Tölvumál - 01.02.2008, Side 13
F7
Kona hringdi í öngum sínum í tölvuþjónustu og segist hafa slökkt á
Hafnarfirði. Ég ýtti á F7 eins og þú sagðir að ég ætti að gera og þá fór
rafmagnið af Hafnarfirði. Hvað á ég að gera? Hvernig kveiki ég aftur á
bænum, það er ekkert rafmagn á tölvunni og ég get ekki ýtt aftur á F7?
Ryksugan
Hér á árum áður var til siðs að opna borðtölvur og ryksuga innan úr þeim
12 sinnum á ári og á námskeiði fyrir bankastarfsmenn var lögð sérstök
áhersla á þetta. Einn daginn er hringt úr banka á Vestfjörðum og á línunni
var vandræðalegur bankastjóri. Hann byrjaði að útskýra að þau hefðu opnað
allar tölvur á föstudaginn og ryksugað vandlega en í dag, mánudag, þegar
þau koma aftur til vinnu stemmdi ekki bókhaldið, það vantaði 7 milljónir. Er
hugsanlegt, stundi hann upp, að þær hafi getað ryksugast út úr tölvunni?
Kerfisstjóri í vandræðum
Ég vann einu sinni hjá ágætu stórfyrirtæki hér
í bæ. Eitt sinn fékk ég hringingu frá einum
kerfistjóranum sem hafði verið vandræðum
með netþjóninn sem sýndi fullt álag þrátt
fyrir að hann væri búinn að slökkva á helstu
forritum sem í gangi voru. Hann bætti því
síðan við að það væri eitt forrit sem hann
gæti ekki með nokkrum ráðum slökkt á og
hvort ég þekkti til þess. Hvert er það, spyr
ég. Það heitir system idle process, svarar
kerfistjórinn alvarlegur í bragði.
Gluggatjöld
Einu sinni kom ljóska í gardínubúð og bað
afgreiðslukonuna um lítil bleik gluggatjöld.
Búðakonan spurði fyrir hvað hún ætlaði
að nota svona lítil gluggatjöld, þá svaraði
ljóskan að hún þyrfti þær fyrir tölvuskjáinn
sinn! Afgreiðslukonan sagði að hún þyrfti
ekki gardínur á tölvuna, en þá mælti ljóskan:
Halló, ég er með Windows!
Maður í loftbelg
Maður í loftbelg sá að hann var að missa
hæð. Hann tók eftir konu á jörðinni, lækkaði
flugið aðeins meira og kallaði til hennar:
Afsakið, geturðu hjálpað mér? Ég lofaði að
hitta vin minn fyrir klukkutíma, en veit ekki
hvar ég er.
Konan svaraði: Þú ert í loftbelg sem svífur í
10 metra hæð, milli 40. og 41. norðlægrar
breiddargráðu og milli 59. og 60. vestlægrar
lengdargráðu.
Þú hlýtur að vinna við tölvur, sagði loftbelgs
maðurinn.
Það geri ég, svaraði konan. Hvernig vissirðu það?
Nú, svaraði maðurinn, allt sem þú sagðir mér er tæknilega rétt, en ég hef
ekki hugmynd um hvaða gagn er af þeim upplýsingum, og reyndar er ég
enn villtur. Satt að segja þá hefur ekki verið mikil hjálp að þér. Ef eitthvað er
þá hefurðu helst tafið ferð mína.
Konan svaraði: Þú hlýtur að vinna við stjórnun.
Já, sagði maðurinn. En hvernig vissirðu það?
Nú, sagði konan, þú vissir hvorki hvar þú ert né hvert þú ert að fara. Eintómt
loft hefur komið þér þangað upp sem þú ert. Þú gafst loforð sem þú hefur
ekki hugmynd um hvernig á að efna, og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan
þig leysi þín vandamál. Reyndar ertu í sömu stöðu og þegar við hittumst, en
nú er það einhvern veginn mín sök.
Um forgangsröðun
Þegar netbólan hafði bólgnað hvað mest út var mikið að gera hjá vef
fyrirtækjum. Eitt sinn áttu fulltrúar eins slíks fund með banka sem var í
viðskiptum við veffyrirtækið. Eins og vill gerast voru tvö verkefni að rekast
á og var markmið fundarins að forgangsraða. Þegar eigandi verkefnanna
hjá bankanum var spurður hvort verkefnið væri í forgangi svaraði hann:
Verkefni A er klárlega í forgangi en verkefni B þarf að vera búið fyrst.
Skemmtisögur úr
upplýsingatæknigeiranum
Er hugsanlegt að þær
hafi getað ryksugast út
úr tölvunni?
Þú hlýtur að vinna
við tölvur, sagði
loftbelgsmaðurinn