Þjóðmál - 01.03.2010, Síða 14
12 Þjóðmál VOR 2010
heimamanna „stjórnvöldum rauða spjaldið
þegar fyrningarleið í sjávarútvegi bar á góma
í máli þeirra,“ sagði í frétt um fund inn .
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfells-
bæ, sagði fyrningarleiðina mikla ógn fyrir
byggðarlag eins og Snæfellsbæ og Snæfells-
nesið allt . „Sú óvissa sem þessum vanga-
velt um fylgir hefur þegar unnið heilmikinn
skaða í sjávarbyggðum um allt land .”
Að landbúnaði er vegið með ákvörðun um
aðild að Evrópusambandinu . Bændasamtök
Íslands hafa snúist eindregið gegn stefnu
rík isstjórnarinnar í Evrópumálum . Telja
sam tökin hana grafa undan atvinnuröyggi
bænda og allra, sem hafa atvinnu af
fullvinnslu afurða þeirra, auk þess sem vegið
sé að fæðuöryggi þjóðarinnar . Bænda-
samtökin hafa skýrt stefnu sína með skýrum
rökum og veitt ríkisstjórninni verðugt
aðhald í málinu .
Flumbrugangur og óljós stefna ríkis-
stjórnarinnar gagnvart raforkuframleiðslu
og orkufrekum iðnaði hefur tafið fyrir
ákvörðunum um orkunýtingu . Þá hefur
stjórnleysið spillt orðspori Íslands . Eitt af
aðalsmerkjum landsins í augum erlendra
stórfjárfesta hefur verið stöðugleiki í
stjórnarfari og stjórnmálum .
Samtök iðnaðarins hafa birt auglýsingar í
blöðum til að árétta þá staðreynd, að óbreytt
stefna stjórnvalda muni í raun stöðva allar
verklegar stórframkvæmdir . Undir þetta
er tekið í ályktun miðstjórnar Al þýðu-
sambands Íslands frá 10 . febrúar 2010 . Þar
er ríkisstjórnin krafin um verkleg ar fram-
kvæmdir til að mæta miklum samdrætti í
byggingariðnaði og mannvirkjagerð, enda
sé atvinnuleysi þar mest . Með slíkum
framkvæmdum yrði hleypt auknu lífi í
fjölmargar atvinnugreinar, sem þjónusti
byggingariðnað og mannvirkjagerð á beinan
og óbeinan hátt .
Forráðamenn orkufyrirækja gagnrýna
Svan dísi Svavarsdóttur, umhverfisráð-
herra, fyrir efasemdir hennar um, að nýt-
ing vatns afls og jarðhita feli í sér sjálfbæra
orku nýt ingu . Ráðherrann hefur verið með
horn í síðu virkjana, frá því að hún settist
í ráðherrastól . Á aðalfundi Samorku,
samtaka orku- og veitufyrirtækja, hinn
19 . febrúar 2010 leiðrétti Franz Árnason,
formaður samtakanna, misskilning ráð-
herr ans og sagði skoðun Svandísar stangast
á við viðtekin viðhorf um heim allan . Á
dögunum hefðu sérfræðingar Yale og
Columbia háskólanna í Bandaríkjunum
sagt Ísland standa sig best allra ríkja á sviði
umhverfismála . Væri þar ekki síst horft til
góðs aðgangs að hreinu drykkjarvatni og
til þeirrar hreinu orku, sem hér væri unnin
úr vatnsafli og jarðhita .
Segir það allt, sem segja þarf um
ranga stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum
málaflokki, að lofsyrði erlendra sérfræðinga
um góða stöðu umhverfismála hér landi,
falla ekki að skoðunum ráðherra hennar –
síst af öllu umhverfisráðherra .
Með því að nýta jarðhita til húshitunar
spörum við um 50 milljarða króna, því
að annars þyrfti að flytja inn 800 þúsund
tonn af olíu . Þetta sparar okkur jafnframt
brennslu 2,5 milljóna tonna af CO2 á
ári, en ætla má að innan skamms gæti
losunarkvóti þess magns kostað um 9
milljarða króna á heimsmarkaði . Þetta kom
fram í erindi Sigurðar Inga Friðleifssonar,
framkvæmdastjóra Orkuseturs, á aðalfundi
Samorku .
Rúmlega 60 þúsund krónur kostar á
ári að kynda meðalíbúð í Reykjavík, en
í höfuðborgum hinna Norðurlandanna
myndi sama kynding kosta á bilinu 390
til 550 þúsund krónur á ári, eða sex til níu
sinnum meira . Raforkuverð til almennings
er hér um fjórðungur af verðinu í
Danmörku og rúmur þriðjungur af verðinu
í Svíþjóð . Sigurður sagði það stærðfræðilega
ómögulegt að þau 20% raforkunnar sem