Jón á Bægisá - 01.11.2008, Síða 51
Magnús Asgeir Blómjurt, skrauti svipt? Um kvœðaþýðingar Vestur-Islendinga
þriggja, Einars Hjörleifssonar, Jóns Ólafssonar og Gests Pálssonar. Fimm
árum síðar gaf hann út bókina Canadian Overtones. I henni eru þýðingar
á kvæðum sjö þjóðabrota sem sest höfðu að í Ameríku og ort á móðurmál-
inu. Þar eru þýðingar á kvæðum eftir 15 vesturíslensk skáld.
Vilhjálmur Stefánsson (1879—1965) er einn hinna fyrstu meðal Vest-
ur-Islendinga sem þýddi íslensk kvæði á ensku. Auk þess frumorti hann
talsvert á ensku á yngri árum. I æsku ætlaði hann sér að verða stórskáld en
hætti við þau áform um svipað leyti og hann var rekinn úr háskólanum í
Grand Forks vegna óhlýðni við skólareglur. Þá tók hann aðra stefnu í líf-
inu og varð heimsfrægur könnuður heimsskautasvæðanna. Einungis fáar
þýðingar eftir Vilhjálm birtust, allar frá æskuárum hans. I tímaritinu Poet
Lore, sem gefið var út í Boston, birtust árið 1904 tvær greinar eftir Vilhjálm
um sögu íslenskrar kvæðagerðar og um íslenskar samtímabókmenntir og
þeim fylgja þýðingar hans á íslenskum kvæðum og einnig þýðingar eftir
Disney Leith og Bayard Taylor.
I fyrri greininni, „The Newer Literature of Iceland,, rekur hann ágrip
af sögu íslensks kveðskapar frá upphafi til samtímans. Þar kemur fram
góð þekking hans á íslenskum bókmenntum. Honum er kunnugt um að
heimsafrægir listamenn, Shakespeare, Richard Wagner og William Morr-
is, byggja skáldverk sín á norrænum fornbókmenntum. Hann skýrir frá
Eddunum, sálmum séra Hallgríms og rímnakveðskap. Hann þekkir líka
þýðingar á íslenskum bókmenntum á erlend mál. Einnig minnist hann
á kvæðaþýðingar Islendinga úr latínu, grísku, þýsku, ensku, frönsku og
skandinavískum málum og getur Jóns Þorlákssonar sérstaklega. Vilhjálm-
ur þekkir líka til þeirra erlendu fræðimanna sem þallað hafa um íslenskan
kveðskap fyrr og síðar.
Vilhjálmur orti hin ensku kvæði sín án Ijóðstafa. Flestar ensku þýð-
inganna úr íslensku hefur hann líka án ljóðstafa enda telur hann þá ekki
henta ensku kvæðasniði. Þetta er þaulhugsuð niðurstaða Vilhjálms. 1 skrif-
um sínum um bókmenntir Islendinga telur hann nauðsynlegt að útskýra
þetta vandamál þýðandans fyrir enskumælandi lesendum. Þegar hann
íjallar um rímurnar, kemst hann að raun um að ekki er vinnandi vegur að
færa rímur yfir á ensku. En til þess að skýra þessa kveðskapartegund yrkir
hann á ensku vísur undir tveimur rímnaháttum, braghendu og oddhendri
langhendu, með ljóðstöfum og dýru rími. Hann tekur fram að vísurnar
séu bull og vitleysa. Hann hafi gripið til þessa ráðs eftir margar árangurs-
lausar tilraunir til að þýða raunveruleg rímnaerindi á ensku. Vísnadæmi
Vilhjálms eru þessi (leturbr. Vilhjálms):
When they came to catch the hens and count the chickens,
Little Sue and Sammy Dickens
& — AÐ GETA SAGT „SHIT FYRIR FRAMAN DÖMU
49