Bændablaðið - 17.12.2015, Síða 2

Bændablaðið - 17.12.2015, Síða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015 Fréttir Samtökin Landsbyggðin lifi með skoðanakönnun um afstöðu fólks til búsetu utan höfuðborgarsvæðisins: Fólk vill búa úti á landi ef grunnstoðirnar eru í lagi − Einhæf atvinna, slakt aðgengi að heilbrigðisþjónustu, skólum og internetinu helstu áhyggjuefnin Í skoðanakönnun samtakanna Landsbyggðin lifi um viðhorf Íslendinga til búsetu kemur sterk- lega fram hvað þurfi að vera til staðar þegar fólk tekur ákvörðun um búsetu. Konur voru í miklum meirihluta svarenda, eða 68,5% á móti 31,5% karla. Þá var rúmlega þriðjungur þátttakenda búsettur á höfuðborgar- svæðinu. Það vekur því óneitanlega athygli að 61,9% þeirra sem tóku afstöðu sögðust sjá það fyrir sér að búa á landsbyggðinni í framtíðinni. Þá sögðust 125, eða 27,2%, sjá fyrir sér að búa í framtíðinni á höf- uðborgarsvæðinu, en 50 eða 10,9% sáu fyrir sér að búa erlendis. Atvinnuöryggið og grunnþjónustan skipta höfuðmáli Þessi mikli áhugi sem kom fram í könnuninni um áhuga á búsetu á landsbyggðinni kom þeim sem unnu könnunina talsvert á óvart. Þar sem stór hluti svarenda, eða 34%, var af höfuðborgarsvæðinu, þá vöknuðu eðlilega spurningar um hvers vegna þetta fólk veldi sér ekki búsetu í sam- ræmi við greinilegan vilja. Svarið við því endurspeglast í annarri spurningu þar sem spurt var hvaða atriði skiptu mestu máli varðandi val á búsetu- stað. Þar er það heilbrigðisþjónustan og atvinnuöryggi sem skipta lang- mestu máli og þar á eftir eru það skólar og aðgengi að menntun. Í skólamálum er grunnskólinn mikil- vægastur að mati svarenda, þá kemur leikskóli og framhaldsskóli þar rétt á eftir. Mikilvægi háskóla er einnig álitið töluvert. Konurnar ráða miklu um búsetuval Greinilegt er að konur ráða miklu um val á búsetu, því að í hópi kvenna á aldrinum 31–40 ára sem þátt tóku í könnuninni sögðust 61% þeirra vilja búa úti á landi, en settu jafnframt ákveðin skilyrði um að grunnþjón- ustan væri í lagi. Enda brýtur það greinilega meira á konum en körlum að ekki sé of langt að sækja í læknis- þjónustu og skóla. Má þar t.d. nefna að fæðingarstofur eru ekki lengur fyrir hendi á stórum landsvæðum. Stöðugleiki byggða eða byggða- festa veiðiheimilda við sjávarþorp skipti fólk líka miklu máli, enda er það oft lykillinn að því að byggðun- um haldist á allri grunnþjónustunni. Sjávarútvegur, ferðaþjónusta og landbúnaður mikilvægustu greinarnar Þegar spurt var hvaða atvinnuvegir skiptu mestu máli fyrir landsbyggð- ina voru þrír atvinnuvegir sem stóðu upp úr. Þar var sjávarútvegur síðan ferðaþjónusta og þá landbúnaður rétt á eftir. Síðan var það atvinna í opinberri þjónustu og starfsemi stofnana sem skipti fólk líka tölu- verðu máli. Helsti vandinn einhæft atvinnulíf, heilbrigðismál og skólar Þegar spurt var um hvað fólk teldi vera helsta vanda landsbyggðar- innar voru svörin þau að einhæft atvinnulíf, lítið atvinnuöryggi og fækkandi atvinnutækifæri væri stærsti vandinn. Þar á eftir komu heilbrigðismál, samgöngur, skóla- mál og netsamband. /HKr. Samkvæmt mannfjöldaspá Eurostat mun fjölga í flestum ríkjum Vestur-Evrópu á næstu 64 árum: Íslendingar verða 467 þúsund árið 2080 − Þjóðverjum mun snarfækka líkt og íbúum flestra Austur-Evrópuríkja, en Bretar verða fjölmennasta þjóð Evrópu Samkvæmt mannfjöldaspá Eurostat, hagstofu ESB, þá mun Íslendingum fjölga úr rúmlega 328 þúsundum á þessu ári í rúm- lega 467 þúsund árið 2080. Samkvæmt þessari spá er gert ráð fyrir að Íslendingar verði orðnir 341 þúsund árið 2020 og rúmlega 366 þúsund árið 2030. Þá verða íbúar landsins orðnir rúmlega 388 þúsund árið 2040, nærri 409 þúsund árið 2050 um 428 þúsund árið 2060, tæplega 448 þúsund árið 2070 og rúmlega 467 þúsund árið 2080. Athygli vekur að í spánni er gert ráð fyrir umtalsverðri fjölgun íbúa í Bretlandi, Frakklandi og í Svíþjóð fram til 2080, en verulegri fækkun íbúa í Þýskalandi. Þá mun einnig fækka töluvert í Portúgal og Grikklandi samkvæmt spánni. Bretland verður fjölmennasta ríki Evrópu Bretar verða fjölmennasta þjóð Evrópu árið 2080 samkvæmt spá Eurostat. Í dag eru íbúar Stóra- Bretlands rúmlega 64,6 milljónir, er er spáð að verði 85,1 milljón árið 2080. Frökkum mun einnig fjölga veru- lega fram til 2080. Íbúar Frakklands eru nú tæplega 66,2 milljónir í dag, en verða samkvæmt spánni rúmlega 78,8 milljónir árið 2080. Þjóðverjum fækkar verulega Mjög neikvæð íbúaþróun mun verða í Þýskalandi samkvæmt spánni. Íbúar Þýskalands eru í dag 80,7 milljónir en munu samkvæmt spá Eurostat fækka í 65,4 milljónir árið 2080, eða um 15,3 milljónir. Norðurlandabúum fjölgar Svíar teljast vera rúmlega 9,7 millj- ónir í dag. Samkvæmt spánni mun þeim fjölga í 14,1 milljón fram til 2080. Norðmenn eru nú tæplega 5,2 milljónir en mun fjölga í ríflega 8,5 milljónir fram til 2080. Þá eru Danir nú rúmlega 5,6 miljónir en mun fjölga í tæplega 6,8 milljónir. Finnar eru nú tæplega 5,5 milljónir en fjölgar samkvæmt spánni í tæp- lega 6,4 milljónir. Í spánni koma ekki fram sérstakar tölur um þróunina í Færeyjum, né á Grænlandi, og eru þær þjóðir þá væntanlega skilgreindar með Dönum. Einnig má geta þess að frændur vorir Írar teljast nú vera 4,6 millj- ónir en verða tæplega 5,9 milljónir ef spáin gengur eftir. Af öðrum Evrópuþjóðum er það að segja að á Kýpur mun íbúum fjölga úr 873 þúsund í 1.253 þús- und. Á Ítalíu mun íbúum fjölga úr rúmlega 60,9 milljónum í rúmar 65 milljónir. Á Möltu mun íbúum fjölga úr 426 þúsund í 482 þúsund. Íbúum á Spáni fjölgar samkvæmt spánni úr tæplega 46,4 milljónum í tæplega 47,6 milljónir. Þá mun fjölga í Sviss úr rúmum 8,2 millj- ónum í tæplega 11,9 milljónir. Austurríkismönnum mun einnig fjölga úr tæplega 8,6 milljónum í tæplega 9,6 milljónir. Í Tékklandi fjölgar úr rúmlega 10,5 milljónum í tæplega 11 millj- ónir. Íbúum Lúxemborgar mun fjölga úr tæplega 563 þúsund í tæplega 1,3 milljónir. Í Belgíu mun fjölga úr 11,3 milljónum í rúmlega 16,6 milljónir. Íbúum Hollands mun hins vegar lítillega fækka eða úr tæplega 16,9 milljónum í 16,7 milljónir. Þá mun fækka í Portúgal úr tæplega 10,4 milljónum í 7,1 milljón. Fækkun í nær allri Austur- Evrópu og Þýskaland fylgir með Fækkun mun verða í nær allri austanverðri Evrópu og suður til Grikklands að Kýpur undanskildu og nær sú fækkun eins og fyrr segir inn í Þýskaland þar sem hún verður mest. Í Eistlandi, Lettlandi og Litháen mun fækka nokkuð sem og í Póllandi þar sem gert er ráð fyrir fækkun úr tæpum 38,5 milljónum í rúmlega 29,6 milljónir. Þá mun íbúum einnig fækka í Slóvakíu, Ungverjalandi, Króatíu, Slóveníu, Rúmeníu, Búlgaríu, Grikklandi og Portúgal. Í tölum Eurostat er ekki spáð um þróunina í Bosníu Herzegovinu, Svartfjallalandi, Serbíu né í Albaníu. /HKr. 0 100 200 300 400 ANNAÐ SJÁLFBÆRNI AÐGENGI AÐ FJÁRMAGNI TIL KYNSLÓÐASKIPTA Í ATVINNUREKSTRI AÐGENGI AÐ HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU AÐGENGI AÐ MENNTUN ATVINNUÖRYGGI BYGGÐAFESTA VEIÐIHEIMILDA VIÐ SJÁVARÞORP Þýskaland Ungverjaland Tékkland Svíþjóð Sviss Spánn Slóvenía Slóvakía Rúmenía Pólland Portúgal Malta Noregur Lúxemborg Litháen Lettland Kýpur Króatía Ítalía Ísland Írland Holland Grikkland Frakkland Finnland Eistland Danmörk Búlgaría Bretland Belgía Austurríki 65.378 8.685 10.998 14.111 11.871 47.599 2.007 3.868 16.338 29.582 7.114 482 8.851 1.287 1.842 1.351 1.253 3.472 65.059 467 5.896 16.718 7.698 78.843 6.382 1.029 6.792 4.925 84.149 16.614 9.562 Íbúafjöldi Evrópulanda 2015 og spá Eurostat um þróunina til 2080
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.