Þjóðmál - 01.03.2010, Page 11
Þjóðmál VOR 2010 9
sínum úr Alþýðu bandalaginu, Svavari
Gests syni, sendi herra í Kaupmannahöfn,
for ystu um að gera Icesave-samninga á eig-
in nótum við Breta og Hollendinga . Voru
þeir kynntir 5 . júní 2009 .
Steingrímur J . flutti lagafrumvarp um rík-
isábyrgð vegna samninganna . Þingið gjör-
breytti frumvarpinu fyrir sam þykkt þess 28 .
ágúst, 2009 . Bretar og Hollend ingar sættu
sig ekki við lögin . Flutti Stein grímur J . nýtt
frum varp, sem sam þykkt var 30 . des ember
2009 . Lögin voru lögð fyrir Ólaf Ragnar til
stað festingar á ríkis r áðsfundi 31 . desember .
Þar höfðu hvorki Jóhanna né Steingrímur J .
þrek til að knýja fram ákvörðun Ólafs, sem er
jafn ein stætt stjórnskipulega og ákvörðunin
um fyrirvara lausa minnihlutastjórn .
Ólafur Ragnar tók sér umhugunarfrest og
neitaði síðan að skrifa undir lögin 5 . janúar
2010, enda höfðu um 60 þúsund manns
lagt að honum að gera það ekki í söfnun
undirskrifta á vegum svonefnds Indefence-
hóps . Ráðherrarnir tóku að kveinka sér
undan viðbrögðum Breta og Hollendinga
í stað þess að halda fram málstað Íslands .
Stjórnarandstaðan knúði þá hins vegar til
að taka efnislega hlið Icesave-málsins til
endurskoðunar . Ríkisstjórnin hefur nú étið
ofan í sig öll fyrri meginsjónarmið sín í
Icesave-málinu . Von hennar hefur verið að
geta komist hjá þjóðaratkvæðagreiðslunni .
Icesave-samningarnir ömurlegu og með-
ferð ríkisstjórnarinnar á þeim ætti ein að
nægja til að dæma ríkisstjórn Jóhönnu Sig-
urð ar dóttur óhæfa . Málið hefur þó reynst
ríkisstjórninni hjálplegt . Það hefur dregið
athygli frá ömurlegri framgöngu hennar á
öðrum sviðum . Til þeirra verður nú litið .
II .
Við hvítdúkað borð í Norræna húsinu 10 . maí 2009 var kynnt, af ríkisstjórn
Jó hönnu og Steingríms J ., að kjósendur
hefðu veitt flokkunum umboð til „að skapa
norrænt velferðarsamfélag á Íslandi .“ Al-
manna hagsmunir yrðu teknir fram yfir
sér hagsmuni . Lykilverkefnið væri að endur-
reisa traust í íslensku samfélagi og orðspor
Ís lands á alþjóðavettvangi . Rík is stjórnin
ætlaði að verða norræn vel ferð ar stjórn í
besta skilningi þess orðs .
Í stjórnarsáttmálanum er oftar en einu
sinni minnst á „stöðugleikasáttmála“ og
vísað til samstarfs ríkisvalds og aðila at-
vinnu lífsins til að endurreisa atvinnu- og
efna hags líf .
Eftir að Ólafur Ragnar hafði neitað að
staðfesta seinni Icesave-lög Stein gríms
J ., kallaði ríkisstjórnin aðila stöðug leika-
sátt málans til kvöldfundar í Ráð herra-
bú stað num . Þetta reyndist vera einhvers
konar sjálfsstyrkingarfundur þeirra, sem
töldu Icesave-afarkostina helsta lausnar-
orð íslensks athafnalífs . Hræðsluóp í nafni
stöð u g leikasáttmálans höfðu þau áhrif
fyrstu sólarhringa þessa nýja ástands, að
líkindi virtust til þess, að þjóðin mundi
sam þykkja Icesave-lögin . Brátt kom þó í
ljós, að öruggur meirihluti vildi fella þau
úr gildi .
Stöðugleikasáttmálinn snýst ekki um
Icesave . Í honum er hins vegar að finna
mark mið til að hjól efnahags- og atvinnulífs
snúist eðlilega og á nauðsynlegum hraða .
Í sáttmálanum segir meðal annars, að á
árunum 2009 til 2011skuli hlutfall skatta-
hækkana í lausn fjárlagavanda ríkisins ekki
verða hærra en 45% . Samkvæmt því ber að
lækka 55% af hallanum með niðurskurði
útgjalda .
Á árunum 2009 og 2010 hafa skatt-
ar hækkað um 72 milljarða króna en
útgjöld lækkað um 38 milljarða . Til að
halda umsömdum hlutföllum stöðug leika-
sáttmálans reiknast Samtökum atvinnulífs-
ins til, að niðurskurður í útgjöldum ríkisins
þurfi að vera 88 milljarðar króna, þess vegna