Bændablaðið - 03.12.2015, Qupperneq 10

Bændablaðið - 03.12.2015, Qupperneq 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015 Fréttir Markaðsráð kindakjöts er þessa dagana að fara af stað með nýtt upprunamerki fyrir allar íslenskar sauðfjárafurð- ir. Merkið er fyrst og fremst hugs- að til þess að vekja a t h y g l i erlendra f e r ð a - manna á gæðum og s é r s t ö ð u k j ö t s i n s , ullarinnar og gæranna. Með því að allar afurðir verði undir einu gæða- legu upprunamerki er hægara um vik að koma hinni einstöku sögu íslensku sauðkindarinnar til skila til þeirra sem heimsækja landið. Markmiðið er að íslenskt lambakjöt verði í öndvegi á sem flestum af betri veitingastöðum landsins og að allar peysur, húfur og vettlingar eða annað úr íslenskri ull verði rækilega merkt. Undirbúningur hefur tekið nokkra mánuði og verið unninn í samstarfi við ýmis fyrir- tæki og stofnanir – þeirra á meðal Icelandair og Handprjónasambandið. Fyrstu veitingastaðirnir sem verða með eru Grillið á Hótel Sögu og veitingastaðir Icelandair. Sjálfbær gæðavara af einstöku fjárkyni Einn af kostunum við sameiginlegt upprunamerki fyrir allar afurðir er sá að snertingar við hvern og einn ferðamann verða eins margar og framast er kostur. Fyrir utan að kynna merkið inni á veitingastöð- um og í ferðamannaverslunum, er einnig samvinna með leiðsögumönn- um, ferðaþjónustufyrirtækjum og flugfélögum, enda er lambakjöt sannarlega þjóðarréttur Íslendinga. Sérstöðu íslenska fjárins er komið til skila í merkinu sjálfu og því haldið til haga að féð kom til landsins með landnámsmönnum og að stofninn er óspilltur og einstakur í veröldinni. Þegar fjallað er um lambakjötið er sérstaklega dregið fram hversu rómað þetta holla kjöt er fyrir bragð- gæði, enda alið á sjálfbæran hátt í óspjallaðri náttúru á móðurmjólk og næringarríkum fjallgróðri. Hver einasta lopapeysa með upprunamerkinu Hugmyndin er sú að merkið sjálft segi ákveðna grundvallar- sögu en síðan er hægt að segja óteljandi mis- munandi undirsög- ur. Allar eiga þær að hverfast um hversu einstakt íslenska sauð- féð er, hvort sem er með tilliti til sjálf- bærra búskap- arhátta, gæða og hreinleika eða einstakrar menningarlegr- ar tengingar. Í sérstökum ullarmiðum er gerð grein fyrir því að lag- skipt ullin af íslenska fénu fyrirfinnst hvergi annars staðar og lopaklæði og gærur hafa haldið hita á þjóðinni í óblíðri íslenskri veðráttu í meira en þúsund ár. Stefnt er að því að hver einasta lopapeysa sem seld er í verslun- um hérlendis verði merkt, sé hún sannarlega úr íslenskri ull. Á næstu vikum og mánuðum er stefnt að því að fara um allt land og heim- sækja alla þá sem framleiða eða selja íslenska ull, ullarvörur eða gærur. Erlendir ferðamenn eiga innan nokkurra mánaða að geta gengið út frá því sem vísu að ef vörurnar eru ekta séu þær merktar. Svipað gildir um matinn. Þeir veitingastaðir sem setja íslenskt lambakjöt í öndvegi verða þá sérstaklega merktir og dregnir fram í veitingastaðaflóru landsins þannig að ekki ætti að fara fram hjá nokkrum þeim sem heim- sækir landið hver þjóðarrétturinn er og hvað það er sem verður að prófa í Íslandsferðinni. Föstudaginn 4. desember verð- ur haldin þjóðleg Skötumessa á Hellu. Í boði verða þjóðlegir réttir sem æ sjaldnar sjást á borðum; kæst skata, saltfiskur og plokk- fiskur með kartöflum, rófum og hamsatólg. Í eftirrétt verður boðið upp á ábresti með kanil og kaffi að góðum íslensk- um sið. Skemmtunin fer fram í Íþróttahúsinu á Hellu og hefst kl. 20.45. Að loknu borðhaldi verð- ur happdrætti. Veislustjóri verður Ásmundur Friðriksson alþingis- maður. Miðaverð er 5.000 krón- ur. Allur ágóði kvöldsins rennur til reksturs Rangárbakka, sem er hestasvæðið á Gaddstaðaflötum við Hellu. /MHH Þjóðleg Skötumessa á Hellu 4. desember Bændasamtök Íslands sóttust fyrst eftir því árið 2008 að lögum um notkun á þjóðfána Íslendinga yrði breytt þannig að heimilt yrði að nota hann til að auðkenna innlendar landbúnaðarafurðir. Það var þó ekki fyrr en á síðasta ári sem tillaga um þetta kom fram á Alþingi. Ekki tókst að afgreiða málið á síðasta þingi en frumvarpið var endurflutt á yfirstandandi þingi undir lok septembermánaðar síðastliðinn. Eftir fyrstu umræðu fór málið til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þann 14. október. Frumvarpið hefur nú verið sent út til umsagnar að nýju, en sam- kvæmt Sigurði Eyþórssyni, fram- kvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands, verður ekki skilað inn nýrri umsögn enda sé frumvarpið óbreytt frá síðasta ári. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir heimild til notkunar á fánanum á dýraafurðir sem hér eru ræktaðar, hlunnindaafurðir (svo sem æðar- dún) og nytjajurtir – bæði villtar og ræktaðar. Með breytingunum má nota merkinguna líka á sjávarafurðir sem koma úr íslenskri landhelgi, auk þess sem heimild er veitt til nota á matvæli sem eru framleidd hér á landi og hafa verið á markaði í að minnsta kosti 30 ár – þótt hráefnið sé erlent. Dæmi um slíkar vörur væri til dæmis ORA grænar baunir og Royal búðingur. Loks verður heimilt að merkja vörur fánanum sem ekki eru matvörur, en þar er til dæmis átt við vörur sem eru hannaðar á Íslandi, úr íslensku hráefni, eða framleidd- ar hérlendis. Nægilegt er að eitt þessara þriggja skilyrða sé uppfyllt. Lopapeysa sem er hönnuð á Íslandi, gæti til dæmis fengið merkið þótt hún sé ekki úr íslenskri ull og ekki framleidd hér. /smh Fánalögin send aftur út til umsagnar Framúrskarandi ferðaþjónustu- bæir í Flóahreppi Tvö ferðaþjónustubýli í Flóahreppi hlutu viður kenninguna „Framúr- skarandi ferðaþjónustubæir“ á uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda í síðustu viku. Viðurkenningin er veitt fyrir eins- taka frammistöðu á árinu og byggist matið á umsögnum gesta og þeim gæðum sem staðirnir standa fyrir að mati skrifstofu Ferðaþjónustu bænda. Um er að ræða Lambastaði hjá Svanhvíti Hermannsdóttur og Almari Sigurðssyni og Hraunmörk hjá þeim Rósu Matthíasdóttur og Frey Baldurssyni. Lambastaðir eru við þjóðveg eitt í nágrenni Selfoss en Hraumörk er við Skeiðaveginn umvafið hrauni. Á myndinni eru verðlaunahafarnir með viðurkenn- ingar sínar. Frá vinstri: Almar og Svanhvít og Rósa og Freyr. /MHH Útlitsmynd af nýja hótelinu í Laugarási í Biskupstungum. Hægt er að skoða myndbandið á slóðinni https://www.youtube.com/watch?v=huHdNgLZDVA Átta tíu herbergja hótel á sláturhúsa lóðinni í Laugarási Þeir sem keyptu sláturhúslóðina í Laugarási af Byggðastofnun stefna að því að byggja hótel þar sem leifarnar af sláturhúsinu standa nú. Munu lóðarhafarnir vera með bandaríska fjárfesta á bak við sig. „Hér eru á ferð sömu aðilar og reka Alda Hótel í Reykjavík,“ segir Páll Skúlason í Laugarási í Biskupstungum á bloggsíðu sinni en þar er hann að vísa í nýtt hótel sem hefur verið kynnt með myndbandi á Youtube og stendur til að byggja. Um er að ræða áttatíu herbergja hótel í svipuðum gæðastaðli og Hótel Rangá, með áherslu á heilsurækt og að gestir dvelji á hótelinu í nokkra daga í senn og njóti þess sem svæðið og umhverfið hefur upp á að bjóða. „Vonir þeirra sem þarna er um að ræða, standa til þess, að rífa slátur- húsið alveg á næstunni, og ekki eru þeir margir sem munu sakna þess. Ef af þessu verður mun heldur betur glæðast líf í Laugarási, því hótel kall- ar á ýmislegt annað,“ segir Páll. /MHH Stjórn Framkvæmda- og veitu- sviðs Sveitarfélagsins Árborgar hefur samþykkt samhljóða að hækka gjaldskrá Selfossveitna frá 1. janúar 2016 um 18%. Þetta er gert vegna nauðsynlegra framkvæmda við jarðhitaleit og virkjun jarðhita á nýjum svæðum. Ástæðan er vaxandi íbúafjölgun og að afköst núverandi orkuöflunarsvæða eru að minnka. /MHH Gjaldskrá Selfossveitna hækkar um 18% Allar íslenskar sauðfjárafurðir upprunamerktar Handverk og jólaskap frá Sólheimum í Kringlunni Jólamarkaður Sólheima verður haldinn í Kringlunni dagana 3.–6. desember. Þar verður á boðstólum alls- konar handverk og listmunir sem unnir eru af heimilisfólkinu á Sólheimum. Þá er einnig boðið upp á brauð, kökur og nýbrennt og malað lífrænt Sólheimakaffi til að taka með heim. Gleðin mun skína úr hverju and- liti og jólaskapið verður sannar- lega til staðar. Ef fólk vill virkilega komast í alvöru jólaskap, þá er bara að mæta í Kringluna og heilsa upp á fólkið frá Sólheimum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.