Tölvumál - 01.02.2008, Blaðsíða 66
6 6 | T Ö L V U M Á L
Fókus, félag um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu innan Skýrslu
tæknifélags Íslands var stofnað þann 15. október 2004. Félagar hafa
verið um 100 allt frá byrjun og er mikil breidd í félagatalinu, þar eru
heilbrigðisstarfsmenn, tölvu og tæknifólk, háskólafólk og stjórnendur úr
heilbrigðiskerfinu og tölvugeiranum. Stjórn félagsins endurspeglar hina
dreifðu þekkingu og starfssvið félaganna en í henni sitja nú Valgerður
Gunnarsdóttir forstöðumaður heilbrigðisupplýsinga Heilsugæslunnar sem
er formaður, Ásta St. Thoroddsen dósent í hjúkrunarfræði og formaður
námsnefndar meistaranáms í Health Informatics við HÍ er ritari og
varaformaður, Benedikt Benediktsson upplýsingatæknistjóri hjá Lyfja
stofnun, Arnheiður Guðmundsdóttir yfirmaður hugbúnaðarþróunar hjá
Skýrr, Óskar Einarsson, ráðgefandi sérfræðilæknir á Landspítala, Elísa
bet Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri á hag og
upp lýsingasviði Landspítala og Bjarni Þór Björnsson tæknilegur fram
kvæmdastjóri Stika eru meðstjórnendur.
Markmið félagsins eru fyrst og fremst að breiða út þekkingu á hlutverki
upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu og að stuðla að skynsamlegri notkun
hennar svo og að auka samstarf og skilning milli mismunandi hópa fagfólks
í faginu.
Félagið hefur reynt að skapa þverfaglegan umræðu og auka tengsl milli
félaga með því að halda fundi og ráðstefnur. Á þessu ári hafa verið haldnir
4 fundir um fjölbreytt efni og hefur aðsókn verið mjög góð. Fundirnir hafa
verið haldnir á mismunandi stöðum og hafa stjórnarfélagar lagt til húsnæði
eftir þörfum.
Sem dæmi um fundarefni má nefna málefni persónuverndar og aðgengi
almennings að heilsufarsupplýsingum sínum, staðlar í samþættingu og
samskiptum í rafrænni sjúkraskrá, orðasöfn og samvirkni tölvukerfa
fyrir heilbrigðisgögn og núna síðast mikilvægi upplýsingatækninnar fyrir
öryggi sjúklinga. Þar tók m.a. til máls nýr ráðuneytisstjóri Heilbrigðis og
tryggingamálaráðuneytisins Berglind Ásgeirsdóttir.
Fókus er þátttakandi í Evrópusamtökum um upplýsingatækni í heilbrigðis
þjónustu EFMI fyrir Íslands hönd og á fulltrúa í fulltrúaráði samtakanna.
Ráðgert er að Fókus standi fyrir ráðstefnu á vegum Evrópusamtakanna hér
á landi vorið 2010.
Allir sem hafa áhuga á upplýsingatækni í heilbrigðiskerfinu eru velkomnir í
félagið og á fundi.
Fréttir frá Fókus,
félagi um upplýsingatækni
í heilbrigðisþjónustu
Umfjöllun um faghópa
Fókus starfar innan
Skýrslutæknifélagsins
Markmið félagsins eru
fyrst og fremst að breiða
út þekkingu á hlutverki
upplýsingatækni í
heilbrigðisþjónustu
Valgerður Gunnarsdóttir
formaður Fókus