Bændablaðið - 17.12.2015, Síða 22

Bændablaðið - 17.12.2015, Síða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015 Haustið 1915 var liðin öld frá því að fé af Norðurlandi var flutt til Grænlands. Með innflutningi þessa íslenska stofns, og hrúta tvisvar síðar, urðu þáttaskil í grænlenskri sauðfjárrækt. Hún varð að búgrein sem flestir bændur þar starfa við í dag. Margir þeirra hafa dvalist við verknám á fjárbúum hér á landi, nokkrir hafa numið við bændaskólana og fjöl- margir Íslendingar hafa dvalist á Grænlandi um lengri eða skemmri tíma við leiðbeiningar og rannsóknir í þágu fjárræktarinnar. Sauðfjárræktin átti erfitt uppdráttar Eflaust hafa íslensku bændurnir sem fylgdu fordæmi Eiríks rauða og fluttu til Grænlands í lok 10. aldar tekið með sér fé héðan. Því má ætla að íslenskt fé hafi gengið í grænlenskum högum fram undir lok 15. aldar þegar búskapur þar hvarf ásamt fólkinu sem hann stundaði. Löngu síðar var reynt að endurvekja landbúnað á Grænlandi en það gekk erfiðlega. Þannig var flutt inn fé frá Færeyjum og Skotlandi upp úr aldamótunum 1900 en sauðfjárrækt átti erfitt uppdráttar. Þáttaskil urðu þegar Lindemand Walsöe bauðst til að byggja upp sauðfjárrækt á Grænlandi. Hann hafði ferðast til Ástralíu og víðar og kom fyrst til Íslands árið 1913, þá 33 ára gamall, dvaldist hér um skeið og kynnti sér sauðfjárbúskapinn. Fullvíst má telja að hann hafi þekkt mörg fjárkyn en miðað við landshætti á Grænlandi taldi hann íslenska féð henta best og þar reyndist hann sannspár. Því kom hann aftur árið 1915 til fjárkaupa. Fjárkaup á Norðurlandi Walsöe naut góðrar fyrirgreiðslu Sigurðar Sigurðssonar, fv. búnað- armálastjóra, við allan undirbúning fjárkaupanna en á þessum árum var Sigurður skólastjóri Bændaskólans á Hólum í Hjaltadal (1902–1920). Ærnar, flestar veturgamlar, voru frá Hólum og úr Svarfaðardal, sagðar stór og hraustleg ærefni. Hrútarnir voru aftur á móti keyptir á Sveinsstöðum í Þingi í Austur-Húnavatnssýslu en þar var sauðfjárkynbótabú sem naut stuðnings Búnaðarfélags Íslands frá 1911–1919. Féð var rekið til Reykjavíkur upp úr réttum haustið 1915, hrútarnir trúlega sameinaðir ærhópnum í Þingi eða Vatnsdal. Þótt þetta væri langur rekstur, með samtals 175 kindur, og síðan flutningur með skipinu Hans Egede frá Reykjavíkurhöfn til Julianehåb (Qaqortoq) í Eystribyggð, fórust aðeins tvær kindanna á leiðinni. Því urðu 173 íslenskar kindur stofn nýs sauðfjárræktar- bús í Julianehåb sem Walsöe veitti forstöðu um árabil. Það myndaði grunninn að landbúnaðarmiðstöðinni í Upernaviarsuk. Aftur voru keyptir hrút- ar frá Sveinsstöðum haustið 1921 og frá Hrafnkelsstöðum í Hrunamannahreppi í Árnessýslu haustið 1934 en þar naut sauð- fjárræktarbúið stuðnings frá Búnaðarfélagi Íslands um fjölda ára, allt frá 1923. Grænlendingar fengu því harðgeran og hentugan stofn, ræktaðan í takt við beitarbú- skap þeirra tíma, sem hefur reynst þeim vel í blíðu og stríðu. Féð laust við riðu Á árunum þegar féð var flutt til Grænlands var riða orðin þekkt víða á vestanverðu Norðurlandi en hún mun hafa borist með Oxford Down hrút sem fluttur var til lands- ins að Veðramóti í Gönguskörðum í Skagafirði árið 1878. Veikin var komin í Svarfaðardal árið 1912 og nokkru áður í Vatnsdal í fé sem gekk með fé úr Þinginu í sumarhög- um þannig að mikil mildi var að riðan barst ekki til Grænlands með þessum kindum. Ekkert fé hefur verið flutt inn síðan hrútarnir frá Hrafnkelsstöðum komu þangað árið 1934 nema tveir Spælsau hrútar frá Noregi árið 1957. Talið er að eftir að íslenska féð kom haustið 1915 hafi íslensku hrútarnir verið notaðir nær eingöngu og færeysku og skosku áhrifin hafi verið orðin lítil árið 1938. Þetta var síðan staðfest með sameindaerfðafræðilegum rannsókn- um (DNA) upp úr síðustu aldamót- um þannig að grænlenski stofninn er nú nær hreinræktað íslenskt fé. Þess má geta að flest er féð hyrnt, þó ekkert ferhyrnt, og þar er heldur ekki til forystufé. Grænlenska féð er laust við ýmsa sauðfjársjúkdóma og er að jafnaði hraust. Búskaparhættir líkir þeim íslensku Lengi vel háði fóðurskortur fjárbú- skapnum á Grænlandi og á liðinni öld féll fé í stórum stíl í hörðum árum. Mikil vetrarbeit án teljandi gjafar hélst mun lengur en hér á landi. Mesti fjárfellirinn var vetur- inn og vorið 1967 þegar fjárstofninn var stærstur, 45.000 vetrarfóðraðar kindur. Þá féll helmingurinn og síðan hefur fjártalan oftast verið á bilinu 15.000–25.000, nú um 19.000 vetrar- fóðraðar kindur á 38 bæjum þar sem búa 44 fjölskyldur. Húsakostur hefur verið bættur mikið síðustu áratugina, og sömuleiðis fóðuröflun og fóðr- un. Féð er rúið í lok mars –byrjun apríl, ærnar eru látnar bera heldur fyrr en hér og þeim er sleppt fyrr í úthaga á vorin en nú er algengast hér á landi. Lömbin eru eyrnamörkuð með sams konar norrænum mörkum og við notum og þau eru líka plötu- merkt eins og hér. Markskráin er frábrugðin að því leyti að birtar eru myndir af mörkunum fyrir hvern bæ, nú rúmlega 50 að tölu. Frjósemi ánna er nokkru minni en hér, öllu er slátr- að í einu sláturhúsi með ESB-vottun í bænum Narsaq, beint af úthagabeit í seinni hluta september, og er fall- þungi dilka svipaður og hér á landi. Grænlenska féð er mjög „íslenskt“ enda lítt blandað öðrum fjárkynjum. Litafjölbreytni er mikil, en þar er hvorki til ferhyrnt fé né forystufé. Mynd / Merete Rabølle Grænlenskur fjárbóndi að láta ærnar sínar inn á haustkvöldi. Margir þeirra hafa unnið á íslenskum fjárbúum. Mynd / Merete Rabølle Fóðrun fjár og húsakostur hafa tekið miklum framförum á Grænlandi síðustu áratugina. Mynd / Aqqalooraq Frederiksen
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.