Tölvumál - 01.02.2008, Síða 56
5 6 | T Ö L V U M Á L
Fyrirlestrar
Hátíðin hófst á fyrirlestrum þeirra dr. Ara K. Jónssonar og dr. Yngva Björns
sonar þar sem þeir lýstu notkun gervigreindartækni á sviðum geimferða
og leikja. Ari, sem er fyrrverandi starfsmaður NASA og nýráðinn forseti
tölvunar fræðideildar HR, sagði frá gervigreind sem hann þróaði fyrir tvo
þjarka sem sendir voru til Mars og báðir þeirra eru enn við störf. Jafnframt
lýsti Ari einu greindasta geimfari sem hefur verið sent út í sólkerfið, Deep
Space One (DS1), en það fór hluta ferðar sinnar í átt að sólu á sjálfstýringu
einni saman. Eitt af því merkilegasta við DS1 er hversu háþróuð sjálfstæð
ákvarðanataka geimfarsins var, en það gat meðal annars komist fyrir galla í
rafhleðslubúnaði sínum með sjálfstæðum ályktunum. Þegar rafmagn flæddi
ekki frá sólarrafhlöðum sem kveikt hafði verið á, ályktaði gervigreindin að
það væri líklega til komið vegna „sambandleysis“ og þess vegna mætti prufa
að „kveikja og slökkva nokkrum sinnum“ til að sjá hvort búnaðurinn myndi
ekki hrökkva í gang. DS1 gerði það og kom þannig rafmagninu af stað.
Dr. Yngvi Björnsson er nýkrýndur heimsmeistari í gervigreind ásamt
meistara nemanum Hilmari Finnssyni en Yngvi er leiðbeinandi hans. Í
haust vann forrit þeirra, CADIAPlayer, heimsmeistarakeppnina í almennri
leikjaspilun (3rd International General GamePlaying competition) og
burstaði þar með Standford, India Institute of Technology og fleiri mæta
háskóla í verðugri viðureign. Keppnin fer þannig fram að 40 mismunandi
leikir eru spilaðir, hver með mismunandi reglum, og verður forritið sjálft að
skilja leikjareglurnar til að geta spilað. Forritin spila síðan gegn hvert öðru
og þau sem vinna flesta af þessum 40 tegundum leikja fá að halda áfram í
útsláttarkeppni. CADIAPlayer keyrir ekki á sérhönnuðum vélbúnaði heldur á
tveimur venjulegum borðtölvum. Árangur Yngva og Hilmars verður að teljast
mjög góður þar sem CADIAPlayer forritið var skrifað á þessu ári, en allir
hinir þátttakendurnir voru að taka þátt í annað eða þriðja sinn.
Þá kynntu þeir dr. Kristinn Andersen frá Marel og Grímur Jónson frá Össuri
vörur sem fyrirtækin hafa nýtt gervigreind í eða eru með áform um að nýta
hana fyrir. Kristinn lýsti vandamálum varðandi stýringu þjarka í verksmiðju
þar sem þjarkarnir þurfa að geta haft samskipti hver við annan til að auka
afköstin við framleiðsluna og bregðast við óvæntum uppákomum. Grímur
sagði frá gervigreind þeirri sem Össur hefur þegar þróað fyrir gervihné sín
en fyrirtækið hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir þá þróun. Meðal annars
hafa vörur þeirra tvisvar verið taldar til 100 merkustu uppfinninga ársins af
bandarískla tímaritinu Popular Science. Augljóst var að hátíðargestir höfðu
sérstaklega mikinn áhuga á tækni Össurar og eftir fyrirlesturinn komust
færri að en vildu með spurningar.
Setrið
Þá var haldin stutt kynning á Gervigreindarsetri HR, en setrið var stofnað vorið
2005. Markmið Gervigreindarsetursins er þrískipt: Að stunda rannsóknir í
fremstu röð á sviði gervigreindar og vitvísinda í alþjóðarannsóknarsamfélagi;
að víkka sjóndeildarhring nemenda á öllum námsstigum, með því að
bjóða þeim þátttöku í framsæknum rannsóknarverkefnum; og að stuðla
að notkun gervigreindar í iðnaði og þjóðfélaginu. Setrið hefur hlotið fjölda
samkeppnisstyrkja, bæði erlenda og innlenda, og starfa að meðaltali 15
20 nemendur við rannsóknir á setrinu á hverjum tíma. Fastir starfsmenn
Gervigreindarseturs
Háskólans í Reykjavík
Gervigreindarhátíð
Þann 13. október síðastliðinn var haldin Gervigreindarhátíð Gervigreindarseturs Háskólans
í Reykjavík, annað árið í röð. Á hátíðinni, sem er opin öllum án endurgjalds, var boðið uppá
fjölbreytta dagskrá þar sem gervigreind var í aðalhlutverki, hvort sem er í geimnum eða á
jörðu. Veitt voru verðlaun í Gervigreindarkeppninni og ýmis samtök, fyrirtæki og stofnanir
sýndu vörur og verkefni tengdum gervigreind. Um 200 manns komu á hátíðina sem haldin
var í Borgarleikhúsinu og stóð frá kl. 13:00 til 17:30.
Veitt voru verðlaun í
Gervigreindarkeppninni og ýmis
samtök, fyrirtæki og stofnanir
sýndu vörur og verkefni
tengdum gervigreind
Vinnningshafar í Gervigreindarkeppninni. Frá vinstri: Hrafn Þorri Þórisson,
Freyr Magnússon, Ágúst Karlsson, Kristleifur Daðason, Jónheiður Ísleifs-
dóttir og Guðný R. Jónsdóttir.
Dr. Kristinn R. Þórisson
dósent við Háskólann í Reykjavík