Tölvumál


Tölvumál - 01.02.2008, Síða 17

Tölvumál - 01.02.2008, Síða 17
T Ö L V U M Á L | 1 7 nokkrar mínútur þar til sólin hvarf. Og ég, sem hefði getað haldið ágætis fyrirlestur og sýnikennslu um gang himintungla, horfðist í augu við að þekking mín risti grunnt þegar að beitingu kom á suðurhveli jarðar. Kenningar um nám og öflug námsumhverfi, hafa verið umhugsunarefni fjölmargra fræðimanna undanfarna áratugi. Athygli hefur smám saman beinst frá einstaklingunum einum sér að samspili þeirra. Etienne Wenger er einn þeirra sem skrifað hefur mikið um nám sem á sér stað innan iðkendahópa [4]. Átt er við nám þar sem einstaklingurinn lærir við að verða smám saman virkur þátttakandi í hópi þeirra sem meira kunna, að starfa við hlið þeirra og við að fá að leggja fram eigin spurningar, eigin lausnir og eigin lausnaleiðir. Og að átta sig á því hvað er mikilvægt, hvernig maður orðar og hvernig maður leitar samhengis. John Seely Brown, sem sjálfur átti ásamt Collins og Duguis upphafið að hugtakinu staðtengt nám [5], segir að hann sjái fyrir sér breytingu á því hvernig tæknin er notuð, frá því að leggja áherslu á að styðja einstaklinginn í því að nýta tæknina til þess að styrkja tengsl milli einstaklinga. Að sjálfsögðu hlýtur slík sýn að hafa áhrif á hugmyndir manna um nám. Ekki bara nám almennt, heldur nám í hvaða námsgrein sem er. Skólar eru meginsetur náms. Hvernig þróaðist UST í skólastarfi? Skoðum aðstæður á Íslandi, en setjum jafnframt í víðtækara samhengi. Athyglinni verður beint að grunnskólanum af tveimur ástæðum. Grunn­ skólinn nær til allra á sama hátt. Og um grunnskólann eru til mun ítar­ legri heimildir hérlendis, varðandi þróun upplýsingatækni, en um fram­ haldsskólann. Fyrir 1980 voru tölvur í íslenskum grunnskólum líklega teljandi á fingrum annarrar handar. Fyrsta námskeið fyrir grunnskólakennara um áhrif tölvutækninnar á nám var hins vegar sumarið 1978. Undirrituð átti frumkvæði að því námskeiði. Tildrögin voru þau að 1972 hafði kandidatsritgerð mín í Danmörku fjallað um nýtingu tölva í stærðfræðinámi 13­18 ára unglinga og þegar liðin voru fimm ár frá þeim skrifum gerðist ég óþolinmóð við að bíða eftir að menntamálaráðuneytið ýtti úr vör fræðslu á þessum vettvangi. Reiknistofnun HÍ og endurmenntunardeild KHÍ voru fúsar til samstarfs og hönnun námskeiðsins hófst. Því var ekki ætlað að vera tækninámskeið, ekki heldur almennt námskeið um nýtingu tækni. Því var ætlað að fjalla um möguleg áhrif tölvutækninnar á nám. Því var ætlað að gefa svör við eftirfarandi spurningum: • Hvernig á ég samskipti við þennan hlut (tölvu) og fæ hann til að hlýða mér? • Hvaða áhrif hafa þessir hlutir (tölvur) í þjóðlífinu og hvernig nýtast þeir? • Hvaða áhrif hefur tilvist þeirra á fræðasviðið mitt og á kennslu innan þess? Ekki þori ég að segja að ég hafi haft væntingar um hvaða þáttur myndi vekja mesta athygli og áhuga kennaranna sem riðu á vaðið í þátttöku námskeiðsins, en hitt er víst að áhugi þeirra reyndist vera í samræmi við röðina hér að ofan. Þeir köstuðu sér yfir BASIC forritun og höfðu gaman af að búa til smáforrit og láta þau framkvæma eitthvert smotterí. Það sem reyndist þeim erfiðast að ræða og að hafa áhuga á var það síðastnefnda. „Já, það var þá“, kunna menn að segja, en það hefur haldið áfram að reynast erfiðast og er umhugsunarefni fræðimanna og forystumanna menntamála um allan heim. Hvers vegna er svo erfitt að sjá og ígrunda hvaða áhrif tilvist UST hefur á eigið fræðasvið og kennslu á því sviði. Tölvueign skóla eykst, nýting í þjóðfélaginu eykst, námskeiðum fjölgar, framboð á efni á tölvutæku formi eykst, nemendur verða leiknari í nýtingu UST og svo mætti lengi telja. En nýtingu UST í námsgreinum þokar enn mjög hægt fram. Bæði á Íslandi og í nágrannalöndum öllum. Það er rétt að ítreka að hér er átt við að nota UST til náms. Ritgerð sem skrifuð er í ritvinnslu eða skyggnuflokkur með myndum úr myndasafni (PP) þarf ekki að vera merki um að UST hafi verið nýtt til náms, aðeins frágangs. Framboð námskeiða um möguleika UST í námi jókst eftir að einkatölvur urðu Hún er frumkvöðull í menntun kennara á sviði upplýsinga tækni og hefur stundað rannsóknir á því sviði um áratuga skeið. Anna var varaformaður Skýrslutæknifélags Íslands þegar það varð 25 ára og er fulltrúi félagsins gagnvart International Federation for Information Processing (IFIP) [11] ásamt því að eiga sæti í menntamálanefnd IFIP. Þá er Anna er meðlimur í öldungadeild SKÝ. Frá því að styðja einstaklinginn í því að nýta tæknina, til þess að styrkja tengsl milli einstaklinga
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.