Bændablaðið - 17.12.2015, Síða 35

Bændablaðið - 17.12.2015, Síða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015 af nýpressuðum safanum svo þarna sat eitthvað eftir í minningunni sem ég tók svo með mér lengra.“ Sækja kunnáttu í vínfræði Úr varð að fyrstu tvö árin fóru Geir og kona hans, Jane, í prufufram- leiðslu og þróunarvinnu en frá árinu 2008 má segja að full framleiðsla hafi átt sér stað. Aðalpressutíminn eru rúmir tveir mánuðir á haustin, frá september og fram í miðjan nóv- ember, og þá er jafnan hamagangur í pressuverksmiðjunni. „Það er allt á fullu þennan tíma sem við erum að pressa og mjög skemmtilegur tími. Síðan er svo- kallaður leigupressumarkaður þar sem við höfum fasta viðskiptavini sem koma með sína ávexti og við pressum fyrir þá. Þá útbúum við gjarnan sér merkimiða fyrir hvern og einn sem er mjög vinsælt,“ segir Geir en aðeins er ein tegund pressuð í einu í stóru pressunarvélinni. Geir og Jane hafa verið með- limir í Hardanger meny-verkefninu sem er gæðamerki fyrir bændur og veitingastaði í Harðangursfirðinum. Þau merkja allar vörur sínar með límmiða verkefnisins. „Frá byrjun höfum við eingöngu viljað hafa hreinar tegundir, það er að segja, við bætum engum aukaefn- um í safana. Þannig náum við eigin- leika hverrar tegundar fram og það er það sem er svo skemmtilegt við þetta. Einnig blöndum við eplasafa með hindberjum og öðrum berja- tegundum og alltaf fjallar þetta um að nota ekki sykur. Maður er alltaf að leita að nýjum bragðtegundum til að útvíkka heildarbragðmyndina. Það eru ekki mikil fræði í eplasafa- heiminum svo við höfum þurft að leita eftir kunnáttu í gegnum vín- fræði og erum á þann hátt stöðugt að þróa og bæta hin mismunandi brögð sem við fáum út úr mismun- andi tegundum. Hér skiptir miklu máli hvaða bragð hentar best með hvaða mat.“ Leggja áherslu á veitingahúsamarkað Þegar Geir og Jane byrjuðu á safa- gerðinni voru þau mjög ákveðin í því inn á hvaða viðskiptavinahóp þau ætluðu að leggja áherslu á. Háklassaveitingastaðir urðu fyrir valinu og er nánast öll framleiðslan seld til þeirra án nokkurra milliliða. „Það er mjög mikilvægt og áhugavert að hafa sögu á bakvið vöruna og tegundirnar sem við erum að nota. Viðskiptavinum líkar að heyra góða sögu á bakvið vöruna og það eru til margar góðar sögur um uppruna tegunda í eplafræðun- um. Einnig finnst viðskiptavinum áhugavert að geta orðið sér úti um matvæli sem hafa farið um stuttan veg og eru helst úr heimabyggð,“ útskýrir Geir og segir jafnframt: „Við vorum alveg ákveðin frá byrjun að fara inn á veitingahúsa- markaðinn en þar er vilji til að borga fyrir gæði og þar fáum við viðbrögð frá viðskiptavinum sem setja kröfur á vöruna. Hér höfum við einnig viðskiptavini sem vilja alltaf leita eftir nýjum bragðtegund- um og eru tilbúnir í örlitla tilrauna- starfsemi. Þetta er mikilvægt atriði fyrir þá sem vilja vera bestir þegar kemur að veitingahúsum. Eigandi veitingastaðarins metur líka að hafa vöru sem ekki allir aðrir hafa og getur byggt hluta af ímynd sinni á því. Það sem hefur hjálpað til og myndað okkar vinsældir er án efa það að við völdum þá bestu í bekknum frá upphafi og það skipt- ir miklu máli. Viðskiptavinir sem segja okkar sögu er okkar besta auglýsing.“ /ehg Geir hellir nýpressuðum safanum í falleg glös til smökkunar en úr safapressunarvélinni er safanum dælt í þúsund lítra tank þar sem hann er geymdur fyrir gerilsneyðingar- og átöppunarferlið. Nýpressaður, 100 prósent hreinn − guðdómlega góður. Vatnagörðum 24 - 26 • Reykjavík • Sími 520 1100 • www.bernhard.iswww.honda.is Snjómokstur er erfitt og tímafrekt verk. Það er þess vegna sem Honda hefur eytt yfir 30 árum í að hanna og þróa hágæða snjó- blásara sem standast mikið álag. Með afkastagetu allt frá 29 - 140 tonnum af snjó á klukkustund, þá finnur þú hágæða Honda snjóblásara sem hæfir þinu verki. Í fjölbreyttri vörulínu Honda er að finna margar nýjar og framúrskarandi eiginleika auk einkaleyfisbundna tækni, sem gerir þér kleyft að hreinsa snjó á eins einfaldan, hagkvæman og skilvirkan máta og mögulegt er. Rétt eins og allar vörur frá Honda eru snjóblásararnir hannaðir á mjög umhverfisvænan máta og þar af leyðandi eru þeir eyðslu- grannir, lág útblástursgildi og hljóðlátir. Honda snjóblásrara eru gerðir til að hreinsa mikið magn af snjó á sem léttastan máta.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.