Þjóðmál - 01.03.2010, Blaðsíða 13
Þjóðmál VOR 2010 11
Ráðstafanir vinstri stjórnarinnar í skattamálum
Samtök iðnaðarins hafa tekið saman punkta um helstu breytingar á sköttum og gjöldum sem tóku gildi 1 . janúar sl . Ekki er um endanlega upptalningu að ræða og er þeim sem vilja
kynna sér málið frekar bent á vefi alþingis og ríkisskattstjóra .
• Virðisaukaskattur í efra þrepi hækkar úr 24,5% í 25,5%.
• Staðgreiðsla, tekjuskattur og útsvar, verður á árinu 2010 í þrem þrepum:
• Af fyrstu 2.400.000 (200.000 á mánuði) = 37,22%
• Af næstu 5.400.000 (450.000 á mánuði) = 40,12
• Af því sem er umfram 7.800.000 (650.000 á mánuði) = 46,12%
• Ef annað hjóna/samskattsaðila er með tekjur í efsta þrepi en hitt ekki, er gerð leiðrétting til
lækkunar á álagningu . Ekki þarf að sækja um leiðréttingu, hún er gerð þegar skattframtal er
afgreitt .
• Starfi launþegi hjá fleiri en einum launagreiðanda ber launþeganum að upplýsa í hvaða
skattþrepi hann á að vera .
• Persónuafsláttur hækkar í kr. 530.466 eða kr. 44.205 á mánuði.
• Fari greiðslur launagreiðanda til öflunar lífeyrisréttinda fram úr 2 m.kr. og 12% af
iðgjaldsstofni skal það sem umfram er reiknast til skattskyldra tekna launamanns .
• Tryggingagjald hækkar úr 7% í 8,65%.
• Tekjuskattur hlutafélaga og einkahlutafélaga hækkar úr 15% í 18%.
• Tekjuskattur sameignar- og samlagsfélaga hækkar úr 23,5% í 32,7%.
• Fjármagnstekjuskattur hækkar úr 10% í 18% en frítekjumark er kr. 100.000.
• Auðlegðarskattur leggst á nettó eigur einstaklinga yfir 90 m.kr. og hjóna og samsköttunar-
aðila yfir 120 m .kr . Af eignum yfir ofangreindum mörkum greiðist 1,25% skattur .
• Aðilar sem ber að reikna sér endurgjald fyrir vinnu skulu greiða tekjuskatt af 50% af
greiddum arði skv . lögum um hlutafélög og einkahlutafélög sem er umfram 20% af skattalegu
bókfærðu eigin fé í árslok viðmiðunarársins .
• Olíugjald hækkar um 1,65 kr./ltr. en auk þess bætist við nýr skattur, kolefnisgjald, sem er
2,9 kr ./ltr . Hækkunin er því 4,55 kr ./ltr . auk vsk .
• Lituð olía ber kolefnisgjald og hækkar því um 2,9 kr./ltr. auk vsk.
• Vörugjald á bensín hækkar um 2,5 kr./ltr. en auk þess bætist einnig við kolefnisgjald,
2,60 kr ./ltr . Hækkunin er því 5,1 kr ./ltr . auk vsk .
• Bifreiðagjald hækkar um 10%.
• Áfengisgjald hækkar um 10%.
• Hækkun á ýmsum gjöldum sem snúa að leyfisveitingum, vottorðum, dómstólum og
stofnun félaga .
• Skattur á raforku 0,12 kr/kWst.
• Skattur á heitt vatn 2% af smásöluverði.
• Stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki annars vegar í formi afsláttar á tekjuskatti og /eða
endurgreiðslu sem nemur allt að 15% af rannsóknar- og þróunarkostnaði að uppfylltum
ákv . skilyrðum og hins vegar skattaafsláttur til handa þeim sem fjárfesta í nýju hlutafé í
framangreindum fyrirtækjum .
• Heimild til að taka út allt að 2,5 m.kr. af séreignarsparnaði.