Jón á Bægisá - 01.11.2008, Side 19
Þýðingar Kristmanns Guðmundssonar ogjóns Thoroddsens d Lady Chatterley’s Lover
hann sagður heilbrigður; en neðri hluti líkamans var lamaður, allt
frá mitti. (9)
Hér er einnig eitt af mörgum dæmum um orð-fyrir-orð þýðingu Jóns þar
sem merking setningarinnar er líka eitthvað á reiki:
■ I’d be ashamed to see a woman walking round with my name-label on
her, address and railway station, like a wardrobe trunk. (33)
■ Jón: Eg myndi skammast mín fyrir að sjá konu með nafnspjald mitt á
sér, heimilisfang og járnbrautarstöð, eins og fatakistu. (38)
■ Kristmann: Mér þætti skömm að því að flækjast um allt með konu í
farangri mínum, eins og merkta handtösku! (32)
Hér á eftir kemur annað dæmi um orð-fyrir-orð þýðingu Jóns, en í enda text-
ans er svo ein setning þar sem þýðingar Jóns og Kristmanns eru eins ólíkar
og hugsast getur. Hvor sé „rétt“ er kannski erfitt að segja til um, en hér er að
minnsta kosti um áhugavert misræmi eða mismunandi túlkanir að ræða:
■ He led her through the wall of prickly trees, that were difficult to come
through, to a place where was a little space and a pile of dead boughs.
He threw one or two dry owns down put his coat and waistcoat over
them and she had to lie down there under the boughs of the tree like
an animal while he waited standing there in his shirt and breeches,
watching her with haunted eyes. But still he was provident he made
her lie properly.
■ Jón: Hann leiddi hana gegnum vegg af stingandi trjám, sem erfitt var
að komast í gegnum, að stað þar sem var örlítið svigrúm og hrúga af
visnuðum greinum. Hann kastaði einni eða tveim þurrum greinum
á jörðina, breiddi jakkann sinn og vestið yfir, og hún varð að leggjast
niður undir trén, eins og dýr, meðan hann beið, standandi þarna á
skyrtunni og hnébuxunum og horfði á hana ófreskum augum. En þó
var hann aðgætinn - hann lét hana liggja þannig að vel fór um hana.
■ Kristmann: Hann leiddi hana gegnum kjarrið, þangað til þau komu í
ofurlítið rjóður, þar sem jörðin var þakin visnum greinum. Hann lagði
jakkann sinn og vestið á jörðina, og þarna varð hún að leggjast, eins og
hvert annað dýr, meðan hann stóð yfir henni, snöggklæddur, og lagaði
hana til, svo að hún lægi eins og honum líkaði bezt.
d . jO/'/yshá — Að geta sagt „shit“ fyrir framan dömu
17