Bændablaðið - 17.12.2015, Page 55

Bændablaðið - 17.12.2015, Page 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015 Sameinað Wacker Neuson árið 2005 Árið 2005 var Weidemann GmbH keypt af samsteypunni Wacker Neuson SE og starfar nú sem dótturfélag þess. Wacker Neuson er leiðandi framleiðandi á heims- vísu á hágæða tækjum og búnaði fyrir byggingaverktaka, landbúnað og fjölþættan iðnað eins og endur- vinnslu. Höfuðstöðvarnar eru í München, en verksmiðjur fyrirtæk- isins eru í Þýskalandi, Austurríki, Bandaríkjunum, Filippseyjum og í Serbíu. Alls eru dótturfélögin 50 talsins og umboðsaðilar eru meira en 140 víða um heim. Starfsmenn fyrirtækisins eru nú yfir 4.500. Í framleiðslu eru 300 gerðir af tækjum og búnaði og einkaleyfin eru orðin 365. Samsteypan hefur verið skráð á hlutabréfamarkaði SDAX síðan 2007. Widemann verksmiðjan í Korbach framleiðir vélar bæði undir nafni Weidemann, sem gjarnan eru rauðar að lit og mest seldar til land- búnaðar, og Wacker Neuson, sem eru einkenndar með gulum lit, eru einkum seldar til jarðvinnu- og byggingaverktaka um allan heim. Reyndar er kaupendum boðið upp á að velja lit á vélar sínar í hvaða lit sem er gegn aukagjaldi. Allar vél- arnar og vélahlutar eru duftspraut- aðir (powdercoating) en duftið er síðan bakað í miklum hita þannig að yfirborðið verður mun sterkara og endingarbetra en venjulegt lakk. Umboðsaðili Weidemann á Íslandi er Kraftvélar, en Þór hf. hefur einnig selt hitt merki fyrirtækisins, Wacker Neuson, hér á landi. Hægt er að fá vélarnar frá Weidemann búnar með mismun- andi hætti, bæði með veltigrind og lokuðu húsi. Þá er hægt að fá alls konar búnað eins og GPS, loftkæl- ingu og hitastýringu og hvað eina sem menn kjósa helst. /HKr. Grunnur lagður að nýjum Weidemann-vélum á færibandinu. - Áratugareynsla á Íslandi S: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is - Bílakerrur - Vélakerrur - Flutningakerrur - Bátakerrur - Yfirbyggðar kerru Vertu vinur okkar á Facebook

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.