Bændablaðið - 03.12.2015, Síða 6

Bændablaðið - 03.12.2015, Síða 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015 Málgagn bænda og landsbyggðar Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu. Árgangurinn kostar kr. 7.500 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.750. Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300– Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Auglýsingastjóri: Auður Laila Jónasdóttir audur@bondi.is – Sími: 563 0303 – Frágangur fyrir prentun: Prentsnið. Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621 LEIÐARINN Miklar vonir hafa verið bundnar við að samstaða náist meðal þjóða heims á loftslagsráðstefnunni í París. Það snýst þó ekki bara um loftmengunina sem slíka, heldur ekki síður afleiðingar hlýnunar lofthjúpsins eins og fæðuskort. Málið er grafalvarlegt og á ráð- stefnunni í París hefur það komið berlega í ljós að það er einmitt vatns- og fæðuskortur sem er nú talin meginorsök uppgangs hryðju- verkahópa á borð við Boko Haram í Afríku, ISIL í Írak og Sýrlandi ásamt al-Qaeda. Þeir hafa allir komið fram opinberlega undir merkjum súnní-múslima en tilheyra þó grein bókstafstrúar Vahabíta. Þess má geta að Vahabítismi er opinber trú í Sádi-Arabíu. Hryðjuverkasveitir af þessum stofni hafa hrakið millj- ónir manna á flótta, ekki síst sjía- -múslima og kristna íbúa. World Food Programme (WFP) og Matvæla- og landbúnaðarstofn- un Sameinuðu þjóðanna (FAO) telja að um 8,2 milljónir manna þarfnist aðstoðar í Írak, þar af eru 4,4 millj- ónir sem þurfa mikla matvælaað- stoð. Í þeim hópi eru um 250 þús- und flóttamenn frá Sýrlandi. Orsökin fyrir vandanum í Írak og Sýrlandi er ekki bara vopnaskak, heldur uppþurrkun stórra svæða í kringum Tigris-vatnasvæðið í gömlu Mesópótamíu, vegna raf- orkuframleiðslu og áveitufram- kvæmda. Er grunnvatnsstaða á þessum svæðum nú orðin hættu- lega lág. Það þýðir að öll ræktun, landbúnaður og þar með mat- vælaframleiðsla dregst gríðarlega saman og íbúarnir fara á vergang. Hlýnun jarðar hefur hraðað þessari þróun verulega. Sama má segja um þau svæði í Afríku þar sem hryðju- verkasveitir ganga á lagið hjá svelt- andi fólki sem liggur vel við höggi. Á liðnum árum hafa fjölmargir erlendir fyrirlesarar með mikla reynslu komið hingað til lands til að fjalla um fæðuöryggi. Allir hafa sagt það sama; standið vörð um fæðuöryggi ykkar. Án þess getur illa farið. Heilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna (World Health Organization) leggur líka mikla áherslu á þetta. Samkvæmt pólitískum trúar- skoðunum harðlífisskríbenta á samfélagsmiðlunum að undanförnu mætti ætla að áhyggjur erlendra sérfræðinga, stjórnmálamanna og alþjóðastofnana séu allar ættaðar úr smiðju „ríkisstyrkts“ Bændablaðs. Einnig hefur verið fullyrt að hundr- uð milljóna af opinberu fé renni í þann rekstur. Hvernig væri að þetta ágæta fólk kíkti í heimsókn og aflaði sér betri upplýsinga um starfsemi Bændablaðsins, áður en það kokgleypir „sannleikann“ sem kokkaður hefur verið upp af örgum prófessor í hagfræði á liðnum árum? /HKr. LOKAORÐIN Starfsskilyrði landbúnaðar í nútíð og framtíð Samningaviðræður um nýja búvörusamninga milli ríkis og bænda hafa nú staðið frá því í septemberbyrjun. Undanfarnar vikur hefur verið fundað stíft til þess að ná saman um meginlínur búgreinasamninganna, en rammasamningur hefur setið á hakanum á meðan. Í þeim tillögum felast miklar breytingar á samningunum frá því sem nú er. Fulltrúar bænda lögðu á það áherslu að kynna þær meginlínur meðal bænda til að fá viðbrögð þeirra áður en samningar yrðu kláraðir. Kynningarfundirnir nú kynntu meginlínur sem aðilar hafa náð saman um en umræður um fjárhæðir eru ekki hafnar. Fundað með bændum Í síðustu viku stóðu Bændasamtökin fyrir fjórum almennum bændafundum auk þess sem Landssamband kúabænda, Samband garðyrkjubænda og Landssamtök sauðfjárbænda funduðu með fulltrúum sinna búgreina um málið. Miklar umræður voru á öllum þessum fundum og þótt ekki séu allir á eitt sáttir um þær tillögur sem kynntar voru, voru umræður mjög málefnalegar og því gagnlegar fyrir fulltrúa bænda í samninganefnd upp á framhaldið. Fulltrúar bænda komu til viðræðna nestað- ir ályktunum frá Búnaðarþingi og aðalfundum búgreinafélaga. Óhætt er að segja að þær hug- myndir hafi ekki í öllum tilfellum samrýmst áhersl- um ríkisins, sem lagði til ýmsar hugmyndir að breytingum. Hvað sem því líður þá voru á fundun- um kynntar meginlínur samninga sem fulltrúar beggja aðila voru sammála um. Rætt um samning til tíu ára Þær tillögur snúast í hnotskurn um að gera langan breytingasamning sem í lok samningstímans verð- ur laus við marga ágalla núverandi samninga. Áherslan er því að hlúa að starfsskilyrðum þeirra sem ætla sér að stunda búskap eða að koma nýir inn í greinina í framtíðinni án þess að kollvarpa áformum þeirra sem huga að búskaparlokum á allra næstu árum. Vegna þeirra breytinga sem lagðar eru til verður samningurinn til 10 ára með tveimur föstum endurskoðunum, annars vegar árið 2019 og hins vegar árið 2023. Lagt er til að greiðslumark sem gengur kaupum og sölum hverfi á samningstímanum. Kvótakerfi í mjólk verði aflagt um miðbik samningsins og eitt verð verði greitt fyrir alla mjólk, hvort sem hún fer á innanlandsmarkað eða til útflutnings. Fram að aflagningu kvótans verði heildargreiðslumark í mjólk fryst og framsal á kvóta milli aðila bannað. Þess í stað hafi ríkið innlausnarskyldu á kvóta hjá þeim sem hyggjast hætta mjólkurframleiðslu. Hlutfall þeirra stuðningsgreiðslna sem greiddar hafa verið á hvern lítra mjólkur sem framleiddur hefur verið innan kvóta verður lækkað og aukin hlutdeild greidd út á alla mjólk sem kemur í afurða- stöð. Lagðar eru til breytingar á því verðlagningar- kerfi sem hefur verið við lýði og að tekinn verði upp stuðningur við framleiðslu á nautakjöti í bestu gæðaflokkum. Beingreiðslur á hvert ærgildi í sauðfjárrækt minnka ár hvert fram á miðjan samningstímann uns frjálst framsal þeirra verður bannað, ásetn- ingsskylda aflögð og greiðslumark í framhaldinu aflagt í þrepum. Nýtt átaksverkefni, „Aukið virði sauðfjárafurða“, verði tekið upp í sauðfjársamningi. Markmið þess er að auka virði sauðfjárafurða með því að standa sameiginlega að markaðssetningu þeirra afurða undir einu merki á erlendum hágæða mörkuðum og til erlendra gesta hér á landi. Í samningunum er einnig lagt til að hluta fjár- muna sé varið til fjárfestinga. Þar er áhersla á stuðn- ing við nýframkvæmdir, breytingar á eldri húsum og bættan aðbúnað gripa. Enn fremur eru tillögur um að auka fjármuni í jarðræktarsjóð til að styðja við endurræktun túna, kornrækt og grænfóður. Gripagreiðslur verða teknar upp í sauðfjárrækt og hlutfall þeirra aukið í nautgriparækt umfram það sem verið hefur. Ekki miklar breytingar varðandi garðyrkjuna Nokkur sátt hefur verið um garðyrkjusamninginn og því eru ekki lagðar til miklar breytingar á honum. Þó er lagt til að niðurgreiðslur á flutningi og dreifingu raforku verði færðar inn í samninginn til að auka gegnsæi þeirra og fyrirsjáanleika. Aðilar eru sammála um að láta skoða umfang tollverndar í útiræktuðu grænmeti og meta möguleika á afnámi þeirrar tollverndar gegn annars konar stuðningi. Tillögur í þessa veru muni verða tilbúnar við endurskoðun samnings 2019. Miklar umræður sköpuðust um þessar meginlínur á fundum með bændum í seinustu viku. 420 manns mættu á almennu bændafundina fjóra. Að hinum fundunum meðtöldum komu um 600 bændur til samráðs um þessi mál. Nautgripabændur óttast verðfall Áhyggjur í nautgriparæktinni voru fyrst og fremst af því að breytingar myndu leiða til aukinnar framleiðslu og verðfalls í framhaldinu. Ástandið á mörkuðum í Evrópu um þessar mundir hafði óneitanlega áhrif á umræðuna þó að þar komi fleiri áhrifaþættir til en afnám kvótakerfis innan ESB. En margir lögðu áherslu á að það þyrftu að vera fyrir hendi virk stjórntæki til að bregðast við ef aðstæður þróast með neikvæðum hætti hér heima. Margir þeirra sem lýstu áhyggjum af áhrifum nýs fyrirkomulags voru þó ekki ánægðir með núverandi kerfi, en vildu frekar leita leiða til að lagfæra það eða skoða aðrar útfærslur. Sauðfjárbændur lýsa áhyggjum Í sauðfjárræktinni var sömuleiðis lýst áhyggjum af framleiðsluhvata tillagnanna, en einnig komu fram jákvæð viðbrögð með að til stæði að leggja af stuðning sem gengur kaupum og sölum og þá aðgangshindrun sem í því felst. Talsverð umræða varð um útfærslu á landnýtingarþætti gæðastýr- ingar í ljósi þess að ætlunin er að auka vægi hennar. Miklu skipti að forsendur að baki væru skýrar og gagnsæjar og traust ríkti á milli aðila. Margir vildu efla byggðalega þætti samningsins og sækja aukið fjármagn til þeirra verkefna og til að auðvelda aðlögun að breytingunum. Það var mikilvægt fyrir fulltrúa bænda í samn- inganefnd að heyra viðhorf þeirra fjölmörgu sem sóttu fundina og áhyggjur þeirra eru skiljanlegar enda verið að leggja upp með miklar breytingar. Næsta skref er að fara yfir þær ábendingar sem fram komu og leita lausna. Það er ætlunin að setja ýmsa varnagla, en meining er að gera breytinga- samning til að bregðast við göllum núverandi kerfis og nýta tækifæri framtíðarinnar. Markmiðið er að bændur nútíðarinnar geri samning sem skapi aðstæður fyrir bændur framtíðarinnar til að sækja fram og efla íslenskan landbúnað enn frekar. / SSS Sannleikurinn er sár Jólin nálgast Þótt margir bölvi snjónum ýtir hann þó óneitanlega undir ljómann af jólaljósunum sem fólk keppist nú við að setja upp um allt land. Þetta fallega upplýsta Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.