Bændablaðið - 03.12.2015, Side 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Málgagn bænda og landsbyggðar
Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði.
Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu.
Árgangurinn kostar kr. 7.500 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.750. Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands.
Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300– Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339
Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is
Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is
Auglýsingastjóri: Auður Laila Jónasdóttir audur@bondi.is – Sími: 563 0303 – Frágangur fyrir prentun: Prentsnið.
Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is
Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621
LEIÐARINN
Miklar vonir hafa verið bundnar
við að samstaða náist meðal þjóða
heims á loftslagsráðstefnunni í
París. Það snýst þó ekki bara um
loftmengunina sem slíka, heldur
ekki síður afleiðingar hlýnunar
lofthjúpsins eins og fæðuskort.
Málið er grafalvarlegt og á ráð-
stefnunni í París hefur það komið
berlega í ljós að það er einmitt
vatns- og fæðuskortur sem er nú
talin meginorsök uppgangs hryðju-
verkahópa á borð við Boko Haram í
Afríku, ISIL í Írak og Sýrlandi ásamt
al-Qaeda. Þeir hafa allir komið
fram opinberlega undir merkjum
súnní-múslima en tilheyra þó grein
bókstafstrúar Vahabíta. Þess má
geta að Vahabítismi er opinber trú
í Sádi-Arabíu. Hryðjuverkasveitir
af þessum stofni hafa hrakið millj-
ónir manna á flótta, ekki síst sjía-
-múslima og kristna íbúa.
World Food Programme (WFP)
og Matvæla- og landbúnaðarstofn-
un Sameinuðu þjóðanna (FAO) telja
að um 8,2 milljónir manna þarfnist
aðstoðar í Írak, þar af eru 4,4 millj-
ónir sem þurfa mikla matvælaað-
stoð. Í þeim hópi eru um 250 þús-
und flóttamenn frá Sýrlandi.
Orsökin fyrir vandanum í Írak
og Sýrlandi er ekki bara vopnaskak,
heldur uppþurrkun stórra svæða í
kringum Tigris-vatnasvæðið í
gömlu Mesópótamíu, vegna raf-
orkuframleiðslu og áveitufram-
kvæmda. Er grunnvatnsstaða á
þessum svæðum nú orðin hættu-
lega lág. Það þýðir að öll ræktun,
landbúnaður og þar með mat-
vælaframleiðsla dregst gríðarlega
saman og íbúarnir fara á vergang.
Hlýnun jarðar hefur hraðað þessari
þróun verulega. Sama má segja um
þau svæði í Afríku þar sem hryðju-
verkasveitir ganga á lagið hjá svelt-
andi fólki sem liggur vel við höggi.
Á liðnum árum hafa fjölmargir
erlendir fyrirlesarar með mikla
reynslu komið hingað til lands
til að fjalla um fæðuöryggi. Allir
hafa sagt það sama; standið vörð
um fæðuöryggi ykkar. Án þess
getur illa farið. Heilbrigðisstofnun
Sameinuðu þjóðanna (World Health
Organization) leggur líka mikla
áherslu á þetta.
Samkvæmt pólitískum trúar-
skoðunum harðlífisskríbenta á
samfélagsmiðlunum að undanförnu
mætti ætla að áhyggjur erlendra
sérfræðinga, stjórnmálamanna og
alþjóðastofnana séu allar ættaðar úr
smiðju „ríkisstyrkts“ Bændablaðs.
Einnig hefur verið fullyrt að hundr-
uð milljóna af opinberu fé renni í
þann rekstur. Hvernig væri að
þetta ágæta fólk kíkti í heimsókn
og aflaði sér betri upplýsinga um
starfsemi Bændablaðsins, áður en
það kokgleypir „sannleikann“ sem
kokkaður hefur verið upp af örgum
prófessor í hagfræði á liðnum árum?
/HKr.
LOKAORÐIN
Starfsskilyrði landbúnaðar í nútíð og framtíð
Samningaviðræður um nýja búvörusamninga
milli ríkis og bænda hafa nú staðið frá því í
septemberbyrjun.
Undanfarnar vikur hefur verið fundað stíft til þess
að ná saman um meginlínur búgreinasamninganna,
en rammasamningur hefur setið á hakanum á
meðan. Í þeim tillögum felast miklar breytingar á
samningunum frá því sem nú er. Fulltrúar bænda
lögðu á það áherslu að kynna þær meginlínur
meðal bænda til að fá viðbrögð þeirra áður en
samningar yrðu kláraðir. Kynningarfundirnir nú
kynntu meginlínur sem aðilar hafa náð saman um
en umræður um fjárhæðir eru ekki hafnar.
Fundað með bændum
Í síðustu viku stóðu Bændasamtökin fyrir
fjórum almennum bændafundum auk þess
sem Landssamband kúabænda, Samband
garðyrkjubænda og Landssamtök sauðfjárbænda
funduðu með fulltrúum sinna búgreina um málið.
Miklar umræður voru á öllum þessum fundum og
þótt ekki séu allir á eitt sáttir um þær tillögur sem
kynntar voru, voru umræður mjög málefnalegar og
því gagnlegar fyrir fulltrúa bænda í samninganefnd
upp á framhaldið.
Fulltrúar bænda komu til viðræðna nestað-
ir ályktunum frá Búnaðarþingi og aðalfundum
búgreinafélaga. Óhætt er að segja að þær hug-
myndir hafi ekki í öllum tilfellum samrýmst áhersl-
um ríkisins, sem lagði til ýmsar hugmyndir að
breytingum. Hvað sem því líður þá voru á fundun-
um kynntar meginlínur samninga sem fulltrúar
beggja aðila voru sammála um.
Rætt um samning til tíu ára
Þær tillögur snúast í hnotskurn um að gera langan
breytingasamning sem í lok samningstímans verð-
ur laus við marga ágalla núverandi samninga.
Áherslan er því að hlúa að starfsskilyrðum þeirra
sem ætla sér að stunda búskap eða að koma nýir
inn í greinina í framtíðinni án þess að kollvarpa
áformum þeirra sem huga að búskaparlokum á allra
næstu árum. Vegna þeirra breytinga sem lagðar
eru til verður samningurinn til 10 ára með tveimur
föstum endurskoðunum, annars vegar árið 2019 og
hins vegar árið 2023.
Lagt er til að greiðslumark sem gengur kaupum
og sölum hverfi á samningstímanum. Kvótakerfi í
mjólk verði aflagt um miðbik samningsins og eitt
verð verði greitt fyrir alla mjólk, hvort sem hún
fer á innanlandsmarkað eða til útflutnings. Fram
að aflagningu kvótans verði heildargreiðslumark í
mjólk fryst og framsal á kvóta milli aðila bannað.
Þess í stað hafi ríkið innlausnarskyldu á kvóta
hjá þeim sem hyggjast hætta mjólkurframleiðslu.
Hlutfall þeirra stuðningsgreiðslna sem greiddar
hafa verið á hvern lítra mjólkur sem framleiddur
hefur verið innan kvóta verður lækkað og aukin
hlutdeild greidd út á alla mjólk sem kemur í afurða-
stöð. Lagðar eru til breytingar á því verðlagningar-
kerfi sem hefur verið við lýði og að tekinn verði
upp stuðningur við framleiðslu á nautakjöti í bestu
gæðaflokkum.
Beingreiðslur á hvert ærgildi í sauðfjárrækt
minnka ár hvert fram á miðjan samningstímann
uns frjálst framsal þeirra verður bannað, ásetn-
ingsskylda aflögð og greiðslumark í framhaldinu
aflagt í þrepum. Nýtt átaksverkefni, „Aukið virði
sauðfjárafurða“, verði tekið upp í sauðfjársamningi.
Markmið þess er að auka virði sauðfjárafurða með
því að standa sameiginlega að markaðssetningu
þeirra afurða undir einu merki á erlendum hágæða
mörkuðum og til erlendra gesta hér á landi.
Í samningunum er einnig lagt til að hluta fjár-
muna sé varið til fjárfestinga. Þar er áhersla á stuðn-
ing við nýframkvæmdir, breytingar á eldri húsum
og bættan aðbúnað gripa. Enn fremur eru tillögur
um að auka fjármuni í jarðræktarsjóð til að styðja
við endurræktun túna, kornrækt og grænfóður.
Gripagreiðslur verða teknar upp í sauðfjárrækt og
hlutfall þeirra aukið í nautgriparækt umfram það
sem verið hefur.
Ekki miklar breytingar varðandi garðyrkjuna
Nokkur sátt hefur verið um garðyrkjusamninginn
og því eru ekki lagðar til miklar breytingar á
honum. Þó er lagt til að niðurgreiðslur á flutningi
og dreifingu raforku verði færðar inn í samninginn
til að auka gegnsæi þeirra og fyrirsjáanleika. Aðilar
eru sammála um að láta skoða umfang tollverndar
í útiræktuðu grænmeti og meta möguleika á afnámi
þeirrar tollverndar gegn annars konar stuðningi.
Tillögur í þessa veru muni verða tilbúnar við
endurskoðun samnings 2019.
Miklar umræður sköpuðust um þessar
meginlínur á fundum með bændum í seinustu viku.
420 manns mættu á almennu bændafundina fjóra.
Að hinum fundunum meðtöldum komu um 600
bændur til samráðs um þessi mál.
Nautgripabændur óttast verðfall
Áhyggjur í nautgriparæktinni voru fyrst og fremst
af því að breytingar myndu leiða til aukinnar
framleiðslu og verðfalls í framhaldinu. Ástandið
á mörkuðum í Evrópu um þessar mundir hafði
óneitanlega áhrif á umræðuna þó að þar komi fleiri
áhrifaþættir til en afnám kvótakerfis innan ESB.
En margir lögðu áherslu á að það þyrftu að vera
fyrir hendi virk stjórntæki til að bregðast við ef
aðstæður þróast með neikvæðum hætti hér heima.
Margir þeirra sem lýstu áhyggjum af áhrifum nýs
fyrirkomulags voru þó ekki ánægðir með núverandi
kerfi, en vildu frekar leita leiða til að lagfæra það
eða skoða aðrar útfærslur.
Sauðfjárbændur lýsa áhyggjum
Í sauðfjárræktinni var sömuleiðis lýst áhyggjum
af framleiðsluhvata tillagnanna, en einnig komu
fram jákvæð viðbrögð með að til stæði að leggja
af stuðning sem gengur kaupum og sölum og þá
aðgangshindrun sem í því felst. Talsverð umræða
varð um útfærslu á landnýtingarþætti gæðastýr-
ingar í ljósi þess að ætlunin er að auka vægi hennar.
Miklu skipti að forsendur að baki væru skýrar og
gagnsæjar og traust ríkti á milli aðila. Margir vildu
efla byggðalega þætti samningsins og sækja aukið
fjármagn til þeirra verkefna og til að auðvelda
aðlögun að breytingunum.
Það var mikilvægt fyrir fulltrúa bænda í samn-
inganefnd að heyra viðhorf þeirra fjölmörgu sem
sóttu fundina og áhyggjur þeirra eru skiljanlegar
enda verið að leggja upp með miklar breytingar.
Næsta skref er að fara yfir þær ábendingar sem
fram komu og leita lausna. Það er ætlunin að setja
ýmsa varnagla, en meining er að gera breytinga-
samning til að bregðast við göllum núverandi
kerfis og nýta tækifæri framtíðarinnar. Markmiðið
er að bændur nútíðarinnar geri samning sem skapi
aðstæður fyrir bændur framtíðarinnar til að sækja
fram og efla íslenskan landbúnað enn frekar.
/ SSS
Sannleikurinn er sár
Jólin
nálgast
Þótt margir bölvi snjónum ýtir hann þó óneitanlega
undir ljómann af jólaljósunum sem fólk keppist nú
við að setja upp um allt land. Þetta fallega upplýsta
Mynd / HKr.