Bændablaðið - 17.12.2015, Page 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015
sjaldnar þurfi að kalla til sérhæfða
viðgerðarmenn.
Sama fyrirtæki hefur einnig hann-
að slíka tvinndráttarvél sem er GPS
stýrð og þarf engan ökumann og
hefur fengið nafnið „Spirit“.
John Deere með 400 volta rafstöð
Á Agritechnicasýningunni í Hanover
í Þýskalandi í síðasta mánuði sýndi
Þýskalandsdeild hins ameríska drátt-
arvélaframleiðanda John Deere, vél
sem talin er geta markað upphafið
að nýrri sókn í rafknúnum landbún-
aðartækjum. Þar er um að ræða John
Deere 7030E sem er með innbyggða
400 volta þriggja fasa rafstöð sem
skilar 230 volta riðstraumsorku.
Með tilkomu þessarar vélar hafa
vaknað spurningar um hvort þetta
marki endalok á notkun vökvabún-
aðar (hydraulic PTO). Klaus Hahn,
verkfræðingur hjá John Deere í
Mannheim telur að svo sé og að þessi
dráttarvél sé upphafið að einhverju
stórfenglegu.
Stefnan mörkuð varðandi
háspennubúnað í Bandaríkjunum
Á ráðstefnunni National Farm
Machinery Show í Louisville í
Bandaríkjunum í mars á þessu ári
komu verkfræðingar í dráttarvéla-
geiranum saman til að átta sig á
þörfunum í rafvæðingu landbúnað-
artækja. Þar komu menn sér saman
um að ekki yrði farið hærra en í
1.400 volta kerfi. Mest var þar þó
verið að huga að rafvæddum tengi-
búnaði við dráttarvélar sem knúnar
eru dísilvélum og búnar sérstökum
rafstöðvum, líkt og John Deere var
að kynna. Verkfræðingurinn Marvin
Stone telur líklegt að settur verði
innan árs ISO staðall fyrir slíkan
búnað hvað varðar tengingar og
annað, bæði í Bandaríkjunum og í
Evrópu. Þar verði efri mörkin sett
við 1.400 volta riðstraumsbúnað. Því
gætu verkfræðingar þegar farið að
nota það sem viðmið.
Búast megi við að dráttarvélar
búnar slíkum háspennurafölum og
tengibúnaður verði orðinn nokkuð
algengur eftir 3 til 5 ár. Taldi hann
að tengibúnaður sem áður hafi verið
knúinn með vökvaafli heyrði brátt
sögunni til. Rafbúnaður til slíkra
nota hafi tekið miklum framförum og
notkun hans einfaldaði alla hönnun
og viðhald. Sagði hann að auk John
Deere væri fjöldi annarra framleið-
enda í Bandaríkjunum og í Evrópu að
þróa slíkan rafbúnað. Þar á meðal eru
AGCO (sem er samsteypan á bak við
Challenger, Fendt, Valtra og Massey
Ferguson dráttarvélarnar), Case IH
(sem framleiðir m.a. Farmall, og
fleiri.
Tvíorkutæki í töluverðri þróun
Tvíorkuvélar til notkunar í landbún-
aði og námuvinnslu hafa eigi að síður
verið í töluverðri þróun, einkum hjá
Komatsu, John Deere, Caterpillar
og fleiri stórframleiðendum. Þeir
eru þar samt ekki að horfa á hrein-
ræktaðar rafknúnar vinnuvélar. Þar
koma minni framleiðendurnir aftur
á móti sterkir inn, eins og fyrrnefnd-
ur Weidemann, Linde, Touyota og
fleiri.
Í tvinnorku vinnuvélunum er
einkum verið að horfa til námu-
vinnslutækja þar sem verið er að
vinna í námum í mikilli hæð yfir sjó,
kannski í 4.000 metra hæð, þangað
sem bæði er dýrt og erfitt að flytja
að orku í formi dísilolíu.
Þannig hafa framleiðendur námu-
tækja verið að hanna risatrukka með
350 kílówatta rafgeymum sem endur-
hlaðnir eru með vindorkutúrbínum.
Talið er að markaðurinn fyrir raf-
knúin tæki í verktakaiðnaði, námu-
vinnslu og landbúnað muni velta um
30 milljörðum dollara árið 2025. Er
því ljóst að stórframleiðendur munu
leggja aukna áherslu á að ná sínum
bita af þeirri köku.
Hreinræktaðar stórar rafknúnar
dráttarvélar ekki alveg í augsýn
Enn virðast þó ekki í augsýn stór-
ar dráttarvélar sem að öllu leyti eru
knúnar raforku. Vandinn liggur í tak-
markaðri geymslugetu rafgeyma. Á
stórum örkum þýðir lítt að leggja af
stað á morgni á vél sem verður afl-
laus á tveim til þrem klukkustundum.
Aftur á móti er raftæknin að leiða til
þess að æ fleiri dráttarvélafyrirtæki
bjóða nú upp á ómannaðar fjarstýrð-
ar dráttarvélar sem keyra eftir GPS
gervihnattastýringu. Í því felst líka
að gírskiptingar eru mjög að þróast
yfir í CVT stiglausar skiptingar sem
gera allar tæknilausnir við slíka fjar-
stýringu auðveldari.
Rafdrifnir flutningabílar kynntir
til sögunnar
Þrátt fyrir að stórar rafknúnar drátt-
arvélar virðist ekki í augsýn, þá eru
bifreiðafyrirtækin á fullu að þróa raf-
knúna bíla, jafnvel sem dráttarbíla
fyrir flutningageirann. Þar gilda þó
aðeins önnur lögmál þar sem slíkir
bílar geta borið meiri þunga í raf-
geymum þar sem þeir eru ekki að aka
á gljúpum ökrum. Þannig eru þegar
framleidd rafknúin dráttartæki til að
nota t.d. á höfnum og flugvöllum sem
geta t.d. dregið 60 tonn eins og frá
kínverska framleiðandanum Jiangsu
Anil Electromobil Co.
BMW kynnti í júlí á þessu ári 18
hjóla dráttarbíl með 40 tonna flutn-
ingsgetu. Hann er hreinræktaður raf-
bíll sem skilur ekki eftir sig neinn
kolefnisútblástur. Þessi bíll var hann-
aður sem samvinnuverkefni BMW,
hollenska framleiðandans Terberg og
þýska flutningafyrirtækisins Scherm
Group. Bíllinn var sérstaklega smíð-
aður til að flytja dempara, stýrismask-
ínur og gorma á milli flutningamið-
stöðvar Scherm og bílaverksmiðju
BMW í München, átta sinnum á dag.
Samkvæmt upplýsingum BMW er
þetta fyrsta ökutæki sinnar tegundar
í Evrópu til að vera sett í reglulega
þjónustu af þessum toga.
Kemst aðeins 100 km á hleðslunni
en án loftmengunar
Hermann Bohrer, yfirmaður bílaverk-
smiðju BMW segir að með þessum
rafknúna flutningabíl sé verið að
senda sterk skilaboð um notkun raf-
knúinna farartækja utan borganna.
Er BMW fyrsti bílaframleiðandinn
í Evrópu til að taka svo stóran raf-
flutningabíl í notkun á þjóðvegum
landsins. Bíllinn kemst þó ekki nema
100 kílómetra á hleðslunni en á móti
kemur að BMW sparar með honum
11,8 tonn af kolefnisútblæstri CO2
á ári sem annars væri raunin með
notkun á dísilknúnum bíl.
Þessi flutningabíll er skref í áttina
að aukinni rafvæðingu bíla og vinnu-
véla. Ýmsir veðja þó á önnur hross
í þeim efnum og þá helst á gas eða
vetni sem orkugjafa. Þar er þó helsti
gallinn að innviði skortir víða hvað
varðar dreifingu á orkumiðlinum,
sem yfirleitt er ekki eins mikið
vandamál varðandi raforkuna.
Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Með þökk fyrir viðskiptin.
Á Agritechnica sýningunni í Hanover í Þýskalandi í síðasta mánuði sýndi
Þýskalandsdeild hins ameríska dráttarvélaframleiðanda John Deere, vél sem
-