Þjóðmál - 01.03.2010, Síða 28
26 Þjóðmál VOR 2010
Spyrja má hvort forsætisráðherrarnir þrír
hefðu lýst trausti á dr . Pachauri 5. febrúar
2010, ef þeir hefðu lesið úttekt Þjóðmála . Af
henni má ráða, að ekki séu öll kurl komin
til grafar í umræðum um hlut dr . Pachauris .
Íslandstenging hans sýni, að veruleikinn sé
annar, en hann lýsir, nema íslenskir vinir
hans hlaupi undir bagga með honum til að
fegra stöðu hans .
Í ljósi þess, að dr . Pachauri hefur beðist
afsökunar á rangfærslum um Himalaja-
jökl ana í skýrslu á hans ábyrgð, má spyrja,
hvort Ólafur Ragnar ætli ekki að biðjast
afsök unar á orðum sínum um þetta mál .
Af úttekt Þjóðmála, sem m .a . styðst við efni
af vefsíðunni forseti.is, má sjá, hve get gátan
um öra bráðnun Himalaja-jöklanna hefur
valdið Ólafi Ragnari miklum áhyggjum .
Hann hefur að eigin sögn tekið málið upp
bæði við forseta Kína og Indlands . Hvernig
ætlar hann að leiðrétta mál sitt? Ætlar hann
að biðja forsetana afsökunar? Eða þá sem
hlustuðu á ræðu hans í Wooster í Ohio 10.
janúar 2009? Þá var Ólafur Ragnar sæmdur
doktorsnafnbót við Ohio-ríkisháskólann .
Af úttektinni má ráða að sá háskóli sé hluti
af þeirri mynd sem tengir Ólaf Ragnar við
Himalaja-jöklahneykslið .
Spyrja má: Hvernig í ósköpunum stendur
á því að forseti Íslands er að blanda sér í
falsumræður um bráðnun jökla í Himalaja?
Hvaða tilgangi þjónar að tengja nafn Íslands
þessari vitleysu? Eða nafn Háskóla Íslands?
Hvernig bregðast íslenskir vísindamenn við?
Sætta þeir sig þegjandi við að vera tengdir
þessu vísindahneyksli?
Vefsíðan eyjan.is lagði fimm spurningar
fyrir Kristján Guy Burgess, aðstoðarmann
utanríkisráðherra, vegna þessa máls og sagði
frá þeim 28. janúar 2010 á þennan veg:
Þær fimm spurningar, sem blaðamaður
Eyjunnar sendi Kristjáni Guy Burgess í tölvu-
pósti eftir árangurslausar tilraunir til að ná
símasambandi við hann, voru eftirfarandi:
1) Hver nákvæmlega er/var aðkoma Glob-
al Centre að málefnum TERI? Talað er um
að fé hafi farið milli aðila með milligöngu
GC . Hversu margir aðilar styrktu eða sendu
eða hyggjast senda TERI fé gegnum stofnun
þína? Hver er/var heildarupphæðin og hver
er/var hlutur GC af þeim upphæðum?
2) Sá Global Centre um að afla þessara fjár-
muna fyrir hönd TERI? Með hvaða hætti þá?
3) Hvaða sérfræðiþekkingu býr Global Centre
yfir vegna fjármálaþjónustu annars veg ar og
loftslagsmála hins vegar?
4) Vitað er að mörg viðskiptasambönd Global
Centre urðu til fyrir tilstilli forseta Íslands .
Kom hann að þessu ákveðna máli og þá með
hvaða hætti?
5) Hefur þú í embætti aðstoðarmanns utan-
ríkisráðherra nýtt þér þá stöðu til að koma
stofnun þinni á framfæri erlendis?
Eina svar aðstoðarmanns utanríkis ráðherra
við þessum spurningum var eftir farandi:
Ég hef ekki komið að þessu alþjóð lega vís-
indaverkefni frá því ég varð að stoðar maður
ráðherra fyrir ári [þ .e . í febrúar 2009] . Styrk-
fénu er óráðstafað og er enn varðveitt hjá
Carnegie-stofnuninni . Ekkert hefur verið
greitt til Teri .
Þótt stjórnmálamenn og vildarvinir dr .
Pachauris, sem eiga sameiginlegra hagsmuna
að gæta með honum, lýsi yfir stuðningi við
hann og telji jafnvel lúalega að honum veist,
eru þeir fleiri sem er nóg boðið vegna hinna
óvönduðu vinnubragða loftslagsnefndar
Sam einuðu þjóðanna, IPCC, undir for-
mennsku hans . Loftslagsmálin eru að fá á sig
þann stimpil, að ekkert sé að marka þá, sem
tala hæst um hættuna af hlýnun jarðar .
Furðulegt má heita að embætti forseta
Íslands skuli tengjast gervi vísindum á
þessu sviði á þann veg sem lýst er í þessari
úttekt Þjóðmála . En þar sem Ólafur Ragnar
Grímsson á í hlut er það þó alls ekkert
skrýtið, þegar betur er að gáð .
Þ