Þjóðmál - 01.03.2010, Page 70

Þjóðmál - 01.03.2010, Page 70
68 Þjóðmál VOR 2010 stólsræður um hversu illa fræðileg umræða skilar sér inn í almenn rit . Fræðimenn fást jafnan til þess að skrifa aðgengileg yfirlitsrit um eitt og annað, sumt ætlað breiðum hópi lesenda, en fæstir þeirra taka slaginn um jólabækur og metsölubækur, þótt þess séu auðvitað einstök dæmi . Það kemur því ekki á óvart að ævisaga Snorra Sturlusonar ætluð fyrir breiðan lesendahóp og til mikillar útbreiðslu sé skrifuð af fræðaunnandi rithöfundi sem var skólaður til skrifta í blaðamennsku fremur en af akademískum fræðimanni . Hvers vegna taka akademískir fræði- menn sjaldan slaginn á metsölumarkaði með al mennum ritum um safarík efni? Akadem ían gætir eigin hagsmuna og megin hlut verks með því að beina fræði- mönnum innan sinna vébanda að akadem- ískum fræðiskrifum en frá jólabókum fyrir almenning; matskerfi og framgangskerfi háskóla og annarra rannsóknarstofnana setja hæfi, stöðugildi og launakjör í beint samhengi við viðurkennd og birt fræðileg skrif . Í því samhengi eru samantektir fyrir almennan markað nánast verðlaus pappír . Annað væri í raun öfugmæli í ljósi þess að þeir sem akademían veitir atvinnu eiga beinlínis, og eðli málsins samkvæmt, að hafa rannsóknir (og kennsluskyldu henni fylgjandi) að fullu starfi . Í þessum skilningi geta ævisögur á jólabókamarkaði aldrei orðið annað en hliðarverkefni fyrir akademíska fræðimenn . Nýdoktorar eru undir sömu sök seldir: ef þeir sækjast eftir fótfestu innan fræðasamfélagsins eiga þeir allan sinn framgang undir ritrýndum framlögum fyrir kollega sína . Flestir akademískir fræðimenn vilja og verða að vinna sína stærstu sigra innan akademíunnar fremur en á metsölumarkaði með bókum sem segja kollegunum fátt eða ekkert nýtt . Skyldur akademíunnar í þessum efnum eru enda fyrst og fremst þær að tryggja sem greiðast aðgengi að fræðilegri umræðu fyrir hvern þann sem vill kynnast henni og hafa not af henni, en ekki endilega að skrifa sjálf sem flestar almennar bækur byggðar á henni . Sumir kalla þetta að sitja í fílabeinsturni, en það er hæpið í mörgu tilliti . Jafnan standa dyrnar opnar fyrir hvern sem vill . Óskar sækir fjölmargt til fræðilegrar umræðu, en því miður alltof lítið . Niðurstaðan mótast af því . Nú berast fregnir af því að jarðskjálfti sem varð í Chile upp á 8,8 á Richter hafi valdið tjóni upp á 400 milljarða króna þó eflaust enn eigi mik ið eftir að bætast við þá tölu . Talan er í marga staði áhugaverð . Gjaldþrotahrina fyrirtækja Jóns Ásgeirs Jóhannessonar er tal in hafa kostað rúma 1 .000 milljarða samtals í fjölda gjaldþrota og nokkrum þeirra stærstu í Íslands sög unni . Er þar komin fram tala sem er rúmlega tvöfalt stærri en tjónið af völdum skjálftans í Chile . Munurinn á Chile og Íslandi er sá að hefði einn maður valdið jarðskjálftanum er líklegt að reynt yrði að koma lögum yfir hann og í öllu falli komið í veg fyrir að hann gæti valdið öðrum skjálfta . Á Íslandi er þessu öfugt farið . Hér eru skuldir Jóns Ásgeirs afskrifaðar og ríkisbankar tryggja honum yfirráð í stærstu félögum landsins svo hann geti nú örugglega endurtekið leikinn . Spennandi verður að sjá hvaða náttúru- hamfarir Jón Ásgeir toppar næst . fuglaHvísl á amx .is 3. mars 2010. _____________________ Eins og tveir Chile-jarðskjálftar!

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.