Þjóðmál - 01.03.2010, Síða 66
64 Þjóðmál VOR 2010
Mýtan um Sturlungu
Meðal söluhæstu bóka síðustu jóla-vertíðar, og mest auglýstra, er ævi-
saga Snorra Sturlusonar eftir Óskar Guð-
mundsson, hnausþykk með fáum myndum
og miklu lesmáli .* Snorri hefur lengi verið
meðal gildustu menningarlegra innistæðna
Íslendinga og almannaeign . Hann á
stað í huga stórs hóps fólks sem þó hefur
hvorki lesið höfuðverk hans, Ólafs sögu
helga og Heimskringlu, né söguna sem er
nálega eina frásagnaruppsprettan um líf
hans og feril sem höfðingja, Sturlungu .
Þessu tvennu er þó nokkuð ólíkt farið .
Langflestir hafa komist, ef ekki fyrir annað
en grunn- og menntaskólasetu, í bein
kynni við miðaldatexta af því tagi sem
Snorri framleiddi og neytti sjálfur, suman
örugglega af hans hendi (Edda), suman
sagðan af hans hendi án traustra raka
(Egla), og suman sambærilegan en af annars
hendi . Sturlunga stendur á hinn bóginn
fjær: sögulegum atburðum Sturlungaaldar
er jafnan miðlað í endursögn, og þeir sem
taka sjálfa Sturlungu til lestrar hafa yfirleitt
skerpt tennurnar fyrst á Íslendingasögum
og safnað kjarki .
Sturlunga glímir við mýtu sem er meðal
höfuðástæðna þess að hún er minna lesin
af almenningi en vera skyldi . Lengd hennar
er sögð brjóta öll eðlileg þolmörk, fjöldi
höfuðpersóna og aukapersóna sömuleiðis,
blóð tengsl, mægðir og hagsmunatengsl pers-
ón anna eru sögð í hæsta máta ruglingsleg,
og söguþræðir svo flóknir að jafnvel
meginframvindan sé á köflum þokukennd .
Til samræmis liggur sterkur orðrómur á
um að Sturlunga sé vart læsileg öðrum en
fræðimönnum og ættfræðifýsnum eftir-
launa þegum . Þetta er hálfsannleikur, og
full komlega ljós öllum þeim sem lesið
hafa Sturlungu . Hér má gera langt mál
af en nægja verður að benda sérstaklega á
Viðar Pálsson
Gamalt vín á nýjum
belgjum
Ævisaga Snorra Sturlusonar endurrituð
___________
* Óskar Guðmundsson, Snorri. Ævisaga Snorra Sturlusonar
11791241 (Reykjavík: JPV útgáfa, 2009), 528 bls .