Tölvumál - 01.02.2008, Page 74
7 4 | T Ö L V U M Á L
Stiklað á stóru í sögu Ský
Tölvubyltingin byrjar á Íslandi. Fyrstu tölvunni er skipað á land 5. október 1964
en það var IBM 1401 tölva sem sett var upp hjá Skýrr í desember 1964. Í
samstæðunni voru 3 vélar, IBM 1401 miðeining með 4000 stafa vinnsluminni, IBM
1402 Spjaldalesari/gatari og IBM 1403 prentari. Skv. Paul White, http://www2.
netdoor.com/~pwhite/1401.html, var tifhraðinn 0,086 mHz mældur á nútíma
mælikvarða.
Þórhallur M. Einarsson tæknimaður hjá IBM, Ragnar Ingimarsson
verkfræðingur, Helgi Sigvaldason verkfræðingur, Oddur Benediktsson
verkfræðingur og Magnús Magnússon prófessor við rafreikninn sem
kominn er á sinn stað í Raunvísindastofnun í desember 1964.
Þessi mynd er frá 20 ára afmælishátíð Skýrslutæknifélagsins 1988 en efnt var
til Spástefnu að því tilefni þar sem umfjöllunarefnið var þróun tölvunotkunar og
áhrif hennar á störf og þjóðlíf. Frá stofnun hefur Skýrslutæknifélagið lagt áherslu
á áhugaverða hádegisverðarfundi og ráðstefnur. Undanfarinn áratug hefur félagið
staðið fyrir 117 atburðum um ýmis mál tengd upplýsinga- og fjarskiptatækni.