Bændablaðið - 17.12.2015, Page 12

Bændablaðið - 17.12.2015, Page 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015 Oft sest ég niður og hugsa um þau undur sem hafa gerst á sl. fimm- tíu árum. Öll munum við lagið frá þeim tíma sem Vilhjálmur Vilhjálmsson söng með sinni fal- legu rödd: „Mig dreymdi að væri komið árið tvö þúsund og tólf/ þeir tunglið höfðu malbikað og steypt í hólf og gólf/ Já veröldin var skrýtin það var allt orðið breytt/ því vélar unnu störfin og enginn gerði neitt.“ Frá þessum táningsárum mínum hefur margt gerst sem engan óraði fyrir þá og sá sem hefði sett fram skoðanir um mestu tækniundrin sem litið hafa dagsins ljós hefði verið talinn léttgeggjaður. Á þessum árum var t.d. Kanasjónvarpinu lokað og það bundið við örlítið svæði í Keflavík. Menn óttuðust áhrif og spillingu frá Bandaríkjunum og unga fólkið og íslenskan var talin í hættu, hvað nú allar gáttir opnar og frjálsar. Ég minnist þess hins vegar frá mínum Laugarvatnsárum að krakkarnir af Suðurnesjum, úr Keflavík sérstak- lega, kunnu ensku upp á tíu,en voru ekkert minni Íslendingar en við hin. Jú, svolítið heimsborgaralegri miðað við mig og okkur marga sveitamennina sem ekki höfðum heyrt útlensku á þessum árum. Vélarnar hafa tekið við Já, sannarlega hafa vélarnar tekið við flestum erfiðisstörfum. Tæknin sem þurfti heilu herbergin undir sín tæki og tól rúmast í einum litl- um gemsasíma. Upplýsingar sem tók mann heilu dagana að afla eru geymdar hjá meistara gúggla. Allt sem hefur verið sagt eða hugsað á jörðu sækir maður þangað á sek- úndubroti. Bændur og sjómenn sem voru í þrælaríi fyrir hálfri öld eru að verða eins og meðal skrifstofurassar, horfa á skjái og fylgjast með öllu í gegnum tölvu. „Því tölvur vinna störfin og hugsa fyrir menn.“ Þeir eru feitir og sælir og farnir að deyja eins og aðrir úr hreyfingarleysi enda margir þeirra langt yfir meðalvigt í þunga. Þeir horfa á róbóta sem vinna verkin og róbótinn er vinnufélaginn og auð- vitað svo gemsinn. Þeir eru eins og aðrir í góðu og betra sambandi við einhvern úti í heimi heldur en nágrannana sem þeir hitta og tala við á þorrablótinu sem ókunnuga menn. Blessað fólkið í stofunni á kvöldin, það er þögult og því er stirt um stef, þar situr hver og einn með sinn Ipad í eigin heimi. Allsberi listamaðurinn sem sat með sjálfum sér í kassa í heila viku var auðvitað að hæða heiminn, og tókst það prýðilega. Nú halda listunnendur að það beri að geyma kassann sem tákn þessa mikla listaverks, drengurinn hafði allt sem hann þurfti á nútímavísu og handrukkaði meira að segja sjálfan sig um hamingjuna, og heimurinn horfði á. Hvað gerist á næstu 50 árum? Verður samtalið horfið milli manna og tákn tekin við? Verður heim- ilisbíllinn óþarfur? Spenna menn litla englavængi á bak sitt til að fara í vinnuna og svífa svo upp fyrir húsin og áfram eins og fugl- ar himins? Eða fara menn ekkert til vinnu, sitja heima og vinna allt í gegnum veraldarvefinn? Verður komið eitt tungumál? Verður íslenskan bara töluð á sunnu- dögum eins og danskan forðum í Stykkishólmi og á Eyrarbakka? Verður kjöt og mjólk framleitt úr grasi svo að kýr og naut, hvað þá svín, verða óþörf? Eða tökum við inn pillu á morgnana, í stað matar? Verða börnin framleidd í hitaskáp til að auka jafnrétti kynjanna? Eða eins og Ómar Ragnarsson kvað; „Enginn vandi að nota klónun til að fjölga sér./ Tæknifrjóvgun stórkostleg er stunduð hér í dag:/ Staðgöngumæðrun verður bráðum löggilt fag.“ Og hann bætti svo við og sagði: „Gömlu dagana gefðu mér!/Þá gat ég verið einn með þér./ Nú tæknin geggjuð orðin er./ Til gömlu daganna gef mér far fljótt til baka/ Ég yrði ánægður með lífið eins og það var.“ Ætli það sé ekki best að vera svolítið íhaldssamur og taka upp gamla og góða siði –spjalla saman horfa í augun á hvert öðru hlæja og gráta saman. Og sannarlega ganga til þess verks að bjarga heiminum, minnka útblásturinn, minnka eyðslu og sóun svo að barnabörnin okkar taki við betra lífi, meiri hamingju og góðri móðurjörð sem við öll eigum saman og skulum verja. Við skulum hlusta og skilja þá dauðans alvöru sem eyðslan og einsemdin hefur í för með sér. Guðni Ágústsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra og rithöfundur: Tækniundrið Fréttir Okkur hættir til að horfa eingöngu á gróðurþekju og tegundafjölda við mat á árangri uppgræðslu- starfs. Það segir þó aðeins hálfa söguna. Land sem við fyrstu sýn lítur út fyrir að vera vel uppgróið og hæft til beitarnota á ný getur verið í svo viðkvæmu ástandi að það þolir jafnvel ekki létta beit. Ástand og þol endurheimtra vist- kerfa byggir nefnilega ekki síður á ástandi jarðvegsins. „Fólk veltir þætti jarðvegsins í heildarsamhengi landgræðslu allt of sjaldan fyrir sér,“ segir Jóhann Þórsson, vistfræðingur hjá Landgræðslu ríkisins. „Frjósöm mold er forsenda beit- arþolinna vistkerfa og ekki allt sem sýnist þegar horft er yfir uppgrætt land. Það getur vissulega litið vel út en undir örþunnri gróðurhulu er kannski sandur sem á lítið skylt við frjósama mold. Sendinn jarðvegur er erfiður þegar kemur að uppgræðslu. Hann er laus í sér og rofgjarn og þolir því ekki mikið rask. Auk þess er sandurinn ófrjósamur og allt veldur þetta því að gróður á slíkum svæðum á erfitt uppdráttar. Því þarf að huga vel að landnýt- ingu á slíkum svæðum. Vanþekking á eðli jarðvegarins getur því valdið því að uppgræðsluaðgerðir fari fyrir lítið.“ Landgræðsla er kostnaðarsöm Að sögn Jóhanns er ekki þar með sagt að sendinn jarðvegur sé ónýt- ingarhæft land. „Landið í kring- um Gunnarsholt á Rangárvöllum er mjög sendið og þar hafa verið ræktaðir upp miklir akrar á tiltölu- lega skömmum tíma sem gefa vel af sér. Þar hefur jarðvegurinn náð nægj- anlegri frjósemi til að unnt sé að nýta landið. Forsenda þess að ná slíkum árangri er að nægilega sé borið á landið í upphafi, það nái að þróast og þroskast, og að vel sé fylgst með því. Það er augljóslega kostnaðarsamt og því ekki raunhæft með beitarnýt- ingu sem meginmarkmið nema þá að landið gefi þeim mun meira af sér. Ef það gefur lítið af sér, til dæmis á hvern hektara, eins og beitiland gerir gjarna þá er þetta ekki raunhæft markmið. Beitiland á sandsvæðum verður alltaf viðkvæmt.“ Skortur á köfnunarefni „Oft er það svo að fólki finnst lítið vera að gerast á landgræðslusvæð- um og árangurinn af starfinu tak- markaður. Þetta á sérstaklega við ef um að ræða hrjóstrug svæði. En það er ekki allt sem sýnist. Þótt hágróður, grös og blóm- jurtir virðast eiga erfitt uppdráttar eftir að áburðaráhrifin fjara út er þarna líf, en það dylst okkur því það er smágert og við erum ekki vön að horfa eftir því. Þörungar, mosar og fléttur ásamt margvísleg- um örverum eru að mynda þekju, skán, og grös og blómplöntur eru líka að mynda fræ og fjölga sér þótt í smáum stíl sé. Ég hef stundum kallað þetta sinustigið. Þetta er í rauninni fyrsta framvindustig landgræðslusvæða þegar köfnunarefni fer að skorta, en örverur sem brjóta sinuna gera miklar kröfur til köfnunarefn- is. Þarna er komið að ákveðnum þröskuldi framvindunnar sem við eigum ekki svo gott með að ráða við og lítið annað í boði en að bíða, því með tímanum binda þessar lífverur köfnunarefni sem verður smám saman til reiðu fyrir annan gróður. Þegar því stigi er náð förum við að sjá verulegar breytingar. En þetta getur tekið langan tíma og óhætt er að tala um áratugi í því samhengi. Þetta sjáum við glögglega til dæmis á þeim svæðum sem voru grædd upp með Þjóðargjöfinni 1974. Þau svæði eru mörg hver núna fyrst að taka verulega við sér, 40 árum síðar. Við getum auðvitað stytt okkur leið og notað áburð en það er dýrt og óraunhæft miðað við umfang þessara svæða, og mikil áburðargjöf getur haft neikvæð áhrif á náttúrulega framvindu.“ Svipað ástand og eftir ísöld „Ef horft er til baka þá gerum við ráð fyrir að land hafi verið nærri gróðurlaust við lok ísaldar. Ástandið var væntanlega eitthvað í líkingu við mörg örfoka land- græðslusvæði eins og við þekkjum þau í dag. Samkvæmt frjókornagreining- um í jarðvegssniðum tók það um 1000 ár frá lokum ísaldar þang- að til það fóru að sjást gras- og birkifrjókorn um nánast allt land. Það hefur semsagt tekið um 1000 ár fyrir gróður að nema Ísland. Það er hinn raunverulegi tíma- skali þegar við erum að horfa á framvindu innan stórra svæða, við erum að tala um áratugi eða frekar árhundruð ef átt er við algerlega örfoka landslag, ekki síst ofan 400 m hæðarmarka. Þessum tíma- skala getum við breytt með því að auka framboð á köfnunarefni eða búið til fræuppsprettur með upp- græðslum inni á þessum svæðum. Köfnunarefninu getum við miðlað með áburði eða með lúpínu en þar þurfum við í upphafi endinn að skoða. Með þessum inngripum erum við að stýra framvindunni inn á ákveðnar brautir og það er ekki víst að það sem verður til sé það sem við höfðum í huga í upphafi.“ Moldin er undirstaðan „Undirstaðan er alltaf moldin og það er hún sem við erum í rauninni að búa til með uppgræðslustarfi. En hún myndast mjög hægt. Þess vegna er þetta svona mikilvæg auð- lind sem við verðum að vernda, og jafnframt þurfum við að átta okkur á því hversu óskaplega langan tíma það tekur hana að myndast,“ segir Jóhann Þórsson, vistfræðingur og sérfræðingur hjá Landgræðslunni. /VH Tilgangurinn með landgræðslu: Ekki allt sem sýnist þegar horft er yfir uppgrætt land Jóhann Þórsson, vistfræðingur hjá Landgræðslu ríkisins. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Næsta blað kemur út 14. janúar 2016

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.