Bændablaðið - 03.12.2015, Page 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
að fer vel á því að halda
áfram „Hrútadags-
kveðskap“ frá Raufar-
höfn sem fluttur var þann
3. okt. sl. Eimur reykkofanna er
brátt úr vitum, en við tekur hin
eina sanna hrútalykt sem yfir-
tekur allan húsaþef. Brundtíð er
gengin í garð, eins konar „aðventa“
sauðfjárbænda. Gísli Einarsson
„Landagerðarmaður“ var kynnir
á samkomunni. Gústi í Sauðanesi
lýsir honum svo:
Skýran framburð skortir ei,
skallinn koparrauður.
Hann er eins og geldingsgrey
Gísli bjöllusauður.
Birgi stjórnanda lék forvitni á að
vita, hvort myndi hægt að nota
Jónas Friðrik í fjárleitum. Gústi
greip þá tækifærið:
Jónas Friðrik skokkar ei með
skrílnum,
skenkt er honum jafnan eðalvín.
Hann mundi bara sitja í
sjúkrabílnum
og syngja Katarína stúlkan mín.
Birgir leitaði gangnafrétta hjá Jóa
og Gústa. Jónas Friðrik nýtti þá
tækifærið til að jafna leikinn við
Gústa:
Það valdið hefur vonbrigði mér
löngum
að verða áheyrandi að fregnum
þeim
þegar Jói og Gústi eru í göng-
um
að gerpin skuli alltaf rata heim.
Gísli Einarsson fékk svofellt ávarp
frá Bergdísi:
Sá sem alltaf landa lepur
líkar vel og þess hann naut.
Landa sína glatt hann getur;
það geymist margt í landahaus.
Auðvitað skyldi ort um
Hrútadagsnefndina, en í henni sátu
auk þriggja valkyrja, þeir Árni í
Sveinungsvík og Ragnar í Álandi.
Jói orti:
Í nefndinni er fylking fríð
sem fátt sér lætur hagga,
en fari að nálgast fengitíð
þá forðist Árna og Ragga.
Og Gústi var einnig hallari undir
kvenhluta nefndarinnar:
Ef þau standa hlið við hlið
og hafa opinn gúla,
eru þau falleg utan við
Árna og Ragga Skúla.
En Bergdís hélt sig við kyn-
systur sínar þrjár í nefndinni.
Kynhlutföllin sumsé rétt:
Öllu ráða á Raufarhöfn,
ræsa mann og annan.
Þó ég engin nefni nöfn
í næturhúmi fann hann.
Og Birgir stjórnandi hlaut einnig
sinn skerf. Jói sá hann meira að
segja fyrir sér sem kyntröll, þó ögn
skorti upp á hæðina:
Sæluhljóðin safarík
særa blygðun mína,
er karlhrútur í Krossavík
kumrar við Rósu sína.
Gústi kom til samkomunn-
ar lítt skipulagður að vanda.
Kveðskapurinn á lausum miðum
um gjörvallt borð. Um Gústa orti
Jónas Friðrik:
Samviskan er svört og tæp,
samt ég tóri nokkuð hress,
og þurfi ég að grafa glæp
Gústi hefur blöð til þess.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
Líf og starf
Á þessu ári eru liðin 60 ár frá
stofnun Sambands garðyrkju-
bænda. Af því tilefni komu
félagar og gestir þeirra saman til
fundar og hátíðarhalda þann 20.
nóvember síðastliðinn.
Dagskráin hófst fyrir hádegi í
Reykholti í Biskupstungum með
heimsókn í garðyrkjustöðvarnar
Gufuhlíð, Friðheima og Espiflöt þar
sem gestgjafar kynntu starfsemi sína
og buðu veitingar. Yfir 80 manns
mættu enda áhugverðar kynningar
í boði.
Að loknum heimsóknum lá
leiðin að Flúðum þar sem gengið
var til fundar. Sindri Sigurgeirsson,
formaður Bændasamtaka Íslands,
og Gunnar Þorgeirsson, formaður
stjórnar Sambands garðyrkjubænda,
kynntu stöðu mála í viðræðum um
gerð búvörusamninga.
Hafliði Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri kokkalandsliðsins,
flutti félagsmönnum hugvekju um
garðyrkjuafurðir og gæðamatseld.
Magnús Á. Ágústsson og Helgi
Jóhannesson, garðyrkjuráðunautar
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnað-
arins, fóru yfir ýmsa faglega þætti
garðyrkjunnar.
Á fundinum kom fram að á fjöl-
mennustu garðyrkjustöðvum lands-
ins starfa um 30 manns þegar mest er
og því mikil umsvif í þessari vaxandi
atvinnugrein.
Hápunktur fundarins var frum-
sýning á heimildakvikmynd um
íslenska garðyrkju sem Sambandið
lét gera í samstarfi við Profilm og
Guðríði Helgadóttur í tilefni afmæl-
isins. Myndin hefur verið sýnd í
Ríkissjónvarpinu og er aðgengileg
öllum í Sarpinum.
Um kvöldið bauð sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra upp á for-
drykk og í framhaldinu var hátíðar-
kvöldverður, skemmtidagskrá og
dansleikur.
Samband garðyrkjubænda 60 ára:
Garðyrkjubændur
gerðu sér glaðan dag
Þ
MÆLT AF
MUNNI FRAM
143
Notalegt var í vetrarfrostinu að skoða hlý gróðurhúsin að Espiflöt og blómin glöddu augað hvert sem litið var. Mynd / Ívar Sæland
gestum.
Knútur Ármann, bóndi í Friðheimum, fræddi gesti um garðyrkjustarfsemina
og ört vaxandi umsvif í ferðaþjónustu. Tæplega hundrað þúsund gestir hafa
Myndir / Ívar Sæland.
Formaður Bændasamtaka Íslands,
Sindri Sigurgeirsson, færði Sam-
bandi garðyrkjubænda afmælis-
kveðju sem Gunnar Þorgeirsson,
formaður stjórnar, veitti viðtöku. Um
lét þess getið að eitt af því sem
sameinaði bændur væri nauðsyn
veðrinu.
Mynd/ Katrín María Andrésdóttir
Helenu Hermundsdóttur, garðyrkjubónda í Friðheimum.
Sigurður Ingi Jóhannsson og kona
leik.