Bændablaðið - 17.12.2015, Side 75

Bændablaðið - 17.12.2015, Side 75
75Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015 Hangilæri með hefðbundnu meðlæti Hráefni • 1 stk. hangilæri eða frampartur í rúllu Aðferð Setjið hangikjötið í stóran pott. Hellið köldu vatni yfir þar til það hylur kjötið. Látið suðuna koma rólega upp og slökkvið á hellunni þegar suðan kemur upp. Látið ekki bullsjóða í pottinum. Leyfið hangi- kjötinu að kólna í pottinum undir loki. Berið hangikjötið fram með uppstúfi, soðnum kartöflum, grænum Ora- baunum, rauðkáli og laufabrauði. Uppstúf Hráefni • 50 g smjör • 50 g hveiti • 1 lítri mjólk • ½ tsk. salt • 1–2 msk. sykur • Ögn af hvítum pipar og ferskt mulið múskat Bræðið smjör í potti og hrærið hveitinu saman við þannig að úr verði smjörbolla. Bætið mjólkinni varlega í og hrærið uns jafningurinn verður kekkjalaus. Látið sjóða í nokkrar mínútur og hrærið vel í á meðan. Kryddið með salti, sykri og pipar. Rauðkál Hráefni • 500 g rauðkál • 2 epli (má sleppa) • 2 msk. rauðvínsedik • 2 msk. rifsberjahlaup • 200 ml vatn • Nýmalaður pipar og salt Aðferð Rauðkálið er þvegið og snyrt og síðan skorið í mjóar ræmur. Eplin eru flysjuð, kjarnhreinsuð og skor- in í bita. Rauðkálið og eplin sett í pott. Vatninu er svo hellt yfir ásamt edikinu, hitað að suðu og látið malla þar til kálið er vel meyrt. Loks er rifsberjahlaupi bætt í pottinn ásamt svolitlum pipar og salti og látið malla í nokkrar mínútur í viðbót. Þá er rauðkálið tilbúið og sett í hreinar krukkur. Hrásalat með rauðkáli og mandarínum Hráefni • ¼ haus af rauðkáli • 1 stk. fennel eða smá hvítkál • 2–3 stk. mandarínur • 1 sítróna • 1 appelsína • góð skvetta af jómfrúar-ólífuolíu • salt Aðferð Notið rifjárn eða mjög beittan hníf. Sneiðið niður rauðkálið, fennel eða hvítkálið. Ef þú ert ekki með rifjárn þá getur þú notað matvinnsluvél eða skorið fínt með hníf. Skerið appelsínuna og sítrónuna til helminga og takið safann úr. Brjótið mandarínur niður í báta. Sameinið öll innihaldsefni í skál til að fram- reiða. Hangikjötstartar með fersk- um jurtum og rauðrófum Hráefni • 200 g hrátt hangikjöt • 50 ml góð olía • 1 stk. saxaður skarlottu laukur • 10 g kapers • 1 stk. rauðrófa (má nota rauðrófur í dós) • 1 lítill biti piparrót • 1 tsk. gróft sinnep • Blandaðar jurtir ef vill Aðferð Skerið vöðvann í þunnar sneiðar og svo í bita. Gott ráð er að skera kjötið hálffrosið. Saxið laukinn og annað til bragðbætingar (ef á að nota rauðrófur eru þær skornar þunnt og lagðar í kalt vatn). Blandið við kjötið ásamt jurtum, kapers og olíu. Rífið örlítið af pip- arrót yfir. Léttreyktur lambahryggur með hvítlauk og rósmarín Léttreykt bragðið passar fullkom- lega við vel eldað lamb með keim af rósmarín og hvítlauk. Hráefni • 1 stk. léttreyktur lambahryggur • 100 ml jómfrúar-ólífuolía • 3 hvítlauksrif, pressuð • 2 tsk. grófhakkað ferskt rósmarín • 2 msk. Maple-sýróp Aðferð Í litla skál eða krukku, merjið hvít- lauksrifin. Bætið fersku rósmar- íni út í ásamt ólífuolíu og hrærið saman. Úðið eða burstið ólífuolíu á kjötið. Hitið ofn í um 210 gráð- ur. Lækkið niður í 135 gráður og setjið hrygginn inn í um 1 klst. eða þar til kjarnahitinn er orðinn 63°C. Látið sýróp á hrygginn síðustu 15 mínútur eldunartímans. Látið hvíla í 5 mínútur fyrir skurð. Kryddað kartöflusmælki og rótargrænmeti Hráefni • 500 g litlar kartöflur • 300 g blandað rótargrænmeti, gróf- skorið • 4 msk. olía eða smjör • 1 rif hvítlaukur • 2 msk. hökkuð steinselja Aðferð Setjið pott yfir með söltuðu vatni og setjið kartöflurnar í. Látið sjóða í um 5 mínútur. Sigtið og bætið kartöfl- um í ofnfast fat með kjötinu ásamt grófskornu grænmeti. Kryddið með hvítlauk og smá salti og pipar. Setjið í heitan ofn og bakið í um 30 mínútur, snúið nokkrum sinnum með sleif eða spaða. Rétt áður en borið er fram er stráð yfir steinselju eða söxuðum graslauk. Berið fram með sósu sem er gerð úr soðinu af ofnfatinu með smá vatni og kjötkrafti, þykkt með sósujafnara og smá sultu (helst rabarbara). Ljúfir eftirréttir Crème brûlée • 250 ml mjólk • 250 ml rjómi • 4 eggjarauður • 80 g sykur • 1 vanillu fræbelgur • 45 g hrásykur Aðferð Hellið mjólk og rjóma í pott, bætið fræbelg sem er opinn og búið að skafa vanillufræ úr með hníf. Látið suðuna koma upp, slökkvið þá á hit- anum og látið standa í 30–40 mín- útur. Hellið gegnum mjög fínt sigti í skál. Blandið eggjarauðu og sykri saman við með sleif eða písk. Bætið þá við vanillu og mjólk smám saman, hrærið vel. Skiptið í fjögur eldföst form. Bakið í 45 mínútur í ofni við 100°C. Athugaðu að áferðin ætti að vera „skjálfandi búðingur viðkomu“ þegar kremið er hrist. Látið kólna niður í stofuhita. Gott að setja í kæli í að minnsta kosti 3 klst. Rétt áður en bera á fram kremið, þekið með hrásykri og brúnið með gasloga eða undir grilli. En passið bara að baka ekki of lengi því þá breytist eftirrétturinn í eggjaköku! Creme brûlée-íssamlokur Crème brûlée-ís hljómar svolítið óvenjulega. Hér er vanilluís í sömu hlutföllum og Crème brûlée eftir- rétturinn hér á undan. Fyrir þá sem eiga ísvél er tilvalið að elda rúmlega af kreminu og setja í heimilisís- vélina. Hún fæst á ýmsum stöðum og er til dæmis til sem aukahlutur á Kitchen aid-hrærivélarnar. Innihaldsefni fyrir ís: Sama og créme brûlée, bara rúmlega lagað. (Hægt líka að kaupa tilbúinn vanillu- ís) Aðferð fyrir ís: Blandan er unnin saman með töfrasprota eftir eldun, flutt í ísvél og fryst í samræmi við leiðbeiningar frá framleiðanda. Ískökur (kex) • 2 stk. egg • 2 ½ bolli ósaltað smjör • 1 bolli sykur • 2 2/3 bolli hveiti • ¾ bolli kakóduft • ½ tsk. salt: • 1 msk. vanilluþykkni • Vanilluís Þeytið smjör og sykur saman. Bætið í eggi og þurrefnum. Fletjið út og bakið við 140°C í um 10–15 mín. Gott að láta kólna í kæli (fyrir útskurð) hægt að stinga út eins og piparkökur. Hin fullkomna íssamloka felst í því að klessa saman tveimur kexum með vanilluís á milli laga. Gott ráð er að láta íssamlokur inn í frysti 30 mínútum áður en borið er fram því þá er ísinn frosinn við kexið. Skoðið kjötmyndband á bbl.is Góða veislu gjöra skal Hangikjötið er mikill hátíðarmatur Hangikjötstartar. Þ jóðarréttur Íslendinga er að sjálfsögðu hangi-kjötið með öllu sínu ljúffenga meðlæti. Hefðirnar á bak við verkun og neyslu þess eru fjölbreyttar og oftast aldagamlar. Margir neytendur hafa sterkar skoðanir á hangikjöti og vilja að það sé verkað á ákveðinn hátt eða upprunnið í ákveðnum landshluta. Sumir vilja nota minna salt en aðrir og skiptar skoðanir eru um lit og áferð. Í seinni tíð eru margir sem eiga heilt læri eða frampart og borða hrátt. Slíkt kjöt er tilvalið í forrétt, til dæmis með kalkún og léttari mat. JÓLAMATURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI Crème brûlée. Crème brûlée íssamlokur.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.