðar en hér eru birt stutt yfirlit um hinar ýmsu fornvist- fræðilegu aðferðir sem nú eru notaðar við greiningu mannvistarleifa á Hof- stöðum, enda er verulegt nýnæmi að þeim fyrir íslenska fornleifafræði. Fyrri rannsóknir á Hofstöðum Á 19. öld voru skráðar sagnir um að hof hefði verið á Hofstöðum. í skýrslu ' um fornminjar í Reykjahlíðarþingum frá 1817 er þess getið að í kirkjuhurð Reykjahlíðarkirkju sé hringur, og að það séu munnmæli að hann sé úr hofs- hurð „sem í Forntid skal hafa staded hier i Sveit á bæ þejm sem á Hofstöd- um heíter.” (FF, 600). Ekki er þó getið um sérstaka tóft í sambandi við þessi munnmæli fyrr en Kristian Kálund kom við á Hofstöðum haustið 1873 á ferð sinni um landið við sögustaða- könnun. I dagbók sína skráði hann lýs- ingu á stórri, aflangri tóft í túnjaðri á Hofstöðum og var hún talin vera „hin raunverulega hoftóft”. Sagði hann að talið væri að útbygging væri við eitt horn hennar, en við norðurenda stóð þá fjárhús. Skammt sunnan við stóru tóft- ina var lítil hringlaga tóft, og í brekk- unni skammt suðaustan þeirra var girðing, sem var sögð hafa verið hesta- girðing hofgesta. Uppi á brekkunni ofan fornleifanna mátti sjá fornlegt garðlag sem teygði sig svo langt sem augað eygði til norðurs. Einhverjir munu þegar hafa haft áhuga á að rann- saka þessar minjar, því að Kálund (1879, 167; 1986,126) nefnir að borað hafi verið ofan í „hoftóftina” og komið niður á harðtroðið leirgólf eina alin (63 sm) undir yfirborði, og þar hafi einnig fundist málmbútar. Athugun Kálunds var aðeins upphaf að langri rannsóknarsögu á Hofstöð- um. Sama ár og lýsing Kálunds á Hof- stöðum og öðrum stöðum á Norðaust- urlandi kom út (1879) var Hið ís- lenska fornleifafélag stofnað. Fyrstu ár þessa félags voru gerðar fjölmargar rannsóknir, m.a. á allskyns tóftum sem 60
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Archaeologia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Archaeologia Islandica
https://timarit.is/publication/1160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.