Bændablaðið - 03.12.2015, Síða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka Vestur-Húnavatnssýslu og Þyts:
Lækjarmót besta ræktunarbúið
Uppskeruhátíð Hrossaræktar-
samtaka Vestur-Húnavatnssýslu
og Hestamannafélagsins Þyts
var haldin í félagsheimilinu á
Hvammstanga fyrir skemmstu.
Veittar voru ýmsar viðurkenn-
ingar, m.a. fyrir ræktunarbú ársins
og knapa ársins. Lækjarmót var valið
ræktunarbú ársins 2015, þriðja árið
í röð. Þá var að auki boðið upp á
fjölbreytta dagskrá, góðan mat og
skemmtun. Tókst hátíðin hið besta
í alla staði að því er fram kemur á
vefsíðu Hestamannafélagsins Þyts.
Titilinn knapi ársins hlaut Ísólfur
L. Þórisson en hann varð í fyrsta sæti
í 1. flokki. Ísólfur hlaut þennan titil
líka í fyrra. Í öðru sæti var James
Bóas Faulkner og í þriðja sæti var
Tryggvi Björnsson.
Þorgeir Jóhannesson hlaut titil-
inn knapi ársins í 2. flokki, Magnús
Ásgeir Elíasson varð í öðru sæti og
Sigrún Eva Þórisdóttir í því þriðja.
Í ungmennaflokki var Birna Olivia
Agnarsdóttir í fyrsta sæti, Kristófer
Smári Gunnarsson í öðru sæti og
Fanndís Ósk Pálsdóttir í þriðja sæti.
Hæst dæmdi stóðhesturinn var
Brimnir frá Efri-Fitjum með aðal-
einkunnina 8,45. Hæst dæmda
hryssan var Snilld frá Syðri-Völlum
með aðaleinkunnina 8,37.
Uppskeruhátíð
æskulýðsstarfs Þyts
Uppskeruhátíð æskulýðsstarfsins hjá
Hestamannafélaginu Þyti var haldin
á Gauksmýri. Um 60 börn og ung-
lingar tóku þátt í starfinu á síðasta
starfsári.
Allir krakkarnir fengu viðurkenn-
ingarskjal fyrir þátttökuna og húfu
merkta Þyti. Þá voru veitt verðlaun
fyrir stigahæstu þrjá knapana í barna-
flokki annars vegar og unglinga-
flokki hins vegar. Eysteinn Tjörvi
Kristinsson var stigahæsti knapinn
í barnaflokki. Í öðru sæti var Rakel
Gígja Ragnarsdóttir og Ingvar Óli
Sigurðsson í því þriðja. Í unglinga-
flokki var Karitas Aradóttir stigahæsti
knapinn, Eva Dögg Pálsdóttir í öðru
sæti og Anna Herdís Sigurbjartsdóttir
í þriðja sæti.
Nú er tími jólahlaðborða á
veitingastöðum og vinnustöðum
runninn upp. Auk þess að hafa
góðan mat í boði fyrir neytendur
þurfa rekstraraðilar veitingahúsa
að tryggja öryggi matvælanna.
Mikilvægt er að starfsfólk hafi
þekkingu á mikilvægi hreinlætis
og réttrar meðhöndlunar matvæla
til að koma í veg fyrir hættur. Hér
eru nokkur atriði sem rekstraraðil-
ar og starfsfólk veitingahúsa þurfa
að hafa í huga við framkvæmd
jólahlaðborða.
Innra eftirlit
Veitingahús sem bjóða upp á hlað-
borð skulu hafa innra eftirlitskerfi
sem tekur til hlaðborðsins. Tilgangur
innra eftirlits er að tryggja gæði,
öryggi og heilnæmi matvæla. Innra
eftirlit er fyrirbyggjandi aðferð og
miðar að því að koma í veg fyrir að
matvæli skemmist eða mengist og
geti þannig valdið heilsutjóni. Til
að ná árangri er mikilvægt að allt
starfsfólk taki virkan þátt og hafi
skilning á tilgangi, markmiðum og
ávinningi innra eftirlits. Innra eftirlit
tekur m.a. á hitastigsskráningum,
hreinlætisáætlun, umgengnisregl-
um og þjálfun starfsfólks. Sjá upp-
lýsingasíðu Matvælastofnunar um
innra eftirlit
Stjórnun á hitastigi
Þar sem gestir setjast ekki allir til
borðs á sama tíma eða matvælin
standa lengur frammi en 2 klst.
þarf að fylgjast vel með hitastigi
matvæla.
Stjórnun á hitastigi í matvælum
er áhrifaríkasta leiðin til að tak-
marka eða stöðva fjölgun örvera
og þar með hættu á matarsjúk-
dómum og skemmdum. Hröð
og góð kæling dregur úr fjölg-
un baktería, viðheldur gæðum
og lengir geymsluþol matvæla.
Tryggja þarf órofinn kæliferil frá
framleiðanda til neytenda. Eftirlit
með hitun matvæla er ekki síður
mikilvæg. Sannreyna þarf hitastig
með mælingum og halda skal skrá
yfir niðurstöður mælinga.
• Kaldur matur þarf að vera við
0–4 °C
• Heitur matur þarf að vera
a.m.k. 60 °C
Framreiðsla
Bera skal heitan mat fram nægi-
lega heitan (a.m.k 60 °C) og skal
hitunarbúnaður vera til staðar svo
heitur matur haldist við a.m.k. 60
°C. Athuga þarf að hitunarbún-
aður á hlaðborði er aðeins til að
viðhalda hitastigi en ekki til að
hita matvælin upp. Matvæli sem
bera á fram kæld skal geyma í
kæli (0–4 °C) þar til kemur að
framreiðslu. Athuga þarf að kæli-
búnaður á hlaðborðum dugar
oftast aðeins til að seinka hitun
matvælanna upp í umhverfishita
ef ekki er um vélkælingu að ræða.
Krossmengun og hreinlæti
Áhöld þurfa að vera við hvern rétt
til að hindra krossmengun á milli
rétta. Bakteríur mega ekki berast
úr hrárri vöru í soðna eða vöru
sem verður ekki soðin. Einnig
skal huga að aðskilnaði í eldhúsi
við vinnslu hrárra og tilbúinna
matvæla til að koma í veg fyrir
að bakteríur berist úr hráum mat-
vælum (kjöt, fiskur, og grænmeti)
yfir í soðin matvæli.
Hreinlæti kemur í veg fyrir að
bakteríur komist í matvælin og
er persónulegt hreinlæti starfs-
manna lykilatriði. Handþvottur
skiptir afskaplega miklu máli því
hendurnar koma víða við. Það er
því mikil hætta á að þær beri með
sér smit í matinn. Þvoið hendur
og sótthreinsið áður en farið er
að meðhöndla matvæli og á milli
vinnslu mismunandi rétta.
Aðskilnaður í eldhúsi, hrein
áhöld, ílát, borð og hreinar hend-
ur eru grundvallaratriði til að
koma í veg fyrir krossmengun í
eldhúsinu.
Algengustu orsakir matar-
sjúkdóma eru skortur á hreinlæti
við meðferð matvæla og rangt
hitastig sem hefur orðið til þess
að örverur hafa náð sér á strik í
matvælum. Sjá upplýsingasíður
Matvæl astofnunar um bakteríur
sem valda matarsýkingum og
matareitrunum
Ílát og áhöld í snertingu við
matvæli
Mikilvægt er að nota aðeins ílát og
áhöld sem eru sérstaklega ætluð
fyrir matvæli. Veljið t.d. vörur sem
eru merktar með glas- og gaffal-
merkinu eða eru með leiðbeiningar
um rétta notkun. Nánari upplýs-
ingar má finna á upplýsingasíðu
Matvælastofnunar um merkingar
á efnum og hlutum sem ætlað er
að snerta matvæli.
Rétt er að hafa í huga að leirí-
lát sem eru ríkulega litskreytt geta
gefið frá sér mikið magn af blýi
og/eða kadmíum. Óráðlegt er því
að geyma matvæli í ílátum úr leir
nema fullvíst sé að þau megi nota
sem slík. Sjá einblöðung um leir-
hluti í snertingu við matvæli.
Upplýsingar um ofnæmisvalda
Þegar vöru er dreift án umbúða
til neytenda verður seljandi að
geta veitt upplýsingar um öll
þau atriði sem annars er skylt
að merkja á umbúðum matvæla.
Mjög mikilvægt er að hafa tiltækar
og aðgengilegar upplýsingar um
ofnæmis- og óþolsvalda. Þær geta
komið fram á merkingum við
vöruna eða matseðli. Ef upplýs-
ingarnar um ofnæmis- og óþols-
valda koma ekki fram skriflega,
verður að koma fram skriflega að
starfsfólk veiti upplýsingar um
þá. Ofnæmis- og óþolsvaldar sem
verður að merkja/upplýsa með
skýrum hætti eru:
1. Kornvörur sem innihalda glút-
en: Hveiti, rúgur, bygg, hafrar,
spelt, taumhveiti (kamut) eða
blendingar þeirra og afurðir
úr þeim.
2. Krabbadýr og afurðir úr þeim.
3. Egg og afurðir úr þeim.
4. Fiskur og fiskafurðir.
5. Jarðhnetur og afurðir úr þeim.
6. Sojabaunir og afurðir úr þeim.
7. Mjólk og mjólkurafurðir
(þ.m.t. laktósi).
8. Hnetur: Möndlur, heslihnet-
ur, valhnetur, kasjúhnetur,
pekanhnetur, parahnetur,
pistasíuhnetur, goðahnet-
ur eða queensland hnetur
(Macadamia hnetur) og afurðir
úr þeim.
9. Sellerí og afurðir úr því.
10. Sinnep og afurðir úr því.
11. Sesamfræ og afurðir úr þeim.
12. Brennisteinsdíoxíð og súlfít: í
styrk yfir 10 mg/kg eða 10 ml/
lítra og gefið upp sem heildar-
styrkur SO2.
13. Lúpína og afurðir úr henni.
14. Lindýr og afurðir úr þeim
15. Ítarefni
Nánari leiðbeiningar um merkingar
og aðra upplýsingagjöf um ofnæm-
is- og óþolsvalda
...frá heilbrigði til hollustu
Er maturinn á jólahlaðborðinu öruggur?
Lækjarmót var valið ræktunarbú ársins þriðja árið í röð. Myndir / Þytur
Sameininganefnd skagfirsku
hestamannafélaganna átti fund
á dögunum og var þá farið yfir
atkvæðagreiðslu vegna nafns á
nýtt sameinað hestamannafélag
í Skagafirði.
Nafnið Fluga fékk flest atkvæði
og var ákveðið að nýja félag-
ið myndi bera það nafn. Á vef
Léttfeta, eins af þremur núverandi
hestamannafélögum í Skagafirði,
segir að önnur vinna varðandi sam-
eininguna gangi vel. „Margt þarf að
skoða en flest mál eru þó að taka
á sig skýrari mynd“, segir í frétt á
vef Léttfeta.
Skagafjörður:
Nýtt sameinað hestamannafélag
heitir Fluga
Ísólfur Líndal Þórisson, knapi ársins
Fyrirspurn um hvort land fáist
undir fastastæði fyrir hjólhýsi
var lögð fram á fundi atvinnu-,
menningar- og kynningarnefnd-
ar Sveitarfélagsins Skagafjarðar
nýverið. Varmahlíðarstjórn lagði
fram fyrirspurnina.
Formaður Varmahlíðarstjórnar
kom til fundar og kynnti málið
fyrir nefndarmönnum. Nefndin
felur starfsmönnum að kanna
kostnað við slíka uppbyggingu en
mun ekki leggja til að fjármagn
til slíkrar uppbyggingar fari inn á
fjárhagsáætlun fyrir árið 2016.
/MÞÞ
Vilja land fyrir hjólhýsi
Birna Olivia Agnarsdóttir, knapi
Átta tillögur bárust um nýtt nafn
á Skeiða- og Gnúpverjahrepp,
sveitarfélag í Árnessýslu, en
sveitarstjórn óskaði nýlega eftir
tillögum frá íbúum.
Í stafrófsröð eru tillögurnar eft-
irtaldar:
Eystribyggð, Eystrihreppur,
Skeiða- og Gnúpverjahreppur,
Vörðubyggð, Þjórsárbakkar,
Þjórsárbyggð, Þjórsárhreppur
og Þjórsársveit.
„Erindi hefur verið sent til
Örnefnanefndar þar sem leitað er
umsagnar og samþykki fyrir nöfn-
unum. Svör eru væntanleg þaðan
seinnipart mánaðarins. Alls voru
það 56 einstaklingar sem skiluðu
inn tillögu og dreifðust þær misjafn-
lega milli nafnanna,“ segir Kristófer
Tómasson sveitarstjóri.
Til þess getur komið að nærliggj-
andi sveitarfélög þurfi að veita
umsögn um sum nafnanna. Stefnt er
að því að kosning milli þeirra nafna
sem samþykkt fá frá Örnefnanefnd
fari fram snemma í desember, ef ekki
verða tafir á ferlinu. /MHH
Nýtt nafn á Skeiða- og Gnúpverjahreppi:
Átta tillögur bárust