Bændablaðið - 03.12.2015, Side 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Hagsmunaaðilar hafa tekið hönd-
um saman um að marka stefnu
og gera aðgerðaáætlun sem hefur
það að markmiði að styrkja ímynd
íslenska hestsins með samhæfðum
skilaboðum, markaðsaðgerðum og
kynningarstarfi. Áhersla verður
lögð á verðmætasköpun og gjald-
eyrisaukningu tengda greininni en
fjármögnun verkefnisins stendur
nú yfir.
„Markaðsumhverfi íslenska
hestsins hefur dalað, bæði hér-
lendis og erlendis. Hestamennskan
er í samkeppni við aðra ólíka
afþreyingu sem og við önnur
hestakyn. Uppsveifla var í
Íslandshestamennskunni fram að
hruni, en eftir 2008 hefur hrossasala
farið dvínandi og markaðurinn gefið
eftir. Þetta stóra verkefni snýst um að
beina kastljósinu að hestamennsk-
unni í sinni breiðustu mynd,“ segir
Sveinn Steinarsson, formaður Félags
hrossabænda, en hann situr í verk-
efnastjórn viðamikils markaðsverk-
efnis um uppbyggingu vörumerkis
íslenska hestsins.
„Við höfum farið í allsherjar
naflaskoðun til að komast að því
hvað Íslandshestamennskan stend-
ur í raun og veru fyrir. Verkefnið er
alþjóðlegt, og er hugsað til að verja
hlut íslenska hestsins í hestaheimin-
um. Við ætlum þó einnig að horfa á
markaðinn innanlands, efla það sem
betur má fara. Þannig á ímyndin ekki
síst að höfða til hins almenna hesta-
manns og leggjum við megináherslu
á að örva nýliðun og fjölga í hópi
hestamanna,“ segir Sveinn.
Byggja á víðtækri reynslu
Íslandsstofa sér um framkvæmd
verkefnisins og vinnur í samstarfi
við verkefnisstjórn sem skipuð er,
auk Sveins, Hallveigu Fróðadóttur
fyrir Félag hrossabænda, Rúnari
Þór Guðbrandssyni og Jónu Dís
Bragadóttur fyrir Landssamband
hestamannafélaga, Heimi
Gunnarssyni fyrir Félag tamninga-
manna, Sveini Ragnarssyni fyrir
háskólana, Eysteini Leifssyni fyrir
útflytjendur, Bergljótu Rist fyrir
Samtök ferðaþjónustunnar, Hönnu
Dóru Hólm Másdóttur frá atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytinu og
Karitas Gunnarsdóttur frá mennta-
og menningarmálaráðuneytinu.
Guðný Káradóttir, forstöðumaður
hjá Íslandsstofu, hefur stýrt verkefn-
inu. Íslandsstofa hefur haldið utan um
markaðsverkefni á borð við „Inspired
by Iceland“ en markmið fyrirtækisins
er að efla ímynd og orðspor Íslands,
styrkja samkeppnisstöðu íslensks
atvinnulífs á erlendum mörkuðum
og laða erlenda ferðamenn og fjár-
festingu til landsins.
„Við byrjuðum á að setjast niður
í desember í fyrra, kynna aðferða-
fræðina og hvað hefur gefist vel. Í
framhaldi vorum við beðin um að
setja saman verkefnaáætlun í sam-
starfi við verkefnastjórn,“ segir
Guðný og bætir við að með verk-
efnastjórninni sé komin saman þekk-
ing og reynsla sem er lykill að góðum
árangri.
Reynsla Íslandsstofu af ólíkum
markaðssóknarverkefnum hafi sýnt
að þau verkefni sem ná árangri eru
samstarfsverkefni stjórnvalda og
hagsmunaaðila þar sem stefnan
kemur frá grasrótinni. Það á einnig
við nú.
„Í dag erum við að ljúka fyrsta
áfanga verkefnisins og við erum í
því að kynna þetta fyrir hestaheimin-
um. Búið er að kortleggja verkefnið,
forgangsraða markhópum og mörk-
uðum og drög eru komin að aðgerð-
aráætlun og áherslum. Nú erum við
í þeim fasa að kynna þetta af alvöru
og fá samstarfsaðila til að sameinast
um þetta verkefni og fjármagna það,“
segir Guðný en fyrir liggur loforð
ríkissjóðs upp á 25 milljónir á ári á
næstu fjórum árum gegn jafnmiklu
framlagi frá greininni.
Fjármögnun möguleg ef margir
taka þátt
Sveinn telur fjármögnun vel mögu-
lega ef breið aðkoma verður að verk-
efninu.
„Við erum svo mörg sem höfum
hagsmuni af hestinum með beinum
eða óbeinum hætti. Þetta byggir á
því að fjöldinn komi að. Félögin
sem standa að þessu verkefni,
Landssamband hestamannafélaga og
Félag hrossabænda, ætla að tryggja
ákveðna fjármuni. Síðan verður leit-
að til stórra og smárra aðila innan
ferðaþjónustu og landbúnaðar og
svo dæmi séu tekin, svo sem flugfé-
laga, fóðursala, hnakka- og reiðtygja-
framleiðenda, hestaferðafyrirtækja
og hrossaræktarbúa svo eitthvað sé
nefnt.“
Sveinn segir góðan róm hafa verið
gerðan að verkefninu þar sem það
hefur verið kynnt, en kynning verk-
efnisins hefur m.a. verið í höndum
verkefnisstjórnar. „Við biðlum til
fyrirtækja sem hafa hagsmuni af
hestinum með einhverjum hætti að
taka þátt. Tekið hefur verið vel í að
styðja við það og við erum bjartsýn
og teljum að fjármögnun verði okkur
ekki erfið.“
Tilgerðarlaus og kraftmikill
reiðhestur
Aðgerðaráætluninni verður hrint
úr vör af alvöru þegar fjármögnun
verður tryggð. Skapa á sameiginlega
ímynd íslenska hestsins sem vöru-
merkis. Ímyndin byggir meðal annars
á því að íslenski hesturinn verði
þekktur á heimsvísu sem hesturinn
sem færir fólk nær náttúrunni, kraft-
mikill, ævintýragjarn, tilgerðarlaus
og ósvikinn hestur sem tekur þér
opnum örmum.
Stoðir vörumerkisins byggja á
tengslum hans við sögu Íslands og
menningu, ævintýri og félagsskap,
sem og nálægð við náttúruna. Strax
á næsta ári er stefnt að því að auka
sýnileika íslenska hestsins á Íslandi,
byggja upp vef- og samfélagsmiðla
tengda íslenska hestinum, búa til
myndefni og segja sögur af íslenska
hestinum.
Tiltrú á verkefninu
Með góðri samvinnu félagasamtaka
kringum íslenska hestinn og þeirra
sem hafa hagsmuna að gæta er vonast
til að verkefnið muni bæta arðsemi
greinarinnar bæði hérlendis og erlend-
is. Telur Guðný það vel mögulegt
miðað við þá góðu vinnu sem farið
hefur fram að undanförnu. Hún segir
verkefnastjórn hafa unnið vel saman
og bendir á að mikil nýliðun hafi átt
sér stað í forystu félagasamtaka hesta-
mennskunnar á síðasta ári.
„Fólkið sem nú er komið í forystu
hestamennskunnar skilur gildi þess að
vinna saman og að byggja á reynslu
og því sem gert hefur verið áður.“
Sveinn tekur undir orð Guðnýjar.
„Sú vinna sem búin er að eiga sér
stað hefur verið einkar skemmtileg og
fróðleg og andinn í verkefnastjórninni
góður. Það ríkir mikil tiltrú á verkefn-
inu.“ Sveinn segir þó að um langhlaup
sé að ræða.
„Það að við séum að fara í þetta
verkefni núna þýðir ekki það að við
klárum nokkurn tímann að markaðs-
setja íslenska hestinn. Við þurfum
stöðugt að vera í markaðssetningu.
Þetta er vonandi aðeins upphafið að
markvissu markaðsstarfi.“
HROSS&HESTAMENNSKA Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com
Upphafið að markvissri markaðssetningu íslenska hestsins:
Að tengja hestamenn nánar við náttúruna
Skapa á sameiginlega ímynd íslenska hestsins sem vörumerkis. Ímyndin byggist meðal annars á því að íslenski
hesturinn verði þekktur á heimsvísu sem hesturinn sem færir fólk nær náttúrunni.
Nokkrir samráðs- og vinnufundir hafa farið fram á síðastliðnu ári meðal
hestamanna þar sem styrkleikar, veikleikar, tækifæri og hindranir geirans
hafa verið greind og rædd.
Jeppi stendur ekki undir nafni nema hann sé vel dekkjaður. Ef þú
vilt nýta til fullnustu, orku, aksturseiginleika og öryggi jeppans,
skiptir sköpum að velja réttu dekkin. Þegar jeppadekk eru annars
vegar búum við yfir áratuga reynslu og þekkjum þá eiginleika sem
breytilegar akstursaðstæður kalla á.
RÉTTU JEPPADEKKIN
KOMA ÞÉR ALLA LEIÐ
NESDEKK.IS / 561 4200BENNI.IS / 590 2045
Mud-terrain KM2 Bighorn MT-762Open Country MT
All-terrain AT Bravo AT-771Open Country AT
Fáðu aðstoð við val á jeppadekkjum hjá söluaðilum okkar um land allt