Bændablaðið - 17.12.2015, Page 10

Bændablaðið - 17.12.2015, Page 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015 Verðandi búfræðingar, útskriftar nemar 2016, í Landbúnaðar háskólanum á Hvanneyri, hafa látið framleiða Markaspil. Spil sem nemendur hafa spilað fyrir próf í eyrna- merkingum síðustu árin. Hugmyndin að Markaspilinu kviknaði síðastliðið haust þegar búfræðingar voru að læra undir próf í markaheitum og eyrna- merkingum. Til að eiga auðveldara með að muna mörkin bjuggu nem- endurnir sér til samstæðuspil og spiluðu það og gekk öllum vel á prófinu. Nemendurnir sem standa að spilinu eru að ljúka öðru ári í búfræði og stefna flest á búskap. Í vor mun hópurinn halda í útskriftarferð til Lúxemborgar, Belgíu og Frakklands þar sem fræðst verður um verklag annarra þjóða. Með kaupum á spilinu styrkir fólk þessa ungu og flottu fulltrúa bændastéttarinnar. Markaspilið er skemmtilegt samstæðuspil fyrir alla fjöl- skylduna, spilið er einfalt og er bæði fyrir unga sem aldna. Hægt er að spila það sem veiðimann, sam- stæðuspil og fleira. Markmið spils- ins er að kenna eyrnamerkingar og markheiti á íslensku sauðfé og því skemmtilegt og flott framtak. Sala á spilinu er hafin og ætti að vera skemmtileg jólagjöf á sveita- heimilum í bæjarfélögum og meðal borgarbarna. Nánari upplýsingar á www. facebook.com/markaspilid eða á markaspilid@gmail.com /VH Fréttir Verðandi búfræðingar senda frá sér markaspil Matvælastofnun: Skrifstofa búnaðarmála tekur til starfa á nýju ári Um næstu áramót færast stjórn- sýsluverkefni, sem Búnaðar- stofa sinnti á þessu ári, til Matvælastofnunar. Þetta var ákveðið á Alþingi fyrr á árinu við breytingar á búvörulögum. Um er að ræða umsýslu allra styrkja til bænda svo sem bein- greiðslna í mjólk, sauðfé, græn- meti og ull, ásamt nýliðunar-, jarðræktar-, vatnsveitu- og lýs- ingarstyrkjum. Þá munu fylgja verkefni eins og að halda utan um framleiðslu og sölu landbúnaðar- afurða. Jafnframt færist tölvukerfið AFURÐ, greiðslukerfi landbúnað- arins, yfir til Matvælastofnunar. Rafrænar umsóknir sem hafa verið á Bændatorginu ásamt yfirliti yfir greiðslur til bænda og skattyfirlit verða áfram á Bændatorginu. Skrifstofa búnaðarmála Búnaðarstofa hefur starfað frá 1. janúar á þessu ári sem sjálfstæð rekstrareining innan Bændasamtaka Íslands. Frá og með 1. janúar 2016 verða verkefni hennar færð inn í sér- staka skrifstofu hjá Matvælastofnun, skrifstofu búnaðarmála. Skipuriti Matvælastofnunar hefur verið breytt til samræmis. Greiðslur með eðlilegum hætti Bændur eiga að finna sem minnst fyrir þessari breytingu um áramót, enda hefur allt kapp verið lagt á að greiðslur til bænda geti gengið fyrir sig með eðlilegum hætti á nýju ári. Bændablaðið lagði nokkrar spurningar sem tengjast flutningn- um og starfsemi Skrifstofu búnað- armála fyrir Jón Gíslason, forstjóra Mast. Hvaða breytingar munu flutn- ingarnir hafa í för með sér fyrir bændur? Unnið hefur verið að undirbún- ingi flutningsins með það að höf- uðmarkmiði að bændur verði sem minnst varir við breytingarnar. Allt kapp hefur verið lagt á að sú breyting sem verður um áramót gangi eins vel fyrir sig og nokkur kostur er. Vinnan við flutning verkefna frá Bændasamtökunum hefur verið sam- starfsverkefni Matvælastofnunar, Bændasamtakanna og atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytisins. Bændur munu verða varir við að frá og með 4. janúar 2016 munu Bændasamtökin ekki lengur hafa umsjón með stuðningsgreiðslum til bænda, heldur verður það verkefni Matvælastofnunar í umboði ríkisins. Með þessum flutningi er verið að bregðast við gagnrýni sem komið hefur fram af hálfu Ríkisendurskoðunar varðandi eftirlit með framkvæmd búvöru- samninga en einnig er ætlunin að einfalda framkvæmd búvörulaga, þannig að stjórnsýsluverkefni sem tilgreind eru í ákvæðum laganna verði á hendi eins aðila, sem sé undirstofnun ráðuneytisins. Það er verið einfalda stjórnsýsluna; því að bæði ábyrgð og framkvæmd verk- efnanna verður hjá Matvælastofnun, ekki hjá tveimur aðilum, eins og nú er og að hluta til með samningi milli þessara aðila. Þann 1. janúar 2015 var sett á laggirnar sjálfstæð rekstrarein- ing innan Bændasamtakanna, Búnaðarstofa, í samræmi við samning Bændasamtakanna, Matvælastofnunar og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins frá des- ember 2014. Innan Búnaðarstofu hefur stjórnsýsluverkefnum verið safnað saman í eina rekstrarein- ingu og samstillt vinnuteymi verið búið til, sem fylgir verkefnunum til Matvælastofnunar. Innan þessa vinnuteymis eru einstaklingar sem hafa mjög mikla reynslu og þekkingu á þeim verkefnum sem um er að ræða. Það auðveldar flutninginn um áramótin. Í haust var samþykkt breyting á skipuriti Matvælastofnunar og búin til skrifstofa búnaðarmála innan Matvælastofnunar, sem sjá mun um þessi mál og tekur við hlutverki Búnaðarstofu frá og með 1. janúar 2016. – Hvert er starfssvið starfsfólks og hver er forstöðumaður? Starfsmenn skrifstofu búnað- armála hjá Matvælastofnun verða fimm. Jón Baldur Lorange, sem hefur stýrt Búnaðarstofu á þessu ári og var þar áður yfirmaður tölvu- deildar Bændasamtaka Íslands til 25 ára, hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri skrifstofunnar frá og með 1. janúar 2016. Það færist einn starfsmaður frá stjórnsýslusviði Matvælastofnunar yfir á skrifstofu búnaðarmála frá áramótum. – Hver eru verkefni skrifstofu- bún aðar mála? Verkefni skrifstofu búnaðarmála eru stjórnsýsluverkefni í tengslum við búvörusamninga og búnaðarlaga- samning í samræmi við búvöru- og búnaðarlög. Skrifstofan annast fag- og fjárhagslega framkvæmd verkefna á sviði landbúnaðar sem stjórnvöld og Alþingi felur Matvælastofnun með lögum, reglu- gerðum, samningum og ýmsum stjórnvaldsákvörðunum sem snúa meðal annars að framkvæmd á ákvörðunum um opinberar greiðsl- ur til bænda, útreikningi, afgreiðslu og eftirliti með framkvæmd þeirra. Skrifstofan heldur utan um skrá um handhafa beingreiðslna og greiðslu- mark mjólkur og sauðfjárafurða auk þess að sjá um greiðslur til bænda samkvæmt samningi um starfsskil- yrði í mjólkurframleiðslu og sauð- fjárframleiðslu. Þessar greiðslur eru beingreiðslur, álagsgreiðslur vegna gæðastýrðar framleiðslu, gripagreiðslur í nautgriparækt, og geymslugjald vegna sauðfjár- framleiðslu. Umsjón með styrkjum vegna nýliðunar í mjólkur- og sauð- fjárframleiðslu, jarðabóta bænda, lýsingarbúnaði í gróðurhúsum og styrkir vegna vatnsveitna á lögbýl- um verður einnig á verksviði hinnar nýju skrifstofu hjá Matvælastofnun. Skrifstofa búnaðarmála safnar upp- lýsingum og birtir árlega skýrslu um framleiðslu búvara, vinnslu þeirra og sölu, sem og að gera áætlanir um framleiðslu og sölu búvara. Söfnun hagtalna hvað varðar búfjárfjölda bænda og fóðurbirgðir í tengslum við búfjáreftirlit verður eitt af verk- efnum skrifstofu búnaðarmála. Því fylgir umsjón með tölvukerfinu Bústofn og þróun þess. Að síðustu má nefna að reglusetning og eftirlit með skráningu í hjarðbókargagna- grunna verður á verksviði skrifstof- unnar ásamt kvótamarkaði um kaup á greiðslumarki mjólkur. Á síðustu árum hafa verið smíðuð viðamikil tölvukerfi og gagnagrunn- ar í Oracle hjá Bændasamtökunum í tengslum við fyrrgreind stjórnsýslu- verkefni. Um er að ræða AFURÐ, greiðslukerfi landbúnaðarins, og sá hluti Bændatorgsins sem þróaður hefur verið vegna þessara stjórn- sýsluverkefna sem Bændasamtökin hafa unnið í umboði stjórnvalda. Þá má nefna tölvukerfið MARK (www. bufe.is) sem var byggt upp í tengsl- um við skyldumerkingar búfjár og allir bændur nota til að panta viðurkennd og einkvæm plötu- merki. Þarna hefur upplýsingatækni verið beitt til að koma á rafrænni stjórnsýslu til að auka skilvirkni, gegnsæi og hagkvæmni. Skrifstofa búnaðarmála hjá Matvælastofnun tekur við þessum tölvukerfum og gagnagrunnum og hefur umsjón með rekstri og þróun þeirra. – Hvernig er flutningurinn og rekstur skrifstofunnar fjár magn- aður? Í fjárlögum 2016 er gert ráð fyrir fjárveitingu til Matvælastofnunar vegna flutningsins, svipaðri upphæð og kostaði að reka Búnaðarstofu árið 2015 og eru þeir fjármunir teknir af liðum búvörusamninga í fjárlögum 2016. − Hvar verður skrifstofan til húsa? Skrifstofa búnaðarmála verður á árinu 2016 staðsett í Bændahöllinni á 2. hæð. Þessi verkefni verða því áfram unnin í Bændahöllinni, en breytingin er að ábyrgð- ar- og framkvæmdaraðili verður Matvælastofnun. /VH

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.