Jón á Bægisá - 01.11.2008, Síða 61
Blómjurt, skrauti svipt? Um kvœðaþýðingar Vestur-Islendinga
mest í enskum þýðingum enda er hún tvítyngd. Fleiri Vestur-íslendingar
af þessari kynslóð þýddu á ensku og úr þeim röðum skulu þessir nefndir:
Christopher Johnston (Kristófer Níelsson) (1880-1927). Bogi Bjarnason
(1888-1977), bróðir Páls Bjarnasonar, Walter Jakobsson Lindal (1887-1976),
Hólmfríður Daníelson og Caroline Gunnarson (1903—?) sem þýddi ljóð
skálda frá síðara hluta tuttugustu aldar, m.a. ljóð eftir Stein Steinar, Einar
Braga og Hannes Pétursson
Arið 1930 gaf Þórhallur Bjarnarson í Reykjavík út bókina Icelandic
Lyrics. Originals and Translations. Þetta er vegleg bók og vönduð að öll-
um frágangi. Kvæðatextarnir eru birtir bæði á íslensku og ensku og mun
þetta vera fyrsta bókin af því tagi sem gefin er út á Islandi.18 Richard Beck
valdi þýðingarnar og bjó undir prentun. Hér eru 80 kvæði eftir 30 skáld
frá hundrað ára tímabili fyrir útgáfu bókarinnar. I þeim hópi eru 6 vest-
uríslensk skáld auk Winnipeg-ritstjóranna þriggja, Einars, Jóns og Gests.
Þýðendur eru 12 að tölu og allir Vestur-Islendingar nema þeir Eiríkur
Magnússon og William Craigie. Þýðingarnar eru ærið misjafnar að gæð-
um en þarna má glöggt sjá hversu skerfur Vestur-Islendinga var stór í ensk-
um þýðingum á íslenskum kvæðum; slík bók var á þessum tíma óhugsandi
án tilverknaðar þeirra. Flestir þýðendanna eru ýmist fæddir vestanhafs eða
höfðu flust þangað á unga aldri, semsagt önnur kynslóðin. Þau uxu úr
grasi með íslenskuna að móðurmáli en í málumhverfi enskunnar.
Nokkrir af landnámskynslóðinni, sem ólst upp á Islandi, fengust svo-
lítið við enskar þýðingar. Eftir Stefán G. er ein ensk þýðing sem hann gerði
að gefnu tilefni. Honum var gefið drykkjarhorn sem á var letruð 5. vísan úr
„Sigurdrífumálum“ Stefán þýddi vísuna á ensku því að hann bjóst við að
þurfa að segja enskumælandi kunningjum hvað á horninu stæði. Þýðingin
er ekki nákvæm en Stefán lætur ljóðstafina ekki vanta:
Bjór færi eg þér,
brynþings apaldur,
magni blandinn
og megintíri;
fullur er hann ljóða
og líknstafa,
góðra galdra
og gamanrúna.
Beer I bring you
Bold warrior
Brewage of good helth
And great honor.
Fraught with sounding songs
Sorcery of kindness
Magic of friendliness
And mirthful tokens.
Aðrir úr landnemahópnum sem
fengust nokkuð við enskar þýðing-
18 Tvímálaútgáfa með þýðingu Bjarna frá Vogi á nokkrum norskum kvæðum hafði komið
út í Osló 1911.
d .&/ydsá - Að geta sagt „shit“ fyrir framan dömu
59