Þjóðmál - 01.03.2010, Page 77
Þjóðmál VOR 2010 75
Lárus Jónsson, fyrrverandi bankastjóri Útvegs banka Íslands, ritaði grein sem
birtist í síðasta hefti Þjóðmála . Þar fer hann
hörðum orðum um bók mína Hafskip í
skotlínu . Ávirðingar hans í minn garð eru
þess eðlis að ég sé mig knúinn til að svara
þeim .
Lárus ásakar mig meðal annars um „spuna“
og hann segir, að bók mín „leiði menn í
grundvallaratriðum gjörsamlega afvega í að
nálgast „æðsta takmark sagnfræðinnar“, hina
eilífu leit að sannleikanum“ .
Þá sakar hann mig um að hafa villt á mér
heimildir . Honum og öðrum til upplýsingar
vil ég taka fram að haustið 2006 lauk ég
við meistaraprófsritgerð í sagnfræði við
Háskóla Íslands . Fjallaði ritgerð sú um
Hafskipsmálið og var unnin undir leiðsögn
dr . Þórs Whitehead, prófessors í sagnfræði,
og Kristjáns Jóhannssonar, lektors við við-
skipta- og hagfræðideild .
Mér var ljóst að ekki væru öll kurl komin
til grafar í þessu margbrotna máli og lagðist
því sjálfur í frekari rannsóknir, sem ég
vann á eigin vegum, samhliða laganámi við
Háskóla Íslands . Lauk ég við BA-ritgerð í
lögfræði sem fjallaði um rannsóknarnefnd
þá sem falið var að kanna viðskipti Hafskips
hf . og Útvegsbanka Íslands . Ritgerð sú var
unnin undir leiðsögn Sigurðar Líndal,
prófessors emeritus . Niðurstöður frekari
rannsókna minna setti ég saman á bók og
fyrrverandi stjórnendur Hafskips hf . gerðu
mér kleift að gefa þá bók út og kann ég
þeim miklar þakkir fyrir . Bók þessi kom út
á vegum bókaforlags sem ég stofnaði sjálfur
sérstaklega til útgáfunnar . Þetta kom meðal
annars fram í sjónvarpsþættinum Kompás,
sem sýndur var á Stöð 2 að kvöldi 6 . október
2008 og fjallaði um rannsóknir mínar á
Hafskipsmálinu . Það er með öllu fráleitt
að ég hafi unnið að ritun bókar minnar á
vegum Hafskipsmanna, líkt og Lárus dylgjar
um í grein sinni . Ég vann mína rannsókn
sjálfstætt sem óháður fræðimaður .
Lárus sakar mig um að hafa spunnið upp „langa samsærisfléttu“ um tilurð sam-
komulags stjórnenda Útvegsbanka Ís lands
og Hf . Eimskipafélags Íslands . Þessi gífur-
yrði hans eru ekki rökstudd frekar en annað
í greininni .
Þá segir hann mig hafa eftir sér fullyrð ing ar
sem hann kannist ekki við að hafa sagt . Um
það nefnir Lárus aðeins eitt dæmi, en hann
segir það rangt að bankastjórar Útvegs bank-
Björn Jón Bragason
Fyrrverandi bankastjóri
víkur af vegi sannleikans