Tölvumál - 01.02.2008, Page 58
Gervigreind skiptist í fjölmörg undirsvið sem
samsvara þáttum eins og skynjun, hegðun,
hugsun, skilningi, tjáningu, lærdómi og ýmsu
fleiru sem tengist greind. Tvö slík svið eru
ákvarðanataka og áætlanagerð. Undanfarin
ár hefur mikil gróska verið í rannsóknum á
þeim sviðum og framfarir orðið miklar. Það
sem kannski lýsir þessum framförum gleggst
er notkun tækninnar við lausn raunverulegra
vandamála. Meðal dæma um slíka notkun er
að Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA)
er byrjuð að nýta þessa tækni, ekki aðeins
í tilraunum, heldur í daglegri stjórn flókinna
geimferða. Í þessari grein verður fjallað um
þessi svið gervigreindar og notkun þeirra í
geimferðum, en höfundur starfaði í 10 ár hjá
Geimferðastofnun Bandaríkjanna við þróun
á gervigreindartækni fyrir stjórn geimferða,
áður en hann gekk til liðs við Háskólann í
Reykjavík á síðasta ári.
5 8 | T Ö L V U M Á L
Gervigreind
og geimferðir
Dr. Ari Kristinn Jónsson
deildarforseti Tölvunarfræðideildar Háskólinn í Reykjavík