Bændablaðið - 03.12.2015, Qupperneq 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Engifer er ein þessara ævafornu
krydd- og lækningajurta sem
komnar voru til sögunnar löngu
fyrir okkar söguskyn. Ágiskanir
um upprunaland hans er nokkuð
á reiki, en víst er um að hans er
getið í indverskum og kínverskum
ritum eins langt aftur og ritlistin
nær.
Engifer er hvergi til villtur og
ekkert ræktunarafbrigða (klóna)
hans þroskar fræ. Það bendir til að
hann sé afkomandi ýmissa tegunda
sem vaxa á Indlandsskaga og austur
eftir löndunum við Bengalflóa.
Mikil ætt, stór fjölskylda
En engiferinn er ekki eina tegundin
af Engiferætt, Zingiberaceae, sem
ræktuð hefur verið mannkyni til
gagns og gleði í mörg þúsund ár.
Til ættarinnar teljast líka túrmerík,
galangal og kardímommur. Reyndar
eru nokkrar aðrar tegundir ræktaðar
staðbundið í hitabelti Asíu, en mest
til heimabrúks og koma því ekki við
sögu hér. Engiferættin er stór kvísl
einkímblöðunga, líkt og pálmar,
grös, bananajurtir og kólfblómungar
sem pottaplantan monstera, eða öðru
nafni rifblaðka, er góður fulltrúi
fyrir. Það sem einkennir engiferunga
eru þykkir jarðstönglar sem vaxa og
greina sig yfirleitt í eina ákveðna
átt, án mikilla stefnubreytinga. Þetta
kallast einfætingsáttun (monopodi-
alism) hjá grasafræðingum.
Sjálft nafnið engifer, fræðiheitið
Zingiber, er komið úr sanskrít og
líklega þangað af dravíska orðinu
hjartarhorn en seinni liðurinn rót.
Þannig að við getum sagt hjart-
arhornsrót á íslensku bændamáli,
ef við kærum okkur um, hvenær
sem engifer ber í tal. Hvort það
væri auðskilið er svo annað mál. En
þetta alþjóðlega og ævaforna heiti,
engifer, er og hefur verið gegnum-
gangandi í öllum vestrænum tungu-
málum þótt það komi fyrir í ýmsum
myndum. Í íslensku hefur það verið
sagt og skrifað eins og við þekkjum
það alveg frá tímum fyrstu biskupa
í kaþólskri tíð. Og þá líklega úr eng-
G-ið borið fram sem lint J. Enska
Útúrdúr um enskan biskup
Tengsl og áhrif engilsaxa á Íslandi
þess tíma hafa því miður verið lítið
skoðuð en það má giska á að þeirra
hlutur hafi verið nokkuð stærri en
almennt er álitið.
Þaðan kom Hróðólfur bisk-
up um 1030 sem rak skóla í Bæ
í Borgarfirði um hartnær tveggja
áratuga skeið. Sennilega hefur hann
haft veigamikil áhrif á hvernig við
ritum íslensku enn í dag. Því hann
innleiddi latínuletur og aðlagaði
engilsaxneskan rithátt að íslensku
-
unnar. Broddstafir komu síðar. Og
flest kirkjuorð í íslensku eru umritun
á samsvarandi orðum úr engilsax-
nesku, líklega beint frá Hróðólfi í
Bæ. Hróðólfur var af höfðingjum
kominn, óskilgetið afabarn Göngu-
Hrólfs og bróðir Emmu af Normandí
sem náði því að verða drottning í
Englandi, Danmörku og Noregi.
Hún var móðir Játvarðar góða,
síðar helga, Englandskonungs. Svo
að efalaust hefur Hróðólfur vanist
á og kunnað að meta og nota aust-
urlensk krydd að höfðingasið þeirra
tíma. Varla hefur engiferinn verið
þar viðskila. Og vel hefur hann eða
fylgdarmenn hans kunnað á lækn-
ingajurtir. Ýmist aðfengnar þurrkaðar
eða fengnar úr eigin túni.
Villilaukurinn í Bæ, Allium oler-
aceum, er samt eina áþreifanlega
minnið um veru hans hér á landi.
Hróðólfur (á ensku Rodulf) var
gerður að ábóta í Benediktínakaustri
Heilagrar Maríu í Abington á
Tamesárbökkum sunnan við Oxford.
Þá var Játvarður systursonur hans
þar varð þó stuttur, því hann lést árið
1052. Í samtímaheimildum er hann
talinn til mikilmenna. En hérlendis
eru heimildir um hann stopular og
líklega hefur honum ekki enn verið
eignað það sem hann á í íslenskri
menningarsögu. Enda var hann ekki
norsk-íslenskur og eiginlega póli-
tískur flóttamaður í ofanálag.
Markaður og matreiðsla
Hér á landi, sem og í öðrum löndum
Evrópu, þekktum við engifer aðeins
í þurrkuðu formi, ýmist sem malað
duft eða hörðum sneiðum, fram yfir
miðja síðustu öld. En með tíðum
flugsamgöngum byrjuðu rótarhýði
hans að birtast í sérverslunum og
síðar stórmörkuðum. Nú eru engifer-
rætur sjálfsagður hlutur í margskonar
matargerð á íslenskum heimilum.
Ræktun á engifer hefur aukist í
flestum löndum með heppilega röku
hitabeltisloftslagi og eftirspurnin
á heimsvísu eflist ár frá ári. Áður
fyrr voru það smábændur sem rækt-
uðu litla skika af engifer í görðum
sínum. Seldu síðan til þorpkaup-
mannsins sem svo aftur seldi til
smáfyrirtækja sem sáu um eftir-
vinnslu og dreifingu vítt um lönd.
En nú eru alþjóðleg stórfyrirtæki
komin í spilið og láta rækta engifer í
vélvæddum engiferökrum og hafa
heimsmarkaðsverð og dreifingu í
hendi sér. Og það er eins og með
bananana, að framleiðslan byggir
fyrst og fremst á einum klóni. En
samt eru til nokkrir mismunandi, en
ófrjóir, engiferklónar sem ræktaðir
eru staðbundið víða um SA-Asíu.
Eiginlega er engifer á gráu svæði.
Það er erfitt að skera úr um hvort
hann eigi að flokkast sem rótar-
ávöxtur í matargerð, krydd eða
lækningajurt. Satt að segja er hann
allt þetta.
Sneidd eða rifin engiferrót í
matréttum gefur þeim sérsakan,
hlýjan keim sem gerir þá lystuga og
hressandi. Jafnframt dregur hann
úr bjúg og bólgum í líkamanum.
virkar meyrandi á kjöt og gerir það
auðmeltanlegra. Það þolir hærri hita
en aðrir kjötmeyrar.
Í Austurlöndum hefur engifer
verið notaður sem krydd á allskyns
kjöt og hann passar líka sem krydd á
þær kjötegundir sem okkur er tamast
að elda. Rifin engiferrót sem krydd
á lambakótelettur eða í nautagúllas
færir slíka matargerð upp um einn
flokk. Sama má segja um að nota
engifer í maríneringu á öllu kjöti áður
en það er steikt eða soðið. Og svo er
það auðvitað öll þessi nýtilkomna
matargerð að asískum hætti. Án
engifersins væri hún dálítið eins og
bitlaus hnífur.
Kryddið engifer
Áður þekktum við helst engifer sem
malað duft. Það fæst enn og er fyrst
og fremst notað sem krydd í bakstur
eins og ýmsar brúnkökur og pipar-
ensku og það hugtak er nokkuð nær
sanni en piparköku-nafnvenjan hjá
okkur. Í piparkökum er nefnilega
aldrei pipar. En það má alveg nota
malaðan engifer sem krydd á kjöt
og fisk. Ein teskeið samsvarar þá
um það bil einni matskeið af rifn-
um engifer. Kryddið engifer örvar
blóðrás, bætir meltinguna og skil-
ar þægilegri hlýju og vellíðan út
í kroppinn. Það vita þeir vel sem
einhvern tíma hafa smakkað góða
jólaglögg.
Læknisjurtin engifer
Volgir engiferbakstrar og nudd með
rifnum engifer á auma og bólgna
bletti líkamans dregur úr eymslum
og bólgum. Seyði af engifer þykir
gott við hálsbólgu og hæsi. Það
gagnast víst líka við flökurleika og
sjóveiki.
Kínverskir grasalæknar hafa um
aldaraðir ráðlagt hálfa teskeið af engi-
ferdufti út í bolla af sjóðandi vatni.
Þetta látið svalna og síðan drukkið í
gúlsopum meðan það er volgt. Þetta
á að gera tvisvar til þrisvar sinnum
á dag og er sagt virka gegn óreglu-
legum klæðaföllum kvenna. Þriggja
mánaða kúr af þessu tagi er sagður
kippa öllu í lag aftur.
Hvort þessi kenning hleypti af
stað miklum rannsóknum á því hvort
engifer hjálpi til við að halda leg-
krabbameini í skefjum veit ég ekki.
En við tilraunir á rottum hefur komið
í ljós að í engifer eru efnasambönd
sem drepa krabbameinsfrumur. Samt
þykja niðurstöðurnar ekki nægilega
sannfærandi til að hægt sé að bera
fullt traust til þeirra enn sem komið
er. Hvað sem síðar verður á eftir að
koma í ljós.
Engifer, tunglið og krabbamerkið
Samkvæmt fyrri alda stjörnuspeki
tengist engiferrótin tunglinu og
höfðar víst þess vegna alveg sér-
staklega til þeirra sem fæddir eru í
krabbamerkinu. Sama er að segja
um melónur. Svo að ef við viljum
gera okkur ógleymanleg, eða jafnvel
ómótstæðileg einhverjum sem fædd-
ir eru í því stjörnumerki má reyna
að bjóða upp á ábætisrétt þar sem
melónubitar, ögn af rifinni engiferrót
og sleikja af hunangi koma við sögu.
Þetta er borið fram með mjúkum
vanilluís og rifnu súkkulaði. Það má
meira að segja toppa þetta með staupi
Fróðleiksbásinn
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur
Hinn elskulegi engifer
og útúrdúr um enskan biskup
Engiferhnýði – út úr búð.
Rústir munkaklaustursins í Abington – þangað fór Hróðólfur.
Engifer í blóma.
Engiferjurtin.