Þjóðmál - 01.03.2010, Síða 49
Þjóðmál VOR 2010 47
from 96% of GDP at the end of 2000 to
eight times GDP at the end of 2006“ . Þarf
að ræða þetta eitthvað frekar!
Getur almenningur ekki
beitt eigin skynsemi?
Umræðuhefð í íslenskum fjölmiðlum gengur út á að láta sérfræðinga segja
almenningi hitt og þetta, t .d . hvort Icesave-
samningurinn sé góður eða ekki . Æskilegra
og auðveldara væri hins vegar að birta brot
úr samningnum og láta almenning dæma
sjálfan hvort forsendurnar fyrir ábyrgðinni,
sem samþykktar voru í haust, hafi verið
komið vel fyrir í viðaukasamningnum . Hér
á eftir birti ég texta úr Icesave-lánasamn-
ingnum við Breta, viðaukasamningnum og
Icesave-lögunum frá því í haust . 3 (Ef þú
ert ekki heill heilsu mæli ég með því að þú
hoppir yfir þennan kafla .)
Ragnars Hallákvæðið
Krafa löggjafans, lög 96/2009: „Ríkis-
ábyrgð miðast við það að um úthlutun
eigna við uppgjör Landsbanka Íslands
hf fari samkvæmt íslenskum lögum
eins og þau voru 5 . júní 2009, þ .m .t .
lögum nr . 2/1993, um Evrópska
efnahagssvæðið . Ábyrgðin tak markast við
að Tryggingarsjóður innstæðu eigenda og
fjárfesta láti á það reyna fyrir þar til bærum
úrlausnaraðilum hvort kröfur hans gangi
við úthlutun framar öðrum hluta krafna
vegna sömu innstæðu .“
Textinn úr breska viðaukasamningnum:
„Umboðsmenn breska fjármálaráðuneyt-
isins staðfesta að þeim sé kunnugt um að
Tryggingarsjóður innstæðueigenda kunni
að leita úrskurðar til þar til bærra úrskurðar-
aðila um að kröfur hans á hendur búi
3 Greinarhöfundur hefur breytt lítillega texta og stytt til hagræð-
ingar fyrir lesendur .
Landsbankans gangi framar öðrum kröfum
vegna sömu innlána .“
Hjónabandssæla með kaffinu
Krafa löggjafans, lög 96/2009: „Ákvörðun
um að óska eftir viðræðum um breytingar á
lánasamningunum samkvæmt endur skoð-
unarákvæðum þeirra skal tekin með sam-
þykki Alþingis .“
Snaggaraleg afgreiðsla samnings nefnd-
arinnar með viðaukasamningnum: „Samn-
ingsaðilar staðfesta að heimilt sé að endur-
skoða breytta lánssamninginn eins og fram
kemur í 16 . mgr . í lánssamningnum .“
Og þá vippum við okkur í 16 mgr . lána-
samningsins: „Lánveitandi fellst á að ef út-
tekt AGS á stöðu Íslands sýni að skuldaþoli
þess hafi hrakað til muna og íslenska ríkið
óskar eftir því, verði efnt til fundar og
staðan rædd og íhugað hvort, og þá hvernig,
breyta skuli samningi þessum til að hann
endurspegli þá breytingu á aðstæðum sem
um er að ræða .“
Nýlenduákvæði Breta og Hollendinga
Úr upphaflega breska lánsamningnum:
„Ef Tryggingarsjóður innstæðueigenda, ís-
lenska ríkið eða eignir þeirra eru friðhelgar
eða eiga rétt á friðhelgi, í hvaða lögsögu
sem er, er hér með fallið frá þeim rétti með
óafturkræfum hætti .“
Úr breska viðaukasamningnum: „Samn-
ings aðilar staðfesta að þótt fallið sé frá frið-
helgisréttindum í breytta láns samn ingnum
nái það ekki til þeirra eigna íslenska ríkisins
sem njóta friðhelgi samkvæmt Vínar-
samningnum, eigna íslenska ríkisins á
Íslandi sem það þarf nauðsynlega á að halda
til að starfrækja hlutverk sitt sem full valda
ríki eða eigna Seðlabanka Íslands .“
Sú spurning ætti að vakna hjá skynsöm-
um lesanda hvað teljist til nauðsynlegra