Bændablaðið - 17.12.2015, Síða 63
63Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015
Ráðgjafafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir
eftir ráðunaut í Austur Skaftafellssýslu.
Ábyrgðarsvið, menntun og hæfniskröfur:
• Skal hafa lokið háskólaprófi í búvísindum eða annari sambæri-
legri menntun. Menntun eða reynsla af verkefnastjórnun eða
skipulagningu verkefna æskileg.
• Meginstarf viðkomandi er að vinna samkvæmt samkomulagi
sem Búnaðarsamband Austur Skaftafellssýslu hefur gert við
sveitarfélagið Hornafj örð um viðhald og uppbyggingu landbún-
aðar á svæðinu.
• Viðkomandi starfsmanni RML er ætlað að vera tengiliður bænda
á starfssvæðinu við RML ásamt því að koma beint að þeirri vinnu
sem ekki krefst sérfræðiþekkingar ákveðinna starfsmanna RML.
Hann leitist jafnframt við að veita eða miðla ráðgjöf vegna verk-
efna sem tilgreind eru i samkomulaginu og fylgja og verkstýra
þeirri aðgerðaráætlun sem mótuð yrði á grundvelli þess. Við
leitum að einstaklingum með brennandi áhuga á landbúnaði
í sínum víðasta skilningi og hefur metnað og frumkvæði sem
nýtist til að styðja við landbúnað á svæðinu
• Áhersla er lögð á skipulögð vinnubrögð og hæfni í mannlegum
samskiptum auk þess sem að viðkomandi þarf að halda utan
um og stýra verkefnum innan fyrirtækisins samkvæmt vinnuferl-
um verkefnastjórnunar
• Kemur að öðrum verkefnum á einstökum fagsviðum innan RML
sem starfsmaður hefur sérþekkingu til að gegna eftir því sem
starfsaðstæður leyfa á hverjum tíma
• Skilyrði er að viðkomandi búi á svæðinu sjá lýsingu á staðháttum
hér fyrir neðan.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er framsækið ráðgjafar-
fyrirtæki í eigu bænda og leggur metnað sinn í að viðhalda fag-
legri og óháðri ráðgjöf til aðila innan landbúnaðarins. Fyrirtækið
er með starfstöðvar víðsvegar um landið en nánari upplýsingar
um starfsemina má fi nna á vef þess www.rml.is .
Rauðaberg
Jörðin Rauðaberg er um 25 km frá Höfn. Þar er 150 fermetra
starfsmannahús og 80 fermetra skrifstofuhúsnæði, bæði húsin
eru steinsteypt. Íbúðarhúsið hefur nýlega verið endurnýjað að
innan, það var málað, skipt um gólfefni og hurðir. Félagssvæði
hestamannafélagsins Hornfi rðings er í 20 km fj arlægð og þar eru
hesthús og reiðhöll. Gott atvinnuástand er á svæðinu þannig
það ætti ekki að vera vandamál fyrir maka að fá vinnu, jafnvel
stutt frá Rauðabergi. Gert er ráð fyrir að mjög hófl eg leiga verði á
íbúðarhúsnæðinu. Um er að ræða mjög spennandi verkefni fyrir
réttan aðila.
Upplýsingar um starfi ð eru veittar með tölvupósti í gegnum
netföng Karvels L. Karvelssonar (klk@rml.is) eða Berglindar Ósk
Óðinsdóttur (boo@rml.is ). Umsóknarfrestur er til 4. janúar.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfi ð á
vef RML. www.rml.is. Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um
menntun og starfsferil umsækjanda ásamt upplýsingum um
umsagnaraðila.
Ævintýralegt gjafasett fyrir þá
sem elska að dekra við húðina. Dr.
Organic fullyrðir að húðin verður
6 árum yngri á 4 vikum.
Sníglagel hentar vel fyrir allar
húðgerðir, en það hefur einstaka
eiginleika að draga úr hrukkum,
örum og er bakteríudrepandi fyrir
bólur.
Gjafasettið inniheldur sníglagel
handáburð, andlits serum og
sníglagel.
Fæst í Lyfju, Heilsuhúsinu og Apótekinu.
Sníglagel í
jólapakkann
Gjafasett sem inniheldur
sníglaslím, Aloe vera
og Lemongras
-án kemískra efna
Gámurinn er þarfaþing!
Hafðu
samband
568 0100 Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | stolpigamar.is
Gistigámar Geymslugámar Salernishús
Margir möguleikar í stærðum og útfærslum Hagkvæm og ódýr lausn Stuttur afhendingartími
Börnin á Hvanneyri
höggva jólatré
Sú hefð hefur skapast að grunn-
skólabörn úr Grunnskóla
Borgarbyggðar á Hvanneyri komi
í Skorradalinn á aðventunni að
velja jólatré fyrir skólann sinn.
Þau hafa líka séð um að velja
og saga jólatré fyrir leikskólann
Andabæ á Hvanneyri. Á þessu varð
engin breyting þetta árið nema hvað
nú komu elstu leikskólabörnin með
til að sækja tré.
Það er alltaf líf og fjör þegar
þessi hópur kemur í heimsókn.
Skógarvörðurinn á Vesturlandi tók
á móti hinum vösku krökkum á
Stóru-Drageyri í Skorradal í morgun
og aðstoðaði þau við að velja sér
tré. Börnin sáu síðan sjálf um að
fella trén. Þau voru ekki lengi að
finna tvö myndarleg jólatré og saga
þau niður. Þetta kemur fram á vef
Skógræktar ríkisins. /MÞÞ
Kátur hópur skólabarna frá Hvanneyri í skóginum að Stóru-Drageyri í Skorradal, ánægð eftir að hafa fundið tvö
falleg jólatré og sagað fyrir grunnskólann og leikskólann. Myndirnar / Valdimar Reynisson skógarvörður.