Þjóðmál - 01.03.2010, Page 22
20 Þjóðmál VOR 2010
Kristján Guy Burgess varð ungur aðdáandi Ólafs Ragn ars Grímssonar og baráttuaðferða
hans . Í ævi sögu Ólafs Ragnars er Kristján nefndur
sem einn af tíu nánustu samverkamönnum Ólafs
í forseta fram boðinu sumarið 1996 . (Af öðrum úr
þeim hópi má nefna Má Guðmundsson, Sigurð G .
Guð jónsson, Þórólf Árnason, Einar Karl Haraldsson,
Gunn ar Stein Pálsson, Karl Th . Birgisson og Gauta
B . Eggerts son .) Í ævisögunni segir að Ólafur Ragnar
og Kristján hafi átt mikið saman að sælda . En hið
svokallaða „Alþjóðaver“, Global Center, kom ekki til
sögunnar fyrr en haustið 2005 .
Að loknu háskólanámi í sagnfræði og alþjóða-
stjórnmálum réðst Kristján Guy Burgess til blaðsins
DV . Var hann þar fréttastjóri á þeim árum sem það
blað hafði hvað verst orð á sér, en það var þá komið
í hendur Baugsvaldsins . Mannorðsníðið á síðum DV
gekk þó ekki fram af Ólafi Ragnari og starfsmönnum
forseta skrifstofunnar . Dag einn vorið 2005 gekk
Kristján Guy Burgess á fund forseta Íslands og bað
hann um ráð varðandi framtíðaráform sín . Ólafur
Ragnar spurði eins og sá sem valdið hefur:
„Hvort langar þig meira að búa í útlöndum eða
fara í ný verkefni?“
Kristjáni hugnaðist betur síðari kosturinn: „Og
þá byrjuðum við að ræða hugmynd sem greinilega
hafði lengi verið að brjótast um í huga forsetans .
Hann vildi koma á fót einhvers konar stofnun eða
skrifstofu sem gæti liðsinnt forsetaskrifstofunni og
öðrum aðilum í alþjóðlegum verkefnum í tengslum
við atvinnulífið og fleira,“ er haft eftir Kristjáni í
ævisögu Ólafs Ragnars .
Næstu mánuði vann Kristján jöfnum höndum á
DV og með forseta landsins að stofnun Alþjóðavers-
ins . Ólafur Ragnar taldi sig eiga hönk upp í bakið á
út rás arvíkingunum eftir þjónustu sína við þá, í nafni
forseta embættisins, á undanförnum árum . Þeir kunnu
líka að meta þjónustu hans og lögðu glaðir fram fé til
stofnunar Alþjóðaversins haustið 2005, að vísu ekki
úr eigin vasa eins og síðar hefur komið á daginn, enda
létu þeir sér í léttu rúmi liggja að óljóst var með öllu
hvaða starfsemi Alþjóðaverið hefði með höndum . „Ég
hef gætt mín á því að skilgreina Alþjóðaverið ekki of
nákvæmlega,“ segir Kristján í ævisögu Ólafs Ragnars,
„því það verður líka að geta starfað sem einhvers
konar hugmyndabrunnur sem útfærir hugmyndir
og kemur þeim á legg . Ég vildi ekki lenda í því að
skilgreina það sem ráðgjafarfyrirtæki eingöngu því þá
missir maður visst frumkvæði .“ (!!)
Kristján Guy Burgess varð eini starfsmaður Al-
þjóða versins en póstfang þess var í höfuðstöðvum
lyfja fyrirtækisins Actavis í Hafnarfirði .
Í ævisögu Ólafs Ragnars fjallar höfundurinn, Guð-
jón Friðriksson, um Alþjóðaver Kristjáns Guy Burgess
af svo ýktri lotningu og mærð, rétt eins og um Ólaf
Ragnar sjálfan, að lesandinn veltir fyrir sér hvort
um háð sé að ræða, því það geti enginn rit höfundur
með sjálfsvirðingu skrifað með þessum hætti um
samferðamenn sína . En Guðjón var á háum launum
hjá útrásarbönkunum við skrifin (að sögn mun hann
hafa fengið þrjár milljónir frá hverjum þeirra, alls 9
milljónir) og hefur greinilega litið á sjálfan sig sem
auðmjúkan leigupenna . Eftir að hafa haft atvinnu af
því að níða skóinn af fólki í DV stekkur Kristján Guy
Burgess alskapaður fram á hið alþjóðlega sjónarsvið
og vinnur þar, í nánu samstarfi við sinn föðurlega
verndara og læriföður, Ólaf Ragnar Grímsson, hvert
afrekið af öðru í gríðar lega mikilvægum verkefnum
fyrir mannkynið . „Þar má nefna loftslagsmál,
forvarnarmál, alnæmismál og jarðhitamál,“ skrifar
hinn hástemmdi Guðjón Friðriksson . „Þetta hefur
eiginlega verið alger rússí bani, svo mikið hefur
verið að gera,“ segir Kristján í ævisögunni . Auk
áðurnefndra verka hafði hann umsjón með heim-
sókn geysiþýðingarmikilla sendinefnda til Íslands
frá Abú Dabíu og Serbíu, leiðbeindi þeim sem unnu
að svokölluðu Þúsaldarverkefni og reyndi að útskýra
fyrir þeim „með hverjum hætti það getur gengið
upp“, starfsfólk Jeffrey Sachs vildi ótt og uppvægt fá
að njóta starfskrafta hans, o .s .frv . o .s .frv . En Kristján á
Hver er Kristján Guy Burgess?