Archaeologia Islandica - 01.01.1998, Qupperneq 105
Fornleifarannsóknir á Hofstöðum 1995
Mynd 4. Snið-c, suðurhliðþverskurðar íholu „G“ - Section „c“, southern face of the smaller trench in „G“. 5, 6
og 7 eru ruslalög, 8 er hrunið torf 9 er gólf — 5,6 and 7 are midden deposits, 8 is collapsed turf 9 a floor
layer. Teikning / Drawing: Orri Vésteinsson, FSI.
þetta úrkastið úr gryfjunni (Cll) og
hefur það lent á bökkum hennar og
undir veggnum er hann var reistur.
Ljósu flekkirnir koma úr forsögulegum
gjóskulögum, H3 og H4, sem gryfjan
hefur verið grafin í gegnum. 03 er
samskonar lag og 02 og er sennilega
eins til komið. Það liggur utan við
torfvegg holunnar og er blönduð og
hreyfð mold með H3 og H4 gjósku-
flekkjum. Má vera að þetta jarðefni
hafr verið notað til að púkka utan með
torfveggjunum í upphafi. 04 er á-
þekkt 03- Moldin í því er dekkri og í
laginu eru bein. Það kemur fram norð-
an við gryfjuna, syðst í könnunar-
skurðinum og er afar þykkt næst
gryfju, allt að 25 sm, en þynnist út
uns það hverfur um 3 metrum norðan
við hana. Ekki er ljóst hvað þetta lag
er, en vera má að það sé úrkast úr
gryfjunni. Skýringin á litarmuninum á
03 og 04 gæti verið sú að 04 sé
efnið úr efri lögum en 03 sé úrkast úr
neðri lögum, nær ljósu gjóskulögun-
um. Undir 04 er óhreyfður jarðvegur.
04 situr ofan á örþunnu lagi af ljós-
leitri mold (07) og undir henni er
landnámsgjóskusyrpan. f könnunar-
skurðinum norðan gryfjunnar er unnt
að skoða samhengi 04 lagsins við
LNS á löngum kafla, eða í yfir 12
metra löngu sniði. Ekki er að sjá að
landnámslaginu hafi verið raskað, en
hins vegar virðist það nýfallið er hafist
var handa við að grafa holuna. Hefur
verið grafið fyrir henni innan áratugs
frá því er landnámsgjóskan féll, eða
um 880 (Magnús A. Sigurgeirsson
1998).
Nyrst í könnunarskurðinum kom
fram torfhleðsla, 05. Er það suður-
brún á vegg mannvirkis við suðvestur-
horn skálans. í sniði-g má sjá hreyft
mislitt lag með torfi og móösku, 08.
Það er milli C4 og 05. Ekki er ljóst
hvað þetta lag er, en vera má að það
hafi myndast er eldri byggingar voru
jafnaðar út áður en þessi veggur var
reistur. Athygli vekur að veggurinn
105