Tölvumál


Tölvumál - 01.02.2008, Page 26

Tölvumál - 01.02.2008, Page 26
2 6 | T Ö L V U M Á L Þátttökufyrirtækin Rannsóknin nær til íslenskra tæknifyrirtækja sem stofnuð voru árið 2000 eða síðar. Til tæknifyrirtækja teljast þau fyrirtæki sem byggja starfsemi sína á tæknisérþekkingu starfsfólks. Þetta eru því fyrirtæki þar sem fólk með tækniþekkingu sérhæfir sig í rannsóknum, tæknihönnun eða nýsköpun. Flest þeirra fyrirtækja sem taka þátt í rannsókninni tilheyra atvinnugreinaflokkum sem flokkast undir þjónustu og rúmur þriðjungur eru hugbúnaðarfyrirtæki. Ný störf, aukin heildarvelta og talsverð nýsköpun Umsvif fyrirtækjanna sem taka þátt í rannsókninni hafa aukist mikið á síðastliðnum þremur árum. Fjöldi starfa í hópi þátttökufyrirtækja sem eru fimm ára og yngri hefur tvöfaldast á tveimur árum, úr 576 árið 2005 í 1188 árið 2007 (sjá mynd 1). MYND 1. Fjöldi starfa í þeim þátttökufyrirtækjum sem eru, á hverjum tíma, fimm ára og yngri. Þegar stjórnendur eru spurðir um afkomu fyrirtækja sinna kemur í ljós að heildarvelta fyrirtækjanna hefur aukist milli ára hjá um tveimur af þremur fyrirtækjanna. Að meðaltali hefur velta hvers fyrirtækis aukist um 52% á ári síðastliðin þrjú ár. Velta á hvern starfsmann hefur aftur á móti staðið nokkurn veginn í stað og var 9,9 milljónir króna árið 2006. Um 67% fyrir­ tækjanna velta innan við 10 milljónum króna á hvern starfsmann. Taka skal fram að í þessu, eins og í öðrum niðurstöðum sem gerð er grein fyrir hér, er horft á gögn fyrir öll þátttökufyrirtækin í heild og einstök fyrirtæki hafa að sjálfsögðu tekið stórstígum breytingum milli ára. Síðustu þrjú ár hefur um helmingur fyrirtækjanna fengið tekjur erlendis frá. Um 15% fyrirtækjanna hafa fengið meira en helming af veltu sinni að utan (sjá mynd 2). MYND 2. Hlutfall veltu þátttökufyrirtækja sem kom erlendis frá. Staða nýrra tæknifyrirtækja á Íslandi Undanfarin ár hefur Rannsóknarmiðstöð HR í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum staðið að rannsókn á nýjum íslenskum tæknifyrirtækjum. Spurningalisti er lagður fyrir stjórnendur árlega og þannig gefst kjörið tækifæri til þess að greina áhugaverða þróun um stofnun, vöxt og viðgang nýrra íslenskra tæknifyrirtækja. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna meðal annars að stjórnendur líta á skort á hæfu starfsfólki sem helstu ógnunina við afkomu fyrirtækja sinna. Þrátt fyrir það eru þeir bjartsýnir á framtíðina. Dr. Rögnvaldur J. Sæmundsson, Marina Candi og Silja Björk Baldursdóttir hjá Rannsóknarmiðstöð HR í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.