Tölvumál - 01.02.2008, Blaðsíða 41
T Ö L V U M Á L | 4 1
Að hafa verk: Í MSF segja svokölluð verk (Tasks) til um það sem þarf að
gera í hverri ítrun. Strangt til tekið þarf að vera til samþykkt verk fyrir
öllu því sem framkvæmt er. Að mörgu leyti er þetta notadrjúgt, t.d. við
áætlanagerð og eftirlit. Einnig dregur þetta eilítið niður í þeim „cowboy“ stíl
sem stundum er talinn loða við kvikar aðferðir. Það getur hins vegar verið
ansi leiðigjarnt að þurfa að skilgreina verk fyrir hvert einasta smáatriði sem
gert er. Oft á tíðum er það hreinlega til að hægja á allri framvindu. Að finna
eitthvert jafnvægi hér er ekki heiglum hent.
Lengi í gang: Það er mjög auðvelt að vanmeta þann tíma sem fer í að koma
hugbúnaðarverkefni af stað. Í MiFID verkefninu fór mun lengri tími en
áætlað var í þessi fyrstu skref, þ.m.t. að koma upp þróunarumhverfi, búa til
„build“, útvega öllum réttan aðgang o.s.frv.
Hópurinn of fjölmennur: Kvikar aðferðir eru taldar henta best fyrir litla hópa
með færri en 10 meðlimi. Í MiFID verkefninu voru 12 og sýnir reynslan
okkur að það er algjört hámark. Sem dæmi þá er erfitt að halda „scrum“
fundi með svo mörgum.
Samantekt
Eins og áður segir gekk þetta verkefni vel þrátt fyrir að tímaramminn væri
mjög þröngur, flestir þátttakendur voru að vinna eftir nýju hugbúnaðarferli í
fyrsta sinn og að ýmsar tæknilegar nýjungar voru reyndar. Þegar verkefnið
var gert upp hafði einn þátttakandi á orði að það mætti einu gilda eftir
hvaða ferli væri unnið. Ef verkefnahópur væri skipaður hæfu fólki, einhver
tæki að sér að finna út hvað ætti að gera í raun og annar að leiða vinnuna
þá gæti ekkert klikkað. Skyldi það vera málið?
Staðið var frammi fyrir dæmigerðum
vandamálum sem kvikar aðferðir eiga að taka á
7 vikna heildarverktíma var skipt niður í 5 ítranir
eða spretti. Í lok hverrar ítrunar var gefin út
útgáfa af hugbúnaðinum í heild sinni
Engin vandamál komu upp og í
heildina gekk verkefnið mjög vel
Ef verkefnahópur er skipaður
hæfu fólki, einhver tekur að sér
að finna út hvað ætti að gera í
raun og annar að leiða vinnuna
þá getur ekkert klikkað
Í upphafi hvers dags var haldinn svokallaður ,,Scrum”
fundur en hugtakið kemur frá Rugby íþróttinni. Hér er
einmitt mynd af Rugby leikmönnum í ,,Scrum.”