Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 66
66 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015
Í þjóðtrú allra nágrannaþjóða
okkar hefur sígrænn gróður haft
táknræna merkingu á vetrar-
sólstöðum. Svo hefur það verið
frá örófi alda. Grænar plöntur
á þessum tíma voru fulltrúar
rísandi sólar og arðbærs árferðis.
Hjá Drúíðum á Bretlandseyjum
voru það mistilteinn, bergflétta,
kristþyrnir, ýviður og einir sem
höfðu hlutverki að gegna og lesið
var í til að spá um árferði komandi
tíðar. Hjá germönskum þjóðum var
minna spáð í framtíðina og meira
horft á hvaða óvættir gætu gert usla
og hvernig bregðast mætti við til
að koma í veg fyrir misgjörðir
myrkravaldsins.
Greni með grimmar nálar
Í sænskum byggðum tíðkaðist það
frá fornu fari að fara út í skóg rétt
fyrir jól og fella rauðgreni sem
sett var upp hvort sínum megin
við aðaldyr húsa. Oftast voru valin
grönn og frekar tuskuleg tré til þess
arna. Þau voru aflimuð að öðru
leyti en því að toppurinn og nokkr-
ir efstu greinakransarnir voru látnir
halda sér. Þetta kallaðist að reisa
grenikústa og tilgangurinn með því
var að verjast þeim myrkravættum
sem helst ráfa um byggðir í skamm-
deginu. Greinarnar sem af voru
höggnar voru svo lagðar skipulega
framan við innganga. Yfir þetta eða
undir grenikústana komust engar
myrkraverur. Hvasst grenibarrið
var grimmt slíkum slæðingi. Þegar
sól hækkaði á lofti var þetta tekið
niður og safnað saman og brennt.
Og þess þurfti að gæta að eftir að
búið var að taka niður grenikústana
og safna upp grenigreinunum mátti
þetta ekki snerta jörð fyrr en það var
lagt á bálið. Annars var hætta á að
illþýðið sem hafði fest sig í grenibarr-
inu gæti losað sig og sloppið undan
hreinsunareldinum.
Rauðgreni tengist líka sænskum
útfararsiðum. Alsiða var í skógar-
byggðum að ef einhver dó, mörk-
uðu grannarnir leið hins látna með
grenigreinum alla leið til kirkjunnar.
Þetta var gert í virðingarskyni. Ef
um langan veg þurfti að fara gerðu
grannarnir tákn úr grenigreinum, hver
við sinn garð, á leiðinni. Í kirkjunni
voru hafðar grenigreinar undir kistu
hins látna og á slóðina til grafarinnar
var lagt grenibarr og grenigreinar allt
í kring um gröfina og yfir hana að
lokinni greftrun.
Enn mun líklega eitthvað eima
eftir af þessum sið. Ég var við
útför á Skáni rétt eftir 1960 og þá
var greni undir kistu og við gröf.
Þetta sá ég aftur í kirkjugarði á
Stokkhólmssvæðinu um tíu árum
síðar.
Forsagan um jólatréð
Jólatré ámóta þeim sem við eigum
að venjast eru langt frá því að vera
nútímafyrirbæri. Líklega má rekja
sögu þeirra aftur í miðsvetrarhátíðir
Rómverja, satúrnalíurnar. Þar tíðk-
aðist að skreyta græn tré, oft pálma,
og gera kransa úr lárviðarlaufum,
rósmarín, myrtu eða bergfléttu sem
skreyttir voru með litríkum borðum
og stássi úr gleri eða gljámálmum.
Mikið til lagðist þetta af eftir að
kristin viðhorf og siðir voru orðin
allsráðandi. En skrautgirni fólks og
árátta þess að gera sér dagamun á
hátíðum mallaði alltaf undir. Eftir
sem áður bjó fólk til sólir og sym-
ból úr ýmsum efnum á aðalhátíðum
ársins, sólstöðum sumars og vetrar.
Bökuð voru brauð með sólar- og frjó-
semismynstrum. Stjörnur, kransar og
táknrænar smáfígúrur voru fléttaðar
úr hálmi. Og hjá germönskum þjóð-
um lifði miðsumarsstöngin góðu lífi.
Gömlu hátíðavenjurnar dóu ekki út.
Menn héldu jól og miðsumarhátíðir
eins og áður. En nú með kristilegu
yfirbragði. Og jólatréð hélt innreið
sína.
Og eins og við sem skrifum
íslensku getum þakkað engilsax-
neskum biskupi fyrir ritmálið sem
við notum, þá megum við líka þakka
jólatréð öðrum engilsaxa, munkin-
um Bonefatíusi – sem varð heilagur
Bonefacius eftir að hann var tekinn
í dýrlingatal kaþólsku kirkjunn-
ar. Bonefatíus fæddist í Wessex á
Englandi árið 680 og var af yfir-
stéttarættum, rétt eins og hann
Hróðólfur okkar biskup í Bæ
sem ég minntist á um daginn og
í innganginum að þessari klausu.
Föður sínum til angurs hneigð-
ist Bonefatíus til kirkjustarfs og
munklífis. Hann settist til náms
í Benediktínaklaustri í þorpinu
Nursling sem nú er úthverfi í
borginni Southampton. Þar nam
hann fræði sín og skrifaði fyrstu
námsbókina um latneska málfræði
sem skráð var á Englandi. Um þetta
leyti greip um sig mikil alda trú-
boðsköllunar meðal ungra, enskra
benediktínamunka. Bonefatíus
var þar ekki undan skilinn. Vorið
715 lagði hann upp í trúboðsferð
Fríslands þar sem hann ætlaði að
ganga til liðs við virkan trúboða-
hóp. En lítið varð þeim ágengt
með trúboðið, svo minna varð úr
en til stóð. Bonefatíus var komin
til Rómar á áliðnu ári 718 og hitti
Gregor páfa annan, sem umsvifa-
laust endurnefndi hann Bonefacius
til minningar um píslarvottinn
Bonifacius frá Tarsus, sem ekki
skal sagt meira um hér þótt saga
hans sé spennadi og fjalli um óvið-
eigandi ástir, kristna trú, þjáningar
og píslarvætti. Bonefatius sór
Rómarkirkjunni og Gregori páfa
eið um að boða heiðingjum trú og
fylgja boðskap kirkjunnar í einu
og öllu.
Það er ekki að orðlengja það,
Gregor páfi vígði hann umsvifa-
laust sem trúboðsbiskup til
Germaníu. Bonefatíus hélt eftir
þetta til Thüringen til að boða
heiðingjum trúna og öðrum þræði
til að klekkja á írsk-skoskum trú-
boðum (sem að áliti páfa voru
villutrúarmenn þótt kristnir væru,
enda voru þeir ekki í púkki með
Páfagarði á þessum tíma) sem
þarna hafði lukkast betur en páfa-
garðsmönnum í að vinna „heiðingj-
ana“ á sitt band.
Heilög þrenning
Bonefatíusi tókst bara vel upp.
Hann mun hafa verið nokkuð
lempinn og leyft margt sem honum
fannst ekki brjóta neitt í bága við
boðskap Páfagarðs. Meðal annars
þetta með það að taka grenitré á
hús um jólaleytið. En hann fann
lausn: Þrennan í vaxtarlagi gren-
isins minnti á Heilaga þrenningu,
hið sígræna tré varð tákn um hina
eilífu ást Krists, krosslaga greinarn-
ar rifjuðu upp krossfestinguna og
stingandi barrið minnti á þjáningar
frelsarans undir þyrnikórónunni. Í
þessu formi var jólatréð komið inn
í þýskt kirkjuritúal í Thüringen um
árið 750. En lítið var um skraut og
um langan aldur voru trén hengd
upp í loft með toppinn niður.
Upprétt jólatré með fæti, og
skrauti komu ekki fyrr en næst-
um áttahundruð árum síðar. Þá
voru siðaskiptin komin í gegn og
fyrsta heimild um standandi og
skreytt jólatré er frá höfðingja-
setri nálægt Stockstadt am Main
árið 1527. Og tólf árum síðar stóð
prýtt jólatré á gólfi dómkirkjunn-
ar í Strassburg. En ljósin þurftu
aðeins lengri aðlögunartíma. Eða
allt til jólanna árið 1611. Þá tók
hún sig til hún Dorothea Sibylle
von Brandenburg, þýsk hertoga-
ynja, og skreytti heljarmikið jólatré
í salarkynnum sínum með glitr-
andi glerkúlum, litríkum flöggum,
sælgæti og silkisnúrum. Í ofanálag
hafði hún látið útbúa klemmur fyrir
lítil kerti sem hægt var að kveikja á
og láta loga dálitla stund, en samt
alveg nógu lengi til að myndin sett-
ist rækilega að í huga þeirra sem
vitni voru að viðburðinum. Og nú
var trendin sett!
Næstu ár á eftir var þetta leikið
eftir í fjölskyldum aðalsins vítt um
Evrópu. Nema í Englandi. Þar var
ekki rokið upp til handa og fóta á
þessum tímum til að herma eftir
þýska lágaðlinum. Alveg þar til árið
1840. Þá höfðu málin æxlast svo að
enska meydrottningin Viktoría hafði
gengið að eiga hinn þýska Albert
prins af Sachsen-Coburg-Gotha og
var yfir sig ástfangin af honum – og
það var gagnkvæmt, sem var nú víst
ekki alltaf reyndin í svona kónga-
hjónaböndum. Viktoría gerði allt til
að gleðja Albert sinn og meðal annars
það að innleiða þýska, skreytta jóla-
tréð í jólahaldið í Buckinghamhöll.
Og hún gerði meira en það. Þegar
hulan var dregin af jólatrénu í fyrsta
sinn, ljósum prýddu, var hún búin að
bjóða blaðamönnum og teiknurum
Lundúnablaðanna að vera viðstaddir.
Ekki stóð á þeim. Daginn eftir var
viðburðurinn komin á forsíður blað-
anna sem myndskreytt heimsfrétt.
Þar með var jólatréð búið að leggja
undir sig breska heimsveldið og
hina enskumælandi þjóð Bandaríkja
Norður-Ameríku.
Jólatréð vann á hægt og sígandi,
fyrst meðal velstæðra hópa sem höfðu
efni á því og húsrými fyrir það. Næsta
stökk í sögu jólatrjánna var eftir að
„rafmagnsljósajólaseríur“ komu
á almennan markað um og uppúr
1930. Eftir miðja síðustu öld hefur
lifandi jólatré, með skrauti og ljós-
um, verið á öllum þorra heimila
hér á Íslandi.
Íslensk jólatré
Íslensk framleiðsla á jólatrjám er
nokkur. Fyrst og fremst af stafa-
furu sem er eins og sköpuð fyrir
íslenskar aðstæður. Hraust, harger
og fagurgræn, þótt barrið sé nokkuð
stórgert bætir það nokkuð fyrir sig
með ilminum. Það helst vel. Dálítið
er ræktað hér af rauðgreni sem er
hið hefðbundna jólatré Skandínava,
þótt danskræktaður normannsþin-
ur vinni stöðugt á þann markað.
Rauðgrenið er þétt og með fínu
barri, en kannski ekki alveg eins
barrheldið og flestir myndu kjósa.
Nokkuð framboð er á íslensku
blágreni sem jólatré. Það er grófara
og dökkgrænna en rauðgrenið og
heldur barrinu ögn betur. Sitkagreni
vex hratt hérlendis en er ónothæft
sem jólatré innanhúss vegna þess
hve hratt það fellir barr í stofuhit-
anum. Utanhúss er það samt fínt
jólatré fyrir götur og torg. Mýkstur
og þéttastur af íslenskum jólatrjám
er fjallaþinur. Hann er afar þéttvax-
inn, barrheldinn og ilmandi fagur-
grænn, en því miður enn í mjög
takmörkuðu framboði. Nokkur
innflutningur er af normannsþin
frá Danmörku. Normannsþinurinn
er ágætis jólatré, en dálítið grófur
samt. Hann þrífst því miður illa
hérlendis. Aðrar tegundir jólatrjáa
má ekki flytja inn og stefnt er að
því að íslensk framleiðsla fullnægi
markaðinum.
Innflutningi á jólatrjám fylgir
ávallt sú hætta að eitthvað berist
með trjánum sem gæti valdið skaða
í íslenskri skógrækt. Skógartré á
Íslandi þurfa að hafa sig öll við til
að mæta álagi af veðurfari svo að
hver kvilli eða pest sem við bætist
er aukin áraun. Það vitum við af
rammri reynslu. Því er um að gera
að velja fyrst og fremst íslensk tré
í jólatrésfótinn hvert ár. Það eflir
íslenska skógrækt og aukin skóg-
rækt er ábatasöm fyrir komandi
kynslóðir, land og þjóð.
Gleðileg jól!
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur
Greni og grænt um jól
Jólatré – normannsþinur í fullu skrúði.