Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
langt undir kosnaðarverði til sölu
í Bretlandi, sem þarlendum bænd-
um er algjörlega ofviða að keppa
við. Langtímaáhrif þessa geta orðið
mjög alvarleg. Ekki bara fyrir
breska bændur, heldur ekki síður
fyrir breska neytendur. Bændum
mun fækka stórlega, þekking glat-
ast og afleiðingin verður skortur á
landbúnaðarafurðum og gríðarlegar
verðhækkanir.
Bjarga sér með aukinni
verktakastarfsemi
Vegna stöðunnar í Þýskalandi hefur
Bürger-Grebe fjölskyldan gripið til
þess ráðs að efla verktakastarfsemi
á bænum til að þjónusta aðra bænd-
ur. Þannig sækja þau nauðsynlegar
tekjur til að styrkja reksturinn sem
annars stefndi hraðbyri í þrot. Er fjöl-
skyldan nú með fjóra fasta starfs-
menn í verktakaþjónustunni. Vinna
þeir ýmis verk fyrir aðra bændur,
einkum heyvinnslu og þreskingu.
Frá búinu er selt töluvert af kvíg-
um til áframeldis. Fara þær bæði á
innanlandsmarkað í Þýskalandi og
einnig er töluvert selt af lífgripum úr
landi. Meðaltalsverð fyrir kú í vik-
unni áður en íslenski hópurinn var
þarna var 1.450 evrur, eða um 207
þúsund krónur. Eru kýrnar yfirleitt
seldar um 25 mánaða aldurinn og
eru þær þá oft kelfdar, en einstaka
kýr er eldri við sölu, eða allt upp í
þriggja ára.
Fjölga upp í 360 kýr á næsta ári
Auk þess er verið að undirbúa stækk-
un á fjósinu fyrir 160 kýr. Verður það
tekið í notkun á næsta ári og verður
búið þá komið með 360 mjólkur-
kýr. Með þessu hyggst fjölskyldan
ná enn betri nýtingu á mannskap
og búnaði en hægt er í dag, en með
hlutfallslega litlum viðbótarkostnaði.
Þannig hyggjast þau reyna að komast
nær því að mjólkurframleiðslan geti
staðið undir sér. Hvort það tekst er
svo önnur saga.
Spara með því
að endurvinna
kúamykju í
undirburð fyrir
kýr
Þegar Íslendinga-
hópurinn var í heim-
sókn var þar við störf
eitt af nýjum og örfá-
um sambærilegum
tækjum í Þýskalandi.
Er það bíll sem til-
heyrir verktakastarf-
semi búsins og er
með heljarmiklum
ski lv indubúnaði .
Dældi hann mykju
upp úr haughúsinu,
skildi vökvann frá og
dældi honum aftur niður í haughús-
ið. Afraksturinn af skítnum er 30%
þurrefni sem dælt var á vagn þar við
hliðina. Skilvindubíllinn kostaði 250
þúsund evrur, eða sem svarar um 35
milljónum króna.
Christine segir að þar sem sag og
annar slíkur undirburður undir kýrnar
sé orðið mjög dýrt, þá sé þetta leiðin
til að spara á búinu. Þurra hreinsaða
skítnum er þá blandað saman við
sag og nýttur sem undirlag. Segir
hún að þau hafi gert þetta í tvö ár
og reynslan sé
mjög góð, auk
þess sem spar-
ast hafi miklir
peningar. Þá
heldur þessi
undirburður
kúnum þurr-
um og hrein-
um, eins
einkennilega
og það kann
að hljóma. Segir Christine engin
vandamál hafi skapast vegna bakt-
eríumyndunar í þurrkaða skítnum.
Hefur notkun á svona endurunn-
um kúaskít farið ört vaxandi. Er
þessi aðferð nú talsvert nýtt þar sem
bændur eru með gasframleiðslu og
gasgerðin hefur ekki undan að nýta
skítinn. Þar sem óheimilt er að bera
mykju á tún hvenær sem er, þá nýta
menn þessa endurvinnsluaðferð og
geyma þá skítinn í skemmu til síð-
ari tíma, annaðhvort til að nota sem
undirburð eða í gasframleiðslu. /HKr.
Íslensku bændurnir að skoða fjós Bürger-Grebe fjölskyldunnar. Aðstaðan er harla ólík því sem þekkist á Íslandi. Opin hús að framanverðu, með glæru
athygli íslenskra bænda sem heimsóttu Bürger-Grebe
dælt er úr haughúsinu, fæst 30% þurrefni sem síðan
Kálfahúsið.
Njarðarnesi 1 sími 460 4350
Hjólbarðaþjónusta - Smurþjónusta -
Þrif á bílum - vönduð handverkfæri og fl.
Úrval hjólbarða á betra verði
Fólksbíla-, traktora-, vinnuvéla-, vagna-,
jeppa,- og vörubíladekk í úrvali.
Beinn innflutningur til Akureyrar
Smurþjónusta
(Jason ehf.)
15%
afsláttur af öllum dekkjum
til . 2015
Handverkfæri
Ármann sími 896 8462 og Tryggvi 896 4126
Dóttirin Christina var að vinna við að
daginn eftir. Er þar vandað til verka
og snyrtingunni fylgir að sjálfsögðu
klipping.
Hringlaga mjaltagryfja er í fjósinu sem þykir mjög þægilegt að vinna við.
Fóðurgangar eru mjög greiðfærir fyrir vinnutæki.