Archaeologia Islandica - 01.01.1998, Page 83
Fornleifarannsóknir A Hofstöðum 1991-1992
Hverfjalli. Undir Hverfjallsgjósku er
fínkornóttur grábrúnn jarðvegur og
loks Heklulögin H3 og H4. Til sam-
ans eru óhreyfð jarðlög undir mann-
vistarlögum kölluð C3. Þau sjást in
situ utan AB tóftarinnar en undir
veggjum hennar hefur jarðvegur og
torf verið fjarlægt þegar veggirnir voru
reistir. Innan veggja AB hefur verið
grafið enn lengra niður við skálagerð-
ina, því að þar eru mannvistarleifarnar
beint ofan á H3 gjóskunni.
Svceði AB
Nú skal vikið að sjálfum fornleifunum.
Svo sem vænta mátti er hér einkum
um að ræða veggi og gólfleifar skála-
byggingarinnar AB. Verður fyrst fjall-
að um austurlangvegg, síðan vestur-
vegginn og loks gólfleifar og önnur
ummerki sem fundust innan aðaltóftar.
Austurveggur. Veggir aðaltóftarinnar
eru vel sjáanlegir á yfirborði, þeir virð-
ast þykkir og vel varðveittir. Þess var
vænst að sjá báða veggi í sniði, en
minna sást af þeim en vænta mátti. í
sniðinu er austurveggur tóftarinnar
(C33) með beina innbrún vestanmeg-
in, en lækkar í austur og endar í mjórri
tungu. Ljóst er að grafararnir árið
1908 hafa grafið niður á miðjan vegg-
inn og síðan niður með honum að inn-
anverðu alveg niður í óhreyfðan jarð-
veg. Því mun vanta hluta af vesturhlið
hans á þessum stað. Greina má hnausa
í vegghleðslunni og er í þeim sorplag
og landnámslagið einnig. Ekki var
hægt að mæla breidd veggjarins þar
sem innri brún hleðslunnar hafði verið
grafin burt í fyrra uppgrefti. Undir
veggnum er ljósbrúnt, lítillega hreyft
moldarlag, þar undir er lag með land-
námssyrpunni í og undir þeim eru áð-
urnefnd forsöguleg lög (C3).
Brotalínan á grunnmyndinni (mynd
4) yfir austurhluta skurðarins sýnir
annan skurð eftir rannsóknina 1908.
Við uppgröftinn 1992 var látið nægja
að hreinsa upp skurðinn frá 1908 og
snið hans teiknað. Athygli vekur að
þessi skurður kemur ekki fram á upp-
dráttum Daniels Bruun. Hins vegar er
sýndur skurður sem grafinn hefur verið
þar sem hinar meintu dyr hafa verið og
eru merktar P á teikningum Bruuns.
Er hér eitthvert ósamræmi, því skurð-
urinn fyrir P hefði allur átt að lenda
sunnan skurðarins sem grafinn var
1992. Er líklegast að skurðurinn fyrir
P hafi orðið öllu breiðari en sýnt er á
teikningum. Endar hann í óhreyfðum
jarðlögum neðst í brekkunni austan
við tóftina.
í samanburði við mannvistarleifar
vestan hússins er augljóst af öllum
jarðlögum og ummerkjum að minnsta
raskið hefur verið austan við skálatóft-
ina, en vestan hennar hefur langtum
meira umstang verið.
Vesturveggur. Þess var vænst að sjá
vesturvegg aðaltóftarinnar í sniðinu,
en því var ekki að heilsa. Líkt og aust-
anmegin, hefur líklega verið grafið
niður á vesturvegginn árið 1908, innri
mörk hans fundin og síðan grafið nið-
ur með honum, í óhreyfðan jarðveg.
Enginn stæðilegur torfveggur kom
fram við rannsóknina 1992, en hins
vegar allþykkt torflag (C1015) þar sem
83