Þjóðmál - 01.03.2010, Page 10

Þjóðmál - 01.03.2010, Page 10
8 Þjóðmál VOR 2010 Af vettvangi stjórnmálanna _____________ Björn Bjarnason Óhæf vinstri stjórn – án velferðar I . Ólafur Ragnar Grímsson og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherraefni Sam fylkingarinnar, fögnuðu því sunnu- dag inn 1 . febrúar 2009 í stofunni á Bessa- s töðum, að ný ríkisstjórn hefði verið mynduð undir forsæti Jóhönnu . Spenna var í lofti og eftirvænting í orðum þeirra beggja . Fyrsta „hreinræktaða“ vinstri stjórnin í landinu var að fæðast með þátt- töku ráðherra úr Samfylkingu og vinstri- grænum (VG) auk tveggja ópólitískra ráð- herra . Framsóknarflokkurinn tryggði ríkis- stjórn inni brautargengi með fyrirheiti um að verja hana vantrausti á alþingi . Nú skyldi sjálfstæðismönnum og öðrum and stæð ing- um vinstrimanna sýnt í tvo heimana . Ýtt var úr vör með þeim orðum, að nú yrði stjórnað með velferð fólksins að leiðar ljósi . Ólafur Ragnar fór á svig við þing- ræðisregluna með því að veita um boð til myndunar minnihlutastjórnar, án þess að fyrst yrði kannað, hvort meiri hlutastjórn væri í spilunum . Að baki stjórnar mynd- uninni bjó laumuspil milli manna, sem allir höfðu áður verið saman í flokki, Alþýðu- banda laginu . Þeir töldu sig í sömu sporum og vinstri menn undir forystu Hermanns Jónassonar árið 1956, þegar fyrsta vinstri stjórnin var mynduð . Nú yrði unnt að ýta íhaldinu varanlega til hliðar . Steingrímur J . Sigfússon tók að kveða stefið um, að allt hið illa væri Sjálfstæðisflokknum að kenna og aldrei skyldi við hann rætt . Nýja ríkisstjórnin ákvað kosningar 25 . apríl . Eftir þær þurftu Samfylking og VG ekki á framsóknarmönnum að halda sem hækju . Flokkarnir tveir hlutu meirihluta á alþingi og hinn 10 . maí var efnt til blaðamanna- fundar í Norræna húsinu til að kynna nýja, sjálfbæra vinstri stjórn og sáttmála hennar . Staðarval blaðamannafundarins réðst af þeirri ætlan stjórnarherranna, að þeir sætu nú í velferðarstjórn að norrænu fordæmi . Spunaliðarnir töldu leikmyndina skipta meiru en efni málsins . Minnihlutastjórnin hafði að engu sam þykkt alþingis frá 5 . des- ember 2008 um svonefnd Brusselviðmið í Icesave-málinu . Stein grímur J . fól einkavini

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.