Tölvumál - 01.02.2008, Síða 42
4 2 | T Ö L V U M Á L
Frjáls
og opinn
hugbúnaður
Frjáls hugbúnaður
Hugtakið frjáls hugbúnaður (e. Free Software) á við um hugbúnað sem
varðveitir frelsi notenda. Richard Stallman, upphafsmanni hugtaksins,
ofbauð hversu mikill réttur höfunda og fyrirtækja er í lögum um höfundarétt
eftir að hann vildi betrumbæta hugbúnað í Xerox prentara. Þetta gerðist á
þeim tíma sem útprentun tók langan tíma og betrumbæturnar voru fólgnar
í því að tölvunotendur myndu vita ef prentarinn stíflaðist og gætu lagað
stífluna strax. Stallman hafði áður framkvæmt slíkar breytingar og hafði því
kunnáttuna til þess. Hann hafði alist upp við að vélbúnaðarframleiðendur
væru ánægðir með að notendur gátu gert vélbúnað þeirra nytsamlegri.
Fyrirtæki voru í síauknum mæli farin að taka fyrir athæfi eins og þetta til
þess að vernda hagsmuni sína í stað þess að hugsa um notendur.
Stallman gangsetti GNU verkefnið með það markmið að búa til frjálst
stýrikerfi og í framhaldi af því skilgreindi hann frelsisboðorð fyrir
hugbúnaðarnotendur:
0. Frelsið til þess að nota hugbúnaðinn í hvaða tilgangi sem er
1. Frelsið til þess að skoða hvernig hugbúnaðurinn virkar og aðlaga hann
að sínum þörfum
2. Frelsið til þess að dreifa hugbúnaðinum til þess að hjálpa félögum
sínum
3. Frelsið til þess að bæta hugbúnaðinn og dreifa betrumbótunum til baka
til samfélagsins
Vegna höfundaréttalaga verða framleiðendur hugbúnaðar að gefa
hugbúnaðinn út undir ákveðnu leyfi til þess að gefa notendum þessi frelsi.
Þekktasta leyfið er án efa GNU, General Public License sem er betur þekkt
sem GPL og var upprunalega skrifað af Stallman en í undirbúningi þriðju
útgáfu leyfisins sem kom út nýverið var öllum gefið leyfi til þess að taka
þátt í að varðveita frelsi notenda.
Fjögur frelsi notenda
Frelsi 0 er grundvallarfrelsi alls hugbúnaðar og er ætlað að gefa öllum
mögulegum notendum hugbúnaðarins frelsið til þess að nota hugbúnaðinn
í þeim tilgangi sem hentar þeim sérstaklega. Hugbúnaður sem takmarkar
notagildið á einhvern hátt brýtur frelsi 0. Dæmi um ófrjálsan hugbúnað er
sá sem einungis er leyfilegt að nota á ákveðnu tímabili, í ákveðnum löndum
eða við ákveðnar aðstæður og svo framvegis.
Frelsi 1 er ætlað að tryggja að hugbúnaðurinn geti mætt þörfum allra
notenda. Það er óhugsandi að framleiðandi hugbúnaðarins geti mætt
þörfum allra þeirra sem vilja nota hugbúnaðinn. Það er mikilvægt að þessir
hópar og aðilar geti aðlagað hugbúnaðinn að sínum þörfum án þess að bíða
eftir því að framleiðandi hugbúnaðarins sjái sér hag í því að svara kröfum
þeirra. Aðlögunina geta þeir annaðhvort gert sjálfir eða fengið hvern sem
er til að framkvæma án þess að þurfa að skrifa undir samning þess efnis
að neita að hjálpa öðrum aðilum í svipuðum sporum. Dæmi um aðlaganir
sem mæta þörfum sérstakra aðila eru betra aðgengi fyrir fatlaða. Annað er
til dæmis þýðing á hugbúnaði yfir á mismunandi tungumál, vandamál sem
Íslendingar þekkja vel og nú þegar fólk af erlendu bergi brotið hefur sest
að á Íslandi er eins mikilvægt að það geti notað íslenskan hugbúnað á sínu
móðurmáli. Það er vert að taka það fram að það er nauðsynlegt að hafa
aðgang að frumkóða hugbúnaðarins til þess að geta aðlagað hugbúnaðinn
að sínum þörfum.
Frelsi 2 byggir á því að notendur ættu að geta látið þá sem þurfa á ákveðnum
hugbúnaði að halda fá eintak af hugbúnaðinum. Notendunum er frjálst að
dreifa hugbúnaðinum annaðhvort frítt eða gegn gjaldi eftir því sem passar
þeirra aðstæðum. Frelsið nær til bæði breyttra og upprunalegra útgáfna af
hugbúnaðinum sem og keyranlegra útgáfna og frumkóða hugbúnaðarins. Til
dæmis ættu þeir sem hafa aðlagað hugbúnað að geta látið aðra í svipuðum
aðstæðum fá eintak af aðlöguðu útgáfunni og þeir sem þurfa aðstoð við að
Hugtökin ,,frjáls hugbúnaður” og ,,opinn hugbúnaður” eru oft frjálslega notuð til að lýsa
ákveðinni tegund hugbúnaðar. Í raun er um tvö náskyld en þó ólík hugtök að ræða. Í þessari
grein verður fjallað um bæði hugtökin og í hverju áherslumunurinn liggur.
Tryggvi Björgvinsson
doktorsnemi í tölvunarfræðiskor við verkfræðideild Háskóla Íslands