Þjóðmál - 01.03.2010, Page 67

Þjóðmál - 01.03.2010, Page 67
 Þjóðmál VOR 2010 65 tvö atriði varðandi slíkan sleggjudóm . Hið fyrra er form og uppruni Sturlungu: hún er safnrit eða samsteypa . Þótt vissulega fáist fyllsta samhengi af heildarlestri er Sturlunga mjög læsileg í smærri köflum og einstökum þáttum . Hún hefur mikið undir en er að sama skapi auðbrotin í smærri einingar sem atburðasaga, og hefur raunar gjarnan verið umraðað í ætlaðar frumsögur í útgáfum . Hið síðara er aðgengi almennings að textanum og leiðsögn um hann . Fyrir rúmum tuttugu árum kom Sturlunga út með nútímastafsetningu ásamt rúmlega fimmhundruð síðna skýringarriti: samviskusamlegar spássíumerkingar við megintextann halda utan um tímatal sögunnar ásamt því að vísa í hundruð ættartalna, skýringarmynda, korta og átakasamantekta . Þeim er fylgt úr hlaði með bóklöngum inngangi um sögulegt og bókmenntalegt samhengi sögunnar, bókaskrá og úrvali annarra miðaldatexta, en smiðshöggið rekið með ártalatöflum viðburða og valdsmanna, veraldlegra og kirkjulegra, bókmenntayfirliti, og ítarlegu orðskýringasafni ásamt nafna-, staða- og viðurnefnaskrám . Að auki eru frumsögur textans auðkenndar í megintexta, eins og rök framast leyfa, og birtar í efnisyfirliti . Atburðasaga Snorra og samtíðar hans í frumtexta er því eins aðgengileg almennum lesendum og framast má telja og orðið getur . Í slíku lestrarumhverfi, bólstruðu skýringum, er örðugt að tala um brotin þolmörk og flækjur sem ekki séu leggjandi á venjulegt fólk, sem á annað borð er ferðafært um fornar slóðir . Íslendinga saga hin mesta Áfyrstu síðu ævisögu Snorra eftir Óskar, að loknum inngangi, fer Snorri barnungur í fóstur í Odda og á þeirri síðustu er hann höggvinn í Reykholti . Þar á milli er saga Snorra rakin í tímaröð eins nákvæmlega og unnt er, helst frá mánuði til mánaðar ef tök eru á . Lífshlaup Snorra í Sturlungu er rakið í frásögn eins manns að heitið getur, Íslendinga sögu Sturlu sagnaritara . Þegar Hrafns sögu og Guðmundar sögu dýra sleppir á öðrum áratug þrettándu aldar er Sturla einsaga um atburði fram yfir dauða Snorra árið 1241 . (Snorra er einnig getið stuttlega í Hákonar sögu, eftir sama höfund; Arons saga tekur einnig til atburða á þessum tíma en er um margt sérstök söguleg heimild og fjallar ekki um Snorra, þótt nafn hans sé nefnt í bláupphafi hennar .) Sturla lætur sér nægja rétt um 230 prentaðar síður til þess að rekja í heild sinni viðburði frá ungdómsdögum Snorra og fram til dauða hans á meðan Óskar, sem þó hefur helst að einum manni að huga, skilar yfir fjögur hundruð síðna lesmáli, að frádregnu myndefni . Þetta hlýtur að vekja athygli . Stíll og frágangur bókarinnar ber skýran vott um vinnulag höfundarins . Ítarleg end- ur sögn Íslendinga sögu er burðarás verks ins; yfir hana er sáldrað því sem kreist verður úr öðrum heimildum um einstaka menn og viðburði, ef þær eru á annað borð fyrir hendi (Páls saga, Þorláks saga, fornbréf, og fl .); í einstaka tilfelli sviðsetur höfundur við burði og grípur þá jafnvel í fornar stóls- ræður eða jarteinabækur til hjálpar; inn á milli endursagna dregur höfundur ályktanir og getur jafnvel í eyður (gigtveikur Snorri sækir í böð, Snorri í Stafholti vegna byggingaframkvæmda í Reykholti, o .s .frv .) . Útkoman er ekki fjarri miðaldahefð: þanið samsteypurit . Líklega er fátt í atburðasögu Snorra sem ekki hefur verið tekið upp í þessa Íslendinga sögu hina mestu . Í vissum skilningi má telja það galla á sam steypunni hversu berlegir saumarnir á henni eru, en í öðrum skilningi er það kostur . Lesandinn velkist aldrei í vafa um

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.