Bændablaðið - 17.12.2015, Page 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Helstu niðurstöður nýs kynbótamats í nóvember 2015
Nú í nóvember var keyrt nýtt
kynbótamat í nautgriparæktinni
og lesið inn í nautgriparæktar-
kerfið Huppu í beinu framhaldi
af því. Niðurstöður þess eru því
aðgengilegar notendum Huppu en
hér verður stiklað á stóru um þau
naut sem hafa verið og koma ný í
dreifingu.
Fagráð í nautgriparækt tók á
fundi sínum þann 10. desember
s.l. ákvörðun um það hvaða naut
verða í almennri dreifingu á næstu
mánuðum. Ákveðið var að fjölga
reyndum nautum í dreifingu á þann
hátt að nú koma fjögur ný naut til
dreifingar en þrjú af þeim sem áður
voru í dreifingu falla út. Ánægjulegt
er að sjá að þau naut sem hafa verið
í notkun undanfarin misseri standa
við fyrri dóm að nánast öllu leyti,
hækka fremur en hitt.
Afkvæmadómi 2009 árgangs-
ins er í meginatriðum lokið en nú
þegar eru þau naut sem telja má
áhugaverð til framhaldsnotkunar úr
þeim árgangi komin eða að koma
til dreifingar. Árgangurinn taldi alls
27 naut og af þeim hafa farið 9 til
dreifingar sem reynd. Því miður er
ekki um fleiri naut að ræða þar sem
fengið hafa verulega gott mat að lok-
inni afkvæmaprófun.
Eins og áður sagði var ákveðið
fjögur ný naut í dreifingu sem
reynd naut. Þessi naut eru enn með
algjöran lágmarksfjölda dætra með
afurðaupplýsingar bak við sitt mat
en komin nægan fjölda dætra með
útlitsmat og mjaltaathugun til þess að
það mat sé komið með gott öryggi.
Ný naut í notkun
Þau naut sem koma ný til dreifingar
eða í nautaskrá eru Ferill 09070,
Þytur 09078, Dráttur 09081 og
Brúnó 09088. Hér verður gerð nánari
grein fyrir þeim.
Ferill 09070 er frá Botni í Súganda
firði, faðir er Lykill 02003 og
móðir Slóð 420 Stígsdóttir 97010.
Dætur Ferils eru miklar mjólk-
urkýr með hátt próteinhlutfall í
mjólk en fituhlutfall undir með-
allagi. Þetta eru stórar og háfætt-
ar kýr með mikla boldýpt, góðar
útlögur og sterka yfirlínu. Malir
eru breiðar og fremur flatar en
aðeins hallandi. Fótstaða þeirra
er góð og sterkleg. Júgurgerð
er um meðallag og ber hvorki
mikið göllum né kostum. Spenar
eru prýðilega gerðir og vel settir.
Mjaltir eru góðar og skapið mjög
gott.
Um helmingur afkvæma Ferils
er tvílitur og ber langmest á rauð-
um grunnlitum þó allir nema gráir
litir komi fyrir. Af tvílitum ber
mest á huppóttum og skjöldóttum.
Ekki er þekkt að Ferill gefi
hyrnd afkvæmi. Hæð dætra er
að meðaltali 5,6. Ferill kemur til
notkunar sem nautsfaðir.
Þytur 09078 er frá Eystra-Hrauni
í Landbroti og er hann fyrsti
sonur Glæðis 02001 sem kemur
til framhaldsnotkunar. Móðir hans
er Hetta 403 Jaxlsdóttir 04027.
Dætur Þyts eru gríðarmiklar
mjólkurkýr en efnahlutföll í mjólk
eru lág. Þetta eru fremur stórar og
mjög háfættar kýr en hvorki bol-
djúpar né útlögumiklar. Yfirlína
er bein. Malir eru fremur grann-
ar, þaklaga og hallandi. Fótstaða
er rétt og sterkleg. Júgurgerð
er úrvalsgóð, mikil júgurfesta,
áberandi júgurband og júgrin hátt
sett og vel borin. Spenar eru vel
gerðir, nettir en eilítið gleitt settir.
Mjaltir eru mjög góðar og skapið
í góðu meðallagi.
Helmingur afkvæma Þyts
er einlitur og af grunnlitum ber
mest á rauðum litum þó allir nema
gráir finnist. Af tvílitum ber mest
á skjöldóttum. Ekki er þekkt að
Þytur gefi hyrnd afkvæmi. Hæð
dætra er að meðaltali 6,1. Þytur
kemur til notkunar sem nautsfað-
ir.
Dráttur 09081 er frá Torfum í Eyja-
firði, faðir er Flói 02029 og
móðir Svipa 312 Stígsdóttir
97010. Svipa þessi er dóttir
Doppulínu 221 frá Baldursheimi
í Hörgársveit en hún var mikil
glæsikýr sem entist með ólík-
indum vel, var felld 2011 þá 16
vetra. Sonur hennar, Baldi 06010,
reyndist gott kynbótanaut auk
þess sem dóttursonur hennar,
Skrúður 14014, var í dreifingu
sem óreynt naut fyrir skömmu.
Dætur Dráttar eru góðar
afurðakýr með há efnahlutföll
í mjólk. Þetta er meðalstór-
ar og háfættar kýr, í meðallagi
boldjúpar með fremur litlar
útlögur en mjög sterka yfirlínu.
Malirnar eru grannar, beinar en
þaklaga. Fótstaða er bein og sterk.
Júgurgerðin er góð, festa um
meðallag en júgurband áberandi
og júgrin vel borin. Spenar eru
ágætlega gerðir, aðeins grannir en
mjög vel settir. Mjaltir eru úrvals-
góðar, ákaflega lítið um mjalta-
galla og skapið í tæpu meðallagi.
Nálægt tveimur þriðju hlutum
afkvæma Dráttar eru tvílitir og
ber mest á huppótum og skjöld-
óttum litum. Af grunnlitum eru
rauðir og bröndóttir litir mest
áberandi en allir grunnlitir koma
fyrir. Ekki er þekkt að Dráttur gefi
hyrnd afkvæmi. Hæð dætra er að
meðaltali 5,6.
Brúnó 09088 er frá Brúnastöðum
í Flóa, faðir er Flói 02029 og
móðir Erna 286 Seifsdóttir 95001
en hún entist mjög vel, bar alls
sjö sinnum.
Dætur Brúnó er miklar mjólk-
urkýr með hát flituhlutfall í mjólk
en próteinhlutfall í tæpu meðal-
lagi. Þetta fremur stórar kýr,
háfættar, prýðilega boldjúpar,
útlögur fremur litlar en yfirlína
bein. Malir eru grannar, beinar
en þaklaga. Fótstaða er heldur
náin um hækla en annars nokk-
uð bein og sterkleg. Júgurgerðin
er um meðallag, aðeins skortir á
festu en júgurband er mjög áber-
andi og þau eru meðalvel borin.
Spenagerðin er góð og þeir eru
ákaflega vel settir. Mjaltir eru
úrvalsgóðar og gallar hverfandi
litlir. Skap þessara kúa er undir
meðallagi.
Um tveir þriðju hlutar
afkvæma Brúnós eru einlitir þar
sem langmest ber á bröndóttum
litum þó allir grunnlitir utan gráir
komi fyrir. Af tvílitum eru hupp-
óttur og skjöldóttur algengastir.
Ekki er þekkt að Brúnó gefi hyrnd
afkvæmi. Hæð dætra er að með-
altali 5,8.
Naut sem áfram verða í notkun
Þau naut sem áfram verða í notk-
un eru: Logi 06019, Rjómi 07017,
Keipur 07054, Blámi 07058, Blómi
08017, Þáttur 08021, Flekkur
08029, Gói 08037, Kraki 09002,
Gusur 09003, Bolti 09021 og Gæi
09047. Alls verða því 16 reynd naut
í dreifingu í vetur. Nánari upplýs-
ingar um þau er að finna í síðustu
nautaskrá og á nautaskra.net.
Væntanleg naut
Við næstu keyrslu kynbótamats
verða vonandi fyrstu naut úr
árgangi 2010 komin með nægi-
legan fjölda dætra með afurða-
upplýsingar þannig að hægt verði
að taka naut til notkunar úr þeim
hópi. Á þessum tímapunkti hefði
það verið hægt ef burðaraldur 1.
kálfs kvígna væri ekki jafn hár
að meðaltali og raun ber vitni.
Þannig seinkar hár burðaraldur í
raun erfðaframförum í kúastofnin-
um til viðbótar þeim kostnaði og
öðrum göllum sem hann hefur í
för með sér.
Ef við víkjum að þeim nautum
sem að öllum líkindum koma úr
afkvæmaprófun við næstu keyrslu
kynbótamats þá eru það naut fædd
2010. Þetta er nokkuð blandaður
hópur hvað faðerni snertir og er
einkum að finna syni Glæðis
02001, Skurðs 02012, Ófeigs
02016, Flóa 02029 og Síríusar
02032 meðal þeirra. Þá eiga Kappi
01031, Lykill 02003, Pontíus
02028, Aðall 02039, Ás 02048 og
Gyllir 03007 einnig syni í hópnum.
Fyrstu vísbendingar og niður-
stöður varðandi syni Glæðis 02001
og Flóa 02029 eru jákvæðar en því
miður virðast flestir synir Skurðs
02012 eiga það sammerkt að gefa
fremur þungar kýr í mjöltum. Hvað
hina varðar hafa fæst orð minnsta
ábyrgð en þó eru jákvæð teikn á
lofti með nokkur naut í árgangnum.
Besta naut 2008 árgangsins
Fagráð valdi á síðasta fundi sínum
besta naut 2008 árgangsins. Fyrir
valinu varð Bambi 08049 frá Dæli
í Fnjóskadal. Þetta val kemur víst
fæstum á óvart enda yfirburðir
Bamba miklir. Ræktandi Bamba
fær afhenta viðurkenningu fyrir
nautið á fagþingi nautgriparækt-
arinnar sem haldið verður í mars á
næsta ári en segja má að þetta séu
æðstu verðlaun nautgriparæktar-
innar hérlendis.
Bambi var fæddur 4. nóvember
á Dæli í Fnjóskadal, sonur Laska
00010 og Stáss 319 Kaðalsdóttur
94017 og eru ræktendur hans þau
Geir Árdal og Margrét Bjarnadóttir.
Dómsorð Bamba eru:
„Dætur Bamba eru prýðilegar
mjólkurkýr og hlutfall verðefna
í mjólk er hátt. Þetta eru frem-
ur smáar en í góðu meðallagi
háfættar kýr. Þær eru meðalkýr
hvað snertir boldýpt en útlögur
eru miklar og yfirlínan er eilítið
veik. Malir eru í meðallagi breiðar,
hallandi en fremur flatar. Fótstaða
er mjög sterkleg og góð. Júgurgerð
dætra Bamba er úrvalsgóð, þau
eru vel löguð, gríðarvel borin með
geysimikla festu og sérlega sterkt
júgurband. Spenagerð er góð, þeir
eru stuttir, grannir og mjög vel sett-
ir. Dætur Bamba eru frábærar í
mjöltum og skapi.
Bambi 08049 hlýtur nafnbótina
besta naut 2008 árgangs nauta frá
nautastöð BÍ.“
Bambi 08049 stendur nú með
117 í heildareinkunn í kynbóta-
mati, efstur allra nauta og slær við
úrvalsnautum síðustu ára eins og
Birtingi 05043 og Kola 06003.
Móðurfaðir
Logi Fróði 96028
Rjómi Kaðall 94017
Keipur Kaðall 94017
Blámi Punktur 94032
Blómi Kaðall 94017
Þáttur Roði 97978
Flekkur Kaðall 94017
Gói Punktur 94032
Kraki Soldán 95010
Gustur Hersir 97033
Bolti Snotri 01027
Gæi Stígur 97010
Ferill Stígur 97010
Þytur Jaxl 04027
Dráttur Stígur 97010
Brúnó Seifur 95001
Pr
ót
ei
n%
Fi
tu
%
M
jó
lk
Faðir - Nafn og númerNaut - Nafn og númer Sp
en
ar
M
ja
lti
r
Sk
ap
En
di
ng
Ky
nb
ót
ae
in
k.
H
æ
ð
A
fu
rð
ir
Fr
jó
se
m
i
Fr
um
ut
al
a
G
æ
ða
rö
ð
Sk
ro
kk
ur
Jú
gu
r
Ferill 09070
Guðmundur Jóhannesson
Ábyrðamaður
í nautgriparækt
mundi@rml.is