Þjóðmál - 01.03.2010, Page 51
Þjóðmál VOR 2010 49
E itt megininntak fulltrúalýðræðis er að kjósendur velji sér fulltrúa sem
þeir treysta til að taka ákvarðanir í þágu
samfélagsins . Þetta fyrirkomulag er ekki
gallalaust þar sem það uppfyllir ekki
nógu vel kröfur samtímans um aukna
þátttöku almennings í ákvörðunar ferlinu .
Í aðdraganda fyrirhug aðrar þjóðaratkvæða-
greiðslu um Icesave gafst tækifæri til þess
að skoða gildi beins lýðræðis . Sú krafa
hefur orðið æ háværari í samfélaginu að
kjósendur fái að hafa meira að segja um þær
ákvarðanir sem teknar eru af stjórnvöldum
og bent er á að þjóðaratkvæðagreiðslur séu
mikilvægt tæki til styrkingar lýðræðinu .
En einnig hafa heyrst raddir sem halda því
fram að stíga beri varlega til jarðar í slíkri
þróun því hún geti tafið fyrir mikilvægum
ákvörðunum og sum mál séu einfaldlega
ekki til þess fallin að þau séu lögð fyrir í
þjóðaratkvæðagreiðslu . Hér verður velt upp
þeim atriðum sem er vert að skoða til að
meta hvort bera eigi sérstök málefni beint
undir kjósendur . Sérstaklega er vert að
skoða hvaða málefni eru best til þess fallin
að kjósa um þau, hvort nægileg þekking á
málefninu liggi til grundvallar ákvörðun,
hvort sérhagsmunir meirihlutans verði
alltaf ráðandi, hvort fólk kjósi almennt ekki
yfir sig íþyngjandi ákvarðanir og á hvaða
forsendum kosningabaráttu hagsmunaaðila
sé háttað .
Íþyngjandi mál
síður samþykkt
Mikil umræða er í Kaliforníu í Banda -ríkjunum um hvernig beri að beita
þessu lýðræðistæki . Þar hefur lengi tíðk-
ast að kjósendur fái að taka afstöðu til
mála allt frá skattahækkunum og mann-
réttindum til mála er varða aðstæður
hænsnfugla í búrum sínum . Í nýlegri grein
í The Economist er fjallað um þetta . Þar
kemur fram að sumir vilja kenna þessu
fyrirkomulagi um hversu illa er komið
fyrir Kaliforníuríki fjárhagslega því oftar
en ekki hafa íbúar þess samþykkt tillögur
um betri skóla, fleiri sjúkrahús og lengri
refsivist fanga, án þess að tekin væri afstaða
til hvaða útgjaldaukninga þurfi að koma
til . Einnig hefur sýnt sig að skatta hækk-
Hildur Sverrisdóttir
Kostir og gallar
beins lýðræðis